Fréttablaðið - 28.06.2018, Page 28

Fréttablaðið - 28.06.2018, Page 28
Ólöf er nýútskrifuð með BA-gráðu í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum. Hún ætlar ekki að láta þar staðar numið heldur stefnir á MPM-nám í verkefnastjórnun við HR í haust. „Síðustu fjögur árin hef ég verið í aukavinnu við að keyra erlenda ferðamenn á breyttum jeppum um hálendi Íslands en það er fátt skemmtilegra en að fá borgað fyrir að leika sér. Ég er einnig fram- kvæmdastjóri í nýju fyrirtæki sem heitir DUTY ehf. og sérhæfir sig í alhliða textíllausnum fyrir fyrir- tæki. Við erum þrjár öflugar konur sem erum að byggja fyrirtækið upp og það eru spennandi tímar fram undan,“ segir Ólöf. Hún lýsir fatastíl sínum sem fjölbreyttum en að útivistarföt séu ágætispartur af fataskápnum þar sem hún hafi gaman af því að vera uppi á fjöllum. „Annars geng ég í fötum sem mér finnst þægileg og læt tísku sem höfðar ekki til mín ekki hafa áhrif á minn stíl. Hvernig ég vakna á morgnana og hvað fram undan er yfir daginn hefur áhrif á hvort ég Bleikt á bannlistanum Ólöf Vala Sigurðardóttir hefur frá unglingsaldri gert í því að klæða sig öðruvísi en aðrir. Hún forðast bleikan fatnað eins og pestina en blár bleiserjakki er í uppáhaldi. Ólöf reynir að festa sig ekki í einhverjum tískustöðlum heldur tekur stundum upp á því að fara í þveröfuga átt. Fylgihlutir gera mikið fyrir heildarútlitið og upplifunin af fatnaðinum breytist við að skiptaþeim út, að sögn Ólafar, taki fram skyrtu, pils og hælaskó eða hettupeysu, gallabuxur og flat- botna götuskó.“ Tískuvikan á Snapchat Ólöf segist fylgjast með nýjum tískustraumum og hefur lúmskt gaman af því að sjá hvað er að gerast á tískuvikum hér og þar og þá ekki síst á Snapchat. „Mér finnst fróðlegt að sjá hvernig forritið er notað á tískusýningum þar sem farið er á bak við tjöldin og bæði módel og áhorfendur beðnir um að koma með stutt innslag og sínar pælingar um fatnaðinn og almennt umgjörðina í kringum sýninguna.“ Ólöf segir að áhugi hennar á tísku hafi þróast með aldrinum og hún sé ekki frá því að alveg frá ungl- ingsaldri hafi hún gert í því að vera öðruvísi í klæðaburði en aðrir. „Ég reyni að festa mig ekki í einhverjum stöðlum heldur tek ég stundum upp á því að fara í þveröfuga átt. Það er til að mynda ekki hægt með góðu móti að fá mig til að klæðast bleikum fatnaði. Það að staðal- ímyndin sé svo sterk að kvenfólk velji og vilji allt bleik fær mig til að forðast þann lit eins og pestina.“ Stundum líða mánuðir á milli þess sem Ólöf fjárfestir í nýrri flík en hún kaupir föt bæði hérlendis og erlendis. „Ég er ekki frá því að það skiptist nokkuð jafnt. Ég kaupi mér oftast flík þegar ég fer til útlanda. Til að mynda held ég enn mikið upp á pils sem ég keypti á götumarkaði í Flórens á Ítalíu í kringum 2005. Önnur uppáhaldsflík er hettupeysa frá Tommy Hil figer sem ég keypti í Illum í Kaupmannahöfn árið 2003 og er enn í reglulegri í notkun. Í augnablikinu held ég mikið upp á bláan bleiser sem ég keypti í Pri- mark í Edinborg 2013. Mér finnst hann passa bæði fyrir fínni tækifæri sem daglega notkun við til dæmis gallabuxur. Þegar ég fer til staða þar sem stærðir eru töluvert frá- brugðnar evrópskum stærðum, eins og til dæmis í Japan, kaupi ég þeim mun meira af fylgihlutum,“ upplýsir hún. En bestu og verstu fatakaupin? „Þar sem ég er töluvert uppi á fjöllum í alls konar veðri allan ársins hring þá finnst mér merínó- ull það besta sem hægt er að klæða sig í sem innsta lag, enda eru ófá sett af ullarfötum til á heimilinu. Ég reyni að gleyma verstu fatakaupum jafnóðum. Hver kannast ekki við að nenna ekki að máta í versluninni en fatnaðurinn lítur vel út á herða- trénu eða gínunni en þegar heim er komið er eins og þetta sé allt önnur flík sem engan veginn passar? Svona erum við nú misjafnar í sniði eins og við erum nú margar.“ Notar þú fylgihluti? „Já, töluvert. Ég á töluvert af töskum, sólgleraugum og skart- gripum. Mér finnst fylgihlutir gera mikið fyrir heildarútlitið og með því að skipta þeim út breytist upplifunin af fatnaðinum tölu- vert. Sami fatnaður getur farið úr því að vera hversdagslegur yfir í að vera partíhæfur með réttum fylgi- hlutum.“ Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Ólöf hefur yndi af útiveru og á heilmikið af útivistarfatnaði. MYNDIR/ERNIR Verð 6.900 kr. - 4 litir: navyblátt, ljósgrátt, hvítt, svart - str. 36 - 48 - 100% lífræn bómull Flottir bolir Áleggin frá Stjörnugrís hafa fengið nýjan búning en að sjálfsögðu halda þau sömu gæðum Eini íslenski framleiðandinn sem framleiðir eingöngu úr íslensku grísakjöti www.s vinvirka r. is SÖMU GÆÐIN 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . j ú N í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R 2 8 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 4 1 -A B 7 8 2 0 4 1 -A A 3 C 2 0 4 1 -A 9 0 0 2 0 4 1 -A 7 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.