Fréttablaðið - 28.06.2018, Side 50

Fréttablaðið - 28.06.2018, Side 50
Blekhylki.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind Ódýr blekhylki og tónerar! Verkfæralagerinn Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæri í miklu úrvali ViAir 12V loftdælur í miklu úvali. METABO Bútsög KS216 Verðmætaskápar Jeppatjakkur 2.25t 52cm. 16.995 frá 4.995 17.995 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Amadeus borðstofuhúsgögn Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Komið og skoðið úrvalið VIÐ SÉRHÆFUM OKKUR Í ASÍSKRI MATARGERÐ. HOLLUR OG LJÚFFENGUR MATUR. Vietnamese restaurant Laugavegi 27 og Suðurlandsbraut 8 sími: 588 6868 pho.is Innipúkinn er orðin ein elsta tónlistarhátíð landsins en hún var fyrst haldin árið 2002. Öll þessi ár hefur hátíðin verið ákveðið skjól fyrir þá sem nenna ekki að standa í neinum ferðalögum um verslunarmannahelg- ina og einnig mikilvægur vettvangur fyrir innlenda tónlistarmenn. „Innipúkinn er þannig hátíð að það vilja allir spila á henni og spyrja engra spurninga – þetta er orðin ein elsta tónlistarhátíð landsins og skipulagið á hátíðinni er eiginlega sjálfseignarstofnun þannig að það á enginn Innipúkann og öllum hagnaði er skipt jafnt á milli allra bandanna sem þar koma fram og þá skiptir engu hvort þú ert Mugison eða GDRN. Miðaverði er stillt í hóf og við erum með frábæra styrktaraðila. Svo eru þessir tónleikastaðir tveir sem mér að minnsta kosti finnst skipta mestu máli í miðbænum – Húrra og Gaukur á Stöng sem hjálpa okkur mjög mikið. Vegna allra þessara atriða og hvernig allir koma saman þá myndast þetta skemmtilega andrúmsloft sem gerir okkur tónleikahöldurum mjög auð- velt fyrir, “ segir Ásgeir Guðmunds- son, einn skipuleggjenda Innipúkans. Ásgeir segir hátíðina verða með svipuðu sniði og áður – enda segir hann Innipúkann ekki hafa áhuga á því að breyta því sem þarf ekki að breyta. Hátíðin fer fram á Húrra og Gauki á Stöng og stendur í þrjá daga – föstudag, laugardag og sunnudag og grasrótinni verður gefið sitt pláss. „Grasrótinni er alltaf gefinn góður séns og við höfum reynt að hafa það þannig. Fyrir mjög marga hefur þetta verið hátíðin sem hefur fyrsta „breik- ið“ – fyrsta hátíðin sem margir spila á áður en lengra er haldið.“ Síðustu ár hefur Innipúkanum fylgt útisvæði – Naustunum, götunni fyrir framan tónleikastaði hátíðarinnar, er lokað og grasþökum rúllað yfir malbikið. Þarna hafa verið haldnar myndlistarsýningar, bingó og mynd- ast fjölskyldustemming á daginn. Þó hefur ekki borist leyfi fyrir þessari lokun í ár. „Við erum búin að sækja um að loka aftur þessari götu. Það hefur auðvitað myndast góð og þversagna- kennd stemming þar – útisvæði á Innipúkanum. En við lendum hins vegar núna í því að fyrstu viðbrögð frá umhverfis- og skipulagssviði, sem sér um að deila út þessum afnota- leyfum, eru bara „nei.“ Þetta er smá svona „computer says no“ vegna þessara framkvæmda sem eru þarna við enda Hafnarstrætisins við Lækj- argötu. Vegna þess að það er einhver lokun þar þá þurfi að beina umferð um þessa götu, sem ég er ekki sam- mála að þurfi. Þetta er frekar vélrænt svar sem ég er náttúrulega búinn að andmæla og gerði fyrir löngu, borgin er með þetta í skoðun, við erum bjartsýn á að þetta komi í gegn.“ Ásgeir segist vonast til þess að þessu svari verði snúið við enda séu að hans mati sterk rök fyrir því að torgið fái að standa akkúrat þessa helgi. „Við vonumst nú bara til þess að þetta séu fyrstu viðbrögð, sér- staklega í ljósi mikilvægis þess að vinna með okkur og öðrum sem vilja standa að því að gæða borgina lífi þessa helgi þar sem er kannski ekki mikið að frétta í þessari borg – það eru svo margir sem af ein- hverjum ástæðum kjósa að fara út á land á sama tíma og allir aðrir gera það. Innipúkatorgið hefur verið ansi mikilvægur partur af þessari stemmingu.“ Miðasala hefst í dag klukkan 10 á tix.is. stefanthor@frettabladid.is Innipúkinn á sínum stað í ár Tónlistarhátíðin Innipúkinn verður á sínum stað um verslunar- mannahelgina þó að það sé í skoðun að útitorgið fái að standa í ár. Fyrsta tilkynning um listamenn á hátíðinni hefur borist í hús. frá uppsetningu útitorgsins í fyrra þar sem myndast alltaf góð stemming. FRÉTTABLAÐIÐ/LAUFEY LISTAMENN SEM ERU KYNNTIR TIL SÖGUNNAR Í DAG JóiPé og Króli GDRN Bjartar sveiflur HATARI Girl Power Svala Björgvinsdóttir Logi Pedro Une misère Mugison Sykur BRÍET Yung Nigo Drippin, RARI BOYS og Geisha Cartel (í sameiningu) Prins Póló Rari boys, Geisha Cartel og Yung Nigo Drippin spila saman. FRETTABLADID/EYÞÓR 2 8 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R38 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 8 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 4 1 -C 9 1 8 2 0 4 1 -C 7 D C 2 0 4 1 -C 6 A 0 2 0 4 1 -C 5 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.