Fréttablaðið - 07.07.2018, Síða 2
Veður
Sunnan og suðvestan 3-10 í dag og
rigning eða skúrir, en úrkomulítið
á Austurlandi. Snýst í vestanátt og
styttir upp vestan til í kvöld en það
má þá búast við samfelldri rigningu
á Austurlandi. sjá síðu 36
Á uppleið
Krakkar úr Klifurfélagi Reykjavíkur notuðu tækifærið og voru við útiæfingar af kappi í Öskjuhlíðinni í sjaldséðri kvöldsól á fimmtudagskvöldið.
Klifurfélagið sem á aðild að Íþróttabandalagi Reykjavíkur, rekur Klifurhúsið þar sem stunda má íþróttina árið um kring. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Hm 2018 „Við viljum saman undir-
strika að fótbolti er hamingja, gleði
og vinátta og hitt liðið er aldrei
óvinur þinn. Hitt liðið er vinur og
þú ert að mæta vini þínum í leik sem
byggir á vináttu. Það er hugmyndin
með að gera þetta saman,“ segir
Håkan Juholt, sendiherra Svíþjóðar
á Íslandi. Hann mun ásamt kollega
sínum hjá breska sendiráðinu, Mic-
hael Nevin, verða á Ingólfstorgi í
dag í tilefni af landsleik Svíþjóðar og
Englands á Heimsmeistaramótinu
í knattspyrnu. Sænskir og enskir
stuðningsmenn munu þar koma
saman í miklu bróðerni, horfa á
leikinn og njóta samverunnar.
Juholt segir að þó barist verði hart
á vellinum verði vináttan við völd
hjá stuðningsmönnum á Íslandi.
Undir þetta tekur breski sendi-
herrann í samtali við Fréttablaðið.
„Ég held að það sendi góð skila-
boð að við verðum þarna saman,“
segir Nevin sem kveðst bjartsýnn á
enskan sigur.
„Enska liðið er ungt og óreynt
og væntingar voru hófstilltar fyrir
mótið. En þeir hafa sýnt að þeir
eru gott lið og hafa skapað mikla
stemmingu á Englandi. Svíar hafa
þó í gegnum tíðina reynst Eng-
lendingum óþægur ljár í þúfu. Þetta
verður jafn leikur en þegar upp er
staðið spái ég Englendingum 2-1
sigri.“
Juholt telur að Svíar gætu haldið
áfram að koma á óvart.
„Í ár er sænska liðið svolítið eins
og það íslenska á EM 2016. Enginn
bjóst við að liðið næði svona langt
og stæði sig svona vel. Ég ráðlegg
ensku þjóðinni að vanmeta ekki
Svía, frekar en Ísland fyrir tveimur
árum. Við munum allavega klæða
Ingólfstorg í gult og blátt í dag.“
Juholt ber einnig íslenskum
knattspyrnuunnendum vel söguna
og segir Svía sem og aðrar þjóðir
geta lært mikið af íslenskum stuðn-
ingsmönnum. mikael@frettabladid.is
Sendiherrar sameinast í
ást og friði á Ingólfstorgi
Håkan Juholt, sendiherra Svíþjóðar, hefur lifað sig inn í leikina á ingólfstorgi.
Verður með kollega sínum frá Englandi þar í dag. Fréttablaðið/ÞórStEinn
Þó að landslið Svíþjóðar
og Englands muni
berjast til síðasta manns
á knattspyrnuvellinum
í Samara í Rússlandi í
dag ætla sendiherrar
þjóðanna hér á landi að
setjast niður og horfa á
leikinn í mesta bróðerni
á Ingólfstorgi. Hatur á
ekki heima í íþróttum,
segir Håkan Juholt.
Ég held að það sendi
góð skilaboð að við
verðum þarna saman.
Michael Nevin, sendiherra Bretlands
á Íslandi
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Gallerí Fold óskar eftir
blómamynd eftir
Jón Stefánsson
fyrir traustan kaupanda
Áhugasamir hafi samband við Jóhann Hansen,
s. 845 0450 , fold@myndlist.is
LögregLumáL Ákæra hefur verið
gefin út á hendur lögreglumanni
fyrir gáleysisbrot við handtöku
manns við Hamborgarabúlluna
í Kópavogi síðastliðið vor. Þetta
staðfestir Kolbrún Benediktsdóttir
varahéraðssaksóknari.
Hinn handtekni fótbrotnaði í
aðgerðinni og samkvæmt fram-
burði vitna gekk lögregla fram af
mikilli hörku, kylfum hafi verið
beitt og hurð lögreglubíls skellt
margsinnis á fætur hans.
Í ákæru er vísað til ákvæða
almennra hegningarlaga um opin-
bera starfsmenn sem af ásetningi
eða stórfelldu gáleysi gæta ekki
lögmætra aðferða við úrlausn,
handtöku, hald, leit, fangelsan eða
framkvæmd refsingar og ákvæðis
um tjón á líkama eða heilbrigði
annars manns sem valdið er af
gáleysi annars manns. Brotin geta
varðað allt að fjögurra ára fangelsi.
Tveir voru kærðir vegna hand-
tökunnar í fyrrasumar en málið
var látið niður falla því ekki voru
taldar nægar líkur á sakfellingu.
Brotaþolinn kærði þá ákvörðun
til ríkissaksóknara sem fól héraðs-
saksóknara að taka mál á hendur
öðrum lögreglumannanna til
ákærumeðferðar.
Lögreglumaðurinn hafi í það
minnsta sýnt af sér slíkt gáleysi við
handtökuna að háttsemi hans geti
talist refsiverð.
Brotaþolinn krefst sjö milljóna
króna í skaða- og miskabætur. – aá
Lögreglumaður
ákærður vegna
handtöku
Handtakan var við Hamborgarabúll-
una í Kópavogi. Fréttablaðið/EyÞór
Akureyri Minnihlutanum í bæjar-
stjórn Akureyrar var boðin heil síðu-
auglýsing í kynningarritinu Akureyri
sem dreift var í lok vikunnar. Blaðið
er gefið út af Kaupmannafélagi
Akureyrar. Bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í minnihluta er í stjórn
samtakanna.
Akureyri gefur upplýsingar um
fyrirtæki, stofnanir og áhugaverða
staði í bænum. Gunnar Gíslason,
oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir
Kaupmannafélagið hafa óskað eftir
því við minnihlut-
ann að birta spurn-
ingarnar til meiri-
hlutans, flokkunum
að kostnaðarlausu.
Er auglýsingin
síðan á heilli síðu
í blaðinu með
merkjum minni-
hlutaflokkanna.
– sa
Gáfu minnihluta
auglýsingu
7 . j ú L í 2 0 1 8 L A u g A r D A g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð
0
7
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:1
8
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
5
-F
4
7
C
2
0
5
5
-F
3
4
0
2
0
5
5
-F
2
0
4
2
0
5
5
-F
0
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
8
s
_
6
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K