Fréttablaðið - 28.06.2018, Qupperneq 19
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG Róm – Hér í sumarblíðunni á Ítalíu eru götur og gangstéttir krökkar af bílum og fólki eins og vant er
hvað sem heimsmeistarakeppninni
í Rússlandi líður. Á börunum horfir
næstum enginn á fótboltann í sjón-
varpinu heldur talar fólkið hvert við
annað eða grúfir sig yfir símana sína.
Það eru viðbrigði fyrir Ítala og von-
brigði að hafa ekki getað áunnið sér
rétt til að taka þátt í heimsmeistara-
mótinu nú í fyrsta sinn í 80 ár. Ítalar
hafa fjórum sinnum orðið heims-
meistarar eins og Þjóðverjar, oftar en
nokkur önnur þjóð nema Brasilía sem
hefur hreppt heimsmeistaratitilinn
fimm sinnum. Þessar þrjár þjóðir hafa
því farið með sigur af hólmi í 13 skipti
samanlagt á þeim 20 heimsmeistara-
mótum sem fram hafa farið frá fyrstu
keppninni í Úrugvæ 1930. Ekkert
mót var haldið í miðri heimsstyrjöld-
inni 1942 né heldur strax eftir stríðið
1946. Evrópulið hafa unnið heims-
meistaratitilinn 11 sinnum, þar af Eng-
lendingar, Frakkar og Spánverjar einu
sinni hvert lið. Suður-Ameríka hefur
sigrað níu sinnum, þar af Argentína og
Úrúgvæ tvisvar hvort land.
Þjóðrækni, frændrækni, fegurð
Vandfundinn mun vera sá Íslendingur
sem hefur ekki haldið ákaflega með
íslenzka liðinu í Rússlandi. Þjóðrækni
ræður miklu um það. Og úr því að þjóð-
ræknin fékk að ráða för, ætti þá ekki
frændræknin að leysa hana af hólmi
þegar íslenzka liðið snýr heim frá
Rússlandi eftir frábæra frammistöðu?
Ætti stuðningur Íslendinga þá ekki að
flytjast yfir á Dani eða Svía? – og þaðan
yfir á aðrar suðlægari Evrópuþjóðir ef
Danir og Svíar skyldu einnig heltast úr
leik.
Nú vandast málið, munu sumir segja,
því fleiri sjónarmið koma til álita en
frændræknin ein. Sumir hafa fegurðina
í fyrirrúmi. Þeir halda með því liði sem
þeim finnst spila fallegasta fótboltann
og berast þá böndin að Suður-Amer-
íkuliðunum, Brasilíu, Kólumbíu og
Úrúgvæ, en einnig sumum afrísku
liðunum sem spila líka liðmjúkan
dansandi fótbolta í andstöðumerkingu
við stálin stinn sem einkenna enska og
þýzka boltann. Aðrir láta sér fegurðina
í léttu rúmi liggja og styðja helzt það lið
sem þeir telja sigurstranglegast. Þeim
líður bezt í þéttu faðmlagi við sigur-
vegarann og valdið. Enn aðrir snúa
málinu á hvolf og styðja langhelzt lítil-
magnann, ný lið sem eiga á brattann
að sækja. Þannig stendur á miklum
og áköfum stuðningi við Afríkuliðin
og einnig við íslenzka liðið úti um
allan heim. Einn fréttaþulurinn í San
Francisco hafði orð á því um daginn að
knattspyrnumenn í Argentínu eru mun
fleiri en allir Íslendingar.
En stjórnmál?
Og svo er a.m.k. eitt sjónarmið enn.
Er rétt að halda stjórnmálum utan
girðingar? Er með góðu móti hægt að
halda með liðum frá spilltum löndum
þar sem lýðræði á undir högg að sækja?
– t.d. Íran eða Rússlandi. Sumir kæra sig
kollótta, aðrir ekki. Skoðum tölurnar
um nokkur landanna sem keppa.
Freedom House í Bandaríkjunum hefur
kortlagt lýðræði um heiminn frá 1972.
Svíþjóð fær nú einkunnina 10 fyrir lýð-
ræði eins og alltaf áður, fullt hús þar.
Úrúgvæ fær 9,8, Danmörk og Portúgal
fá 9,7, Belgía 9,5, Spánn og Þýzkaland fá
9,4, Frakkland 9,0, Brasilía 7,8, Kól-
umbía 6,5 og Nígería fær 5,0 (rétt nær!).
Rússar og Íranar kolfalla á prófinu með
2,0 og 1,7.
Spillingarvísitölur frá Trans parency
International segja svipaða sögu
nema nú fær Nígería einkunnina 2,7
og skrapar botninn ásamt Rússum
með 2,9 og Írönum með 3,0. Brasilía
og Kólumbía eru litlu skárri með 3,7,
en Þjóðverjar, Svíar og Danir hljóta
hæstu einkunnirnar í hópnum frá 8,2
upp í 8,8. Belgía stendur þeim ekki
langt að baki með 7,5, Frakkland og
Úrúgvæ með 7,0, Portúgal með 6,3 og
Spánn með 5,7. Lágar einkunnir vitna
um mikla spillingu og öfugt.
Nú er vandinn þessi: Hvernig er
hægt að bræða þau saman, þessi ólíku
sjónarmið? Leiða þau mig að stuðn-
ingi við Danmörku eða Svíþjóð eða
jafnvel Úrúgvæ? – úr því að Ísland féll
úr leik. Eða eigum við kannski bara
að láta alla rökhugsun lönd og leið og
leyfa tilfinningunum að taka völdin?
Það væri þá ekki í fyrsta sinn.
Með hverjum heldur þú?
Aðrir láta sér fegurðina í léttu
rúmi liggja og styðja helzt það lið
sem þeir telja sigurstranglegast.
Þeim líður bezt í þéttu faðmlagi
við sigurvegarann og valdið.
Enn aðrir snúa málinu á hvolf og
styðja langhelzt lítilmagnann, ný
lið sem eiga á brattann að sækja.
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
Q5 á sérkjörum
Nokkrir einstaklega vel útbúnir Audi Q5
á sérkjörum og til afhendingar strax.
Audi Q5 Quattro
Sport 2.0 190 hö
18” álfelgur 5-arma design
Bílhitari með fjarstýringu (olíumiðstöð)
Dráttarbeisli innfellanlegt
LED aðalljós og LED afturljós
Þriggja svæða stafræn miðstöð með loftkælingu
Audi Sound System 10 hátalara 180W
Audi Smartphone interface - Apple Carplay
Sportsæti með dökkgráu tauáklæði
Rafdrifinn mjóbaksstuðningur
Aksturstölva í mælaborði í lit
Rafmagnsopnun á skotthlera
Fjarlægðaskynjarar að framan og aftan
Bakkmyndavél
Hraðastillir
Listaverð 8.650.000 kr.
Tilboðsverð 7.290.000 kr.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F I M M T U D A G U R 2 8 . J Ú N Í 2 0 1 8
2
8
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
4
1
-B
F
3
8
2
0
4
1
-B
D
F
C
2
0
4
1
-B
C
C
0
2
0
4
1
-B
B
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K