Fréttablaðið - 28.06.2018, Side 24

Fréttablaðið - 28.06.2018, Side 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@ frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vil- helmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Álnavörubúðin verður 30 ára þann 2. júlí og við ætlum svo sannarlega að halda upp á daginn,“ segir Vera Dögg Höskulds- dóttir verslunarstjóri, full tilhlökk- unar og mikið stendur til. „Við verðum með fagnað á laugardaginn þar sem boðið verður upp á kaffi og köku ásamt því að börnin fá Sun Lolli-safa og Kinder- sælgæti á meðan birgðir endast. Frá föstudegi til mánudags bjóðum við svo 30 prósent afslátt af flestöllum vörum ásamt því sem útsalan okkar hefst,“ upplýsir Vera en allir þeir sem versla í Álnavörubúðinni í Hveragerði þessa daga eiga möguleika á að verða dregnir úr sérstökum afmælispotti og vinna gjafabréf að upphæð 5.000 krónur upp í 30 þúsund krónur. Nýjasta tíska á betra verði Álnavörubúðin hefur frá upphafi verið í Hveragerði en fyrst um sinn var hún aðeins neðar í Breiðu- mörkinni. „Fljótlega var búðin færð í Breiðumörk 2; í hús sem var eitt sinn gagnfræðaskólinn í Hvera- gerði. Ásýndin hefur haldist að miklu leyti; hér eru til að mynda enn sömu loftljós og þá voru,“ útskýrir Dóróthea H. Gunnars- dóttir sem keypti Álnavörubúðina árið 2007 og gaf versluninni dálitla yfirhalningu en gætti þess að halda vel í gömlu stemninguna. Álnavörubúðin er 500 fermetrar og sneisafull af öllum mögulegum vörum; nýjum, flottum og fyrir allan aldur. „Hér fæst allt það nýjasta sem er í gangi hverju sinni en við bjóðum það ódýrara en flestir aðrir,“ segir Dóróthea sem þó vill ekki alhæfa neitt í þeim efnum því það sé bannað. „Við erum með virkilega mikið og flott úrval af skóm, til dæmis merkin Vagabond, Tam- aris, Skechers og SIXMIX, ásamt VIKING-gúmmístígvélum á allan aldur og kyn. Einnig glæsilegt úrval af útivistarfatnaði á alla fjölskyld- una frá Didriksons, North Rock og Whistler,“ segir Dóróthea um freistandi vöruval Álnavörubúðar- innar sem fæst á ótrúlegu afmælis- tilboði um helgina. „Við erum með æðislegan Hummel-fatnað á börn og full- orðna, sem og danska íþrótta- og lífsstílsmerkið Endurance. Einnig tískufatnað á dömur frá dönsku merkjunum Ofelia og Cassiopeia, en Cassiopeia er í stærðunum 42 til 56. Þá eigum við til almennan fatnað fyrir karlmenn, margt upp í stærðir 6XL,“ upplýsir Dóróthea. Í Álnavörubúðinni fæst líka lopi og allt sem tengist prjónaskap, mikið af vefnaðarvöru frá 400 krónum metrinn, og ágætt úrval leikfanga. „Við erum með eitthvað fyrir alla á betra verði. Því er algjörlega ómissandi hluti af ferðalaginu að kíkja í Álnavörubúðina í Hvera- gerði. Hér er alltaf heitt á könn- unni, andrúmsloftið er létt og gott og við leggjum mikið upp úr ríkri þjónustulund starfsmanna,“ segir Dóróthea. Landsfræg tuskubúð Álnavörubúðin er fyrir margt löngu orðin landsfræg fyrir sér- kenni sín. „Ég hef haldið fast í þá sérstöku og kaótísku stemningu sem ævin- lega hefur einkennt Álnavöru- búðina. Hann Helgi, sem átti þessa verslun áður, var af mörgum kall- aður Tuski og enn heyri ég raddir nálgast búðina sem segja: „Komum aðeins við hjá Tuska.“ Einmitt þess vegna vildi ég ekki breyta nafninu á búðinni og halda sem mestu eins og það var hér innanstokks,“ segir Dóróthea sem tekist hefur vel að viðhalda gamla, góða andanum. „Álnavörubúðin er eins og félags- miðstöð og verslunarreksturinn er ólíkur öllu öðru sem ég hef staðið í. Mig hefði ekki órað fyrir því hvað þetta yrði skemmtilegt og hingað kemur fólk ekki síður inn til að spjalla en að versla.“ Frá Reykjavík er hálftíma akstur í Hveragerði. „Að koma til okkar í Álna- vörubúðina er bæði tilvalinn og skemmtilegur sveitabíltúr sem enginn verður svikinn af,“ segir Vera Dögg og minnir á vinsæla Facebook-síðu Álnavörubúðar- innar. „Þar er hægt að skoða nánast allt vöruúrvalið og á hverjum degi afgreiðum við fjölmargar pantanir í gegnum síðuna, enda eigum við dygga viðskiptavini um land allt. Þjónustan er persónuleg enda er framúrskarandi þjónusta í háveg- um höfð og lykilatriði í velgengni Álnavörubúðarinnar í 30 ár.“ Álnavörubúðin er í Breiðumörk 2 í Hveragerði. Opið mánudaga til laugardaga frá 10 til 18 og á sunnu- dögum frá 11 til 17. Sími 483 4517. Sjá nánar á alnavorubudin.is og Facebook. Dásamlega þægilegir gönguskór fást á frábæru verði í Álnavörubúðinni. Litríkir og frísk- legir íþrótta- og gönguskór fyrir dömuna frá Skechers. Framhald af forsíðu ➛ Litríkir pollagallar og hvers kyns útivistarfatnaður fyrir börnin fæst á ómótstæðilegu afmælistilboði um helgina. Didrikson-regnkápur á fullorðna. Í Álnavörubúðínni fæst nýjasta tíska á enn betra verði en gerist og gengur. Æfingafatnaður frá Endurance. Úlpur og vindjakkar fást í úrvali. Skódeildin er sérlega freist- andi og úrvalið ríkulegt fyrir allan aldur og bæði kyn, allt frá spariskóm yfir í gúmmístígvél. Íþróttafatnaður frá Hummel. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R 2 8 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 4 1 -D 2 F 8 2 0 4 1 -D 1 B C 2 0 4 1 -D 0 8 0 2 0 4 1 -C F 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.