Fréttablaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 50
Blekhylki.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind
Ódýr blekhylki
og tónerar!
Verkfæralagerinn
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæri í miklu úrvali
ViAir 12V loftdælur
í miklu úvali.
METABO Bútsög
KS216
Verðmætaskápar
Jeppatjakkur
2.25t 52cm.
16.995
frá 4.995
17.995
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Amadeus borðstofuhúsgögn
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Komið og skoðið úrvalið
VIÐ SÉRHÆFUM
OKKUR Í
ASÍSKRI
MATARGERÐ.
HOLLUR OG
LJÚFFENGUR
MATUR.
Vietnamese restaurant
Laugavegi 27 og
Suðurlandsbraut 8
sími: 588 6868
pho.is
Innipúkinn er orðin ein elsta tónlistarhátíð landsins en hún var fyrst haldin árið 2002. Öll þessi ár hefur hátíðin verið ákveðið skjól fyrir þá sem nenna ekki að standa í neinum
ferðalögum um verslunarmannahelg-
ina og einnig mikilvægur vettvangur
fyrir innlenda tónlistarmenn.
„Innipúkinn er þannig hátíð að
það vilja allir spila á henni og spyrja
engra spurninga – þetta er orðin
ein elsta tónlistarhátíð landsins og
skipulagið á hátíðinni er eiginlega
sjálfseignarstofnun þannig að það á
enginn Innipúkann og öllum hagnaði
er skipt jafnt á milli allra bandanna
sem þar koma fram og þá skiptir engu
hvort þú ert Mugison eða GDRN.
Miðaverði er stillt í hóf og við erum
með frábæra styrktaraðila. Svo eru
þessir tónleikastaðir tveir sem mér
að minnsta kosti finnst skipta mestu
máli í miðbænum – Húrra og Gaukur
á Stöng sem hjálpa okkur mjög mikið.
Vegna allra þessara atriða og hvernig
allir koma saman þá myndast þetta
skemmtilega andrúmsloft sem gerir
okkur tónleikahöldurum mjög auð-
velt fyrir, “ segir Ásgeir Guðmunds-
son, einn skipuleggjenda Innipúkans.
Ásgeir segir hátíðina verða með
svipuðu sniði og áður – enda segir
hann Innipúkann ekki hafa áhuga
á því að breyta því sem þarf ekki að
breyta. Hátíðin fer fram á Húrra og
Gauki á Stöng og stendur í þrjá daga
– föstudag, laugardag og sunnudag og
grasrótinni verður gefið sitt pláss.
„Grasrótinni er alltaf gefinn góður
séns og við höfum reynt að hafa það
þannig. Fyrir mjög marga hefur þetta
verið hátíðin sem hefur fyrsta „breik-
ið“ – fyrsta hátíðin sem margir spila á
áður en lengra er haldið.“
Síðustu ár hefur Innipúkanum fylgt
útisvæði – Naustunum, götunni fyrir
framan tónleikastaði hátíðarinnar,
er lokað og grasþökum rúllað yfir
malbikið. Þarna hafa verið haldnar
myndlistarsýningar, bingó og mynd-
ast fjölskyldustemming á daginn. Þó
hefur ekki borist leyfi fyrir þessari
lokun í ár.
„Við erum búin að sækja um að
loka aftur þessari götu. Það hefur
auðvitað myndast góð og þversagna-
kennd stemming þar – útisvæði á
Innipúkanum. En við lendum hins
vegar núna í því að fyrstu viðbrögð
frá umhverfis- og skipulagssviði, sem
sér um að deila út þessum afnota-
leyfum, eru bara „nei.“ Þetta er smá
svona „computer says no“ vegna
þessara framkvæmda sem eru þarna
við enda Hafnarstrætisins við Lækj-
argötu. Vegna þess að það er einhver
lokun þar þá þurfi að beina umferð
um þessa götu, sem ég er ekki sam-
mála að þurfi. Þetta er frekar vélrænt
svar sem ég er náttúrulega búinn að
andmæla og gerði fyrir löngu, borgin
er með þetta í skoðun, við erum
bjartsýn á að þetta komi í gegn.“
Ásgeir segist vonast til þess að
þessu svari verði snúið við enda séu
að hans mati sterk rök fyrir því að
torgið fái að standa akkúrat þessa
helgi.
„Við vonumst nú bara til þess
að þetta séu fyrstu viðbrögð, sér-
staklega í ljósi mikilvægis þess að
vinna með okkur og öðrum sem
vilja standa að því að gæða borgina
lífi þessa helgi þar sem er kannski
ekki mikið að frétta í þessari borg
– það eru svo margir sem af ein-
hverjum ástæðum kjósa að fara út á
land á sama tíma og allir aðrir gera
það. Innipúkatorgið hefur verið
ansi mikilvægur partur af þessari
stemmingu.“
Miðasala hefst í dag klukkan 10 á
tix.is. stefanthor@frettabladid.is
Innipúkinn
á sínum stað í ár
Tónlistarhátíðin Innipúkinn verður á sínum stað um verslunar-
mannahelgina þó að það sé í skoðun að útitorgið fái að standa í ár.
Fyrsta tilkynning um listamenn á hátíðinni hefur borist í hús.
frá uppsetningu útitorgsins í fyrra þar sem myndast alltaf góð stemming. FRÉTTABLAÐIÐ/LAUFEY
LISTAMENN SEM
ERU KYNNTIR TIL
SÖGUNNAR Í DAG
JóiPé og Króli
GDRN
Bjartar sveiflur
HATARI
Girl Power
Svala Björgvinsdóttir
Logi Pedro
Une misère
Mugison
Sykur
BRÍET
Yung Nigo Drippin, RARI BOYS
og Geisha Cartel (í sameiningu)
Prins Póló
Rari boys, Geisha Cartel og Yung Nigo Drippin spila saman. FRETTABLADID/EYÞÓR
2 8 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R38 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
4
1
-C
9
1
8
2
0
4
1
-C
7
D
C
2
0
4
1
-C
6
A
0
2
0
4
1
-C
5
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K