Fréttablaðið - 28.06.2018, Qupperneq 32
Sunna hóf nám í fatahönnun í LHÍ árið 2009 eftir að hafa verið tvær annir í Skals
Højskolen for design og hånd
arbejde á Jótlandi í Danmörku.
„Ég fór síðan aftur til Danmerkur í
skiptinám við Danmarks Design
skole. Var þar í eina önn á meðan
ég var í LHÍ en þaðan útskrifaðist ég
árið 2012. Það var síðan eiginlega
fyrir röð tilviljana að ég endaði á
því að fara í starfsnám í Amsterdam
í Hollandi árið eftir útskrift. Ég var
að vinna hjá hollenska fatahönnuð
inum Lilian Driessen. Lilian er með
eigið fatamerki og hannar líka
innréttingar fyrir ilmvatnsbúðir og
einkaheimili. Þetta var afar fróð
legur tími og Lilian endaði á því
að bjóða mér að vera lengur en til
stóð. Það sem upphaflega áttu að
vera þrír mánuðir urðu hátt í sjö.
Undir lokin, þegar ég var búin að
tæma sparireikninginn minn, fékk
ég að sofa í herbergi í kjallaranum í
vinnustofunni,“ segir hún.
Nám í Arnhem
„Lilian hafði verið að kenna af og
til í ArtEZ Fashion Masters í Arn
hem í Hollandi. Ég ákvað að sækja
um eftir að hafa heimsótt Arn
hem. Þetta er lítill skóli með tvær
megindeildir, Fashion Master og
Fashion Strategy. Við vorum fimm
sem hófum nám í Fashion Master
í árganginum mínum en þrjár sem
útskrifuðumst. Þetta nám hentaði
mér vel og kennararnir voru jafn
frábærir og þeir voru mismunandi.
En þetta var mikil og stöðug
keyrsla undir gríðarlegri pressu
og í rosalegri samkeppni, þar af
leiðandi var þetta það erfiðasta
sem ég hef nokkurn tímann gert,“
segir Sunna.
„Ég hafði alltaf séð fyrir mér að
ég myndi vilja vinna fyrir aðra eftir
útskrift – helst stórt nafn í lúxus
tískugeiranum. Að vinna við að
gera „haute couture“ fatnað eða
því sem næst væri til að mynda
draumurinn. Eftir heimkomuna
frá Hollandi gerði ég litla tísku
stuttmynd, One year and ten days,
fyrir útskriftarverkefnið mitt og hef
sinnt einstaka prívat verkefnum
sem ég hef mikla ánægju af. Ég er
með litla vinnustofu í miðbænum
þar sem ég vinn að nýju línunni
hvenær sem færi gefst. Ég vonast
til að hún verði tilbúin undir lok
sumars. Þetta er kvenfatalína
sem er unnin upp úr sniðum úr
útskriftarlínunni minni sem mikil
vinna fór í að teikna og máta til.
Mér finnst meiri skilningur á
starfsumhverfi fatahönnuða í Hol
landi en hér. Það þyrfti að styðja
við nýstofnuð fatamerki upprenn
andi fatahönnuða sem eru að stíga
sín fyrstu skref í bransanum eftir
nám. Hvort sem er með fjárhags
legum stuðningi eða með því að
skapa vettvang þar sem þessi
merki eru sýnilegri. Það er aðeins
meiri tilraunastarfsemi í gangi hjá
ungum hönnuðum í Hollandi. Þeir
eru óhræddari við að fara aðrar og
óhefðbundnari leiðir með merkin
sín en hönnuðir hér á Íslandi en
það gæti skýrst af því að markaður
inn úti er margfalt stærri en hér.“
Boð og bönn tískunnar
Þegar Sunna er spurð um eigin
fatastíl, svarar hún. „Ég er rosalega
löt að klæða mig hversdags og eyði
mjög litlum tíma í að finna til föt.
Hversdags er ég klædd í gallabuxur,
einlitan stuttermabol og einlita,
prjónaða peysu úr fínni ull. Ég held
að tískuáhuginn hafi þróast í öfuga
átt, þótt ég sé fatahönnuður og allt
það. Ég hef í raun sáralítinn áhuga
á tísku sem slíkri, þá meina ég ef
við tölum um tísku sem við sjáum í
blöðunum og á sýningarpöllunum,
hvort stórir jakkar séu úti eða inni
eða hvort fjólublár er litur gærdags
ins eða morgundagsins. Öll boð og
bönn í tísku finnst mér eiginlega
hallærisleg. En hins vegar elska ég
Lítill stuðningur við hönnuði
Sunna Örlygsdóttir fatahönnuður vinnur nú nýja fatalínu. Hún hlaut tilnefninguna Looking
forward to í flokknum Fashion Design of the Year á hönnunarverðlaunum Grapevine 2018.
Sunna Örlygsdóttir fatahönnuður. MYND/EYÞÓR
Þetta dress er sömuleiðis úr ArtEZ
Mini Collection 2015 frá Sunnu.
Þessi fatnaður
er úr ArtEZ Mini
Collection 2015.
MYNDIR/MAGNÚS
ANDERSEN
flíkur og allt sem er hægt að tjá með
minnstu smáatriðum í frágangi og
efnisvali – alla litlu „núansana“.
Ég er mikil áhugamanneskja um
ímyndarsköpun.
Eftir að hafa lært fatahönnun
verður maður óhjákvæmilega
dálítið vandlátur á föt og það verð
ur erfiðara að finna föt í búðum.
Ég er oftast frekar dökkklædd en
er annars mikið fyrir djúpa og
sterka litatóna, sérstaklega í eigin
hönnun. Á síðustu árum hef ég
orðið sífellt hallari undir bleika
tóna, hvernig sem á því stendur. Ég
á gulbrúna rúllukragapeysu sem
amma mín prjónaði á mig þegar
ég var svona 1112 ára og er mér
kær. Ótrúlegt en satt þá passa ég
enn í hana og mun halda áfram að
nota hana þangað til hún dettur í
sundur.
Það er reyndar smá áhugamál
hjá mér að kíkja í fínu búðirnar
erlendis. Þá fær maður tilfinningu
fyrir því hvað fólk er að kaupa og
svo finnst mér gaman að kíkja inn
í flíkur til að skoða hvaða aðferðir
eru notaðar í frágang og hvaða efni
er verið að nota. Þjóðbúningurinn
minn er í miklu uppáhaldi hjá mér
en mamma saumaði hann á mig
þegar ég fermdist,“ segir Sunna.
NÝSKÖPUN Á ÍSLANDI
Blaðið er unnið að hluta í samstarfi við Rannís og Tækniþróunarsjóð.
Ætlum við þar að sýna þá grósku sem er í íslenskri nýsköpun og kynna það sem vel hefur farið af stað á
síðastliðnum árum.
Í blaðinu gefst nýsköpunar fyrirtækjum færi á að kynna sína starfsemi og vöruþróun.
Um leið er blaðið öflugur auglýsingamiðill fyrir fyrirtæki og stofnanir sem bjóða
nýsköpunarfyrirtækjum upp á ýmiskonar vörur eða þjónustu.
Boðið er upp á hefðbundin auglýsingahólf sem og umfjallanir sem eru settar upp af blaðamanni okkar í
góðu samráði við auglýsanda.
Stór dreifing og mikill lestur Fréttablaðsins tryggir að blaðið nær afar vel til ákjósanlegra markhópa.
Fimmtudaginn 4. júlí mun Fréttablaðið gefa út aukablaðið
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Arnar Magnússon
Sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins
arnarm@frettabladid.is Sími: 512-5442
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . j Ú N í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
2
8
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
4
1
-C
4
2
8
2
0
4
1
-C
2
E
C
2
0
4
1
-C
1
B
0
2
0
4
1
-C
0
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K