Fréttablaðið - 07.07.2018, Qupperneq 6
Auglýsing um próf til
endurskoðunarstarfa
Með vísan til laga nr. 79/2008 um endurskoðendur, er fyrirhugað að
halda próf til löggildingar til endur skoðunarstarfa í október 2018
sem hér segir:
Fyrri hluti mánudaginn 8. október
Seinni hluti miðvikudaginn 10. október
Prófin hefjast kl. 9 hvorn dag og standa til kl. 17.
Um efnissvið prófanna vísast til 3. gr. reglugerðar nr. 589/2009 um próf til
löggildingar endurskoðunarstarfa.
Próftökugjald er kr. 395.000.-
Væntanlegir prófmenn skulu skila umsóknum fyrir miðvikudaginn 8. ágúst
nk. til prófnefndar. Tilkynningar sendist formanni prófnefndar, Jóni Arnari
Baldurs, Urðarbraut 9, 200 Kópavogi.
Tilkynningu skulu fylgja nafn prófmanns og kennitala, heimilisfang, tölvu-
póstfang og staðfesting um að fullnægt sé skilyrðum 4. og 6. tl. 1. mgr. 2.
gr. laga nr. 79/2008. Próftakar fá þá sendan reikning fyrir prófgjaldinu sem
ber að greiða fyrir 1. september nk.
Prófnefndin mun boða til fundar með prófmönnum fyrir lok ágúst nk.
Reykjavík 7. júlí 2018.
Prófnefnd löggiltra endurskoðenda
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 199.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
sp
ör
e
hf
.
Fararstjóri: Ólafur Örn Haraldsson
Bærinn Seefeld er yndislegur alpabær sem hvílir í fögrum
fjallasal milli Wetterstein, Mieminger og Karwendelfjallanna
í Austurríki. Farnar verða skipulagðar hjólaferðir í frísku
fjallalofti með fararstjóra og innlendum staðarleiðsögumanni
sem í sameiningu munu velja hentugar leiðir hvern dag og
fræða okkur um staðhætti á leiðinni.
2.- 9. september
Hjólað um perlur Tíról
Landbúnaður Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins (RML) hefur hafið
forkönnun á því hvort bændur vilji
selja umframhey sem þeir gætu
átt til suðurhluta Noregs þar sem
miklir þurrkar hafa verið og hey-
fengur rýr. Fjölmargir bændur hafa
haft samband við Ráðgjafarstöðina
og sagst opnir fyrir því að selja hey.
Guðfinna Harpa Árnadóttir,
ráðunautur hjá RML, segir bændur
á Norður- og Norðausturlandi eiga
mikið til af fyrningum síðasta árs og
líkur séu á afar góðri heyuppskeru á
þessu ári.
Á móti kemur að markaður er
fyrir hey erlendis og þá helst í suður-
hluta Noregs.
„Við vildum vekja athygli bænda
á þessu þar sem eftirspurn er eftir
heyi þar. Því gætu bændur nýtt
stöðuna og selt hey,“ segir Guðfinna
Harpa. „Þetta er aðeins forkönnun
núna en við eigum eftir að fara í
gegnum matvælastofnanir beggja
þjóða til að fara áfram með málið.
En ef allt yrði okkur hagfellt þá gætu
bændur fengið eitthvað fyrir heyið.“
Spretta í fyrra var með besta móti
þar sem margir bændur byrjuðu
heyskap snemma og voru að heyja
fram eftir öllu hausti.
Margir bændur eiga því fyrningar
frá því í fyrra auk þess sem sprettan í
ár gæti orðið mun meiri en bændur
þurfa fyrir sinn búskap. Því er mikil-
vægt fyrir þá að geta fengið upp í
þann kostnað sem fylgir heyskap.
Nú þegar hefur þó nokkur hópur
sett sig í samband við RML.
„Það er töluvert til af heyi og á list-
anum hjá okkur núna erum við með
seljendur upp á nokkur þúsund hey-
rúllur. Hins vegar skiptir miklu máli
að heyið sé af túnum sem falla að
ákveðnum reglum, svo sem að það
má ekki vera á beittum túnum og
ekki á túnum sem borinn er skítur
á,“ segir Guðfinna Harpa.
„Einnig er mikilvægt að heyið
sé ekki af svæðum þar sem greinst
hefur garnaveiki síðasta áratuginn
eða af svæðum þar sem riða hefur
komið upp síðustu tuttugu ár. Það
lokar auðvitað ákveðnum svæðum,“
bætir Guðfinna Harpa Árnadóttir
við. sveinn@frettabladid.is
Skoða sölu á íslenskum
heyrúllum til Noregs
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins kannar nú hvort möguleiki sé á að selja hey
frá Íslandi til suðurhluta Noregs þar sem heyskortur er víða. Hér á landi eiga
margir bændur nóg af heyi fyrir næsta vetur. Margir bændur sýna málinu áhuga.
Sjúkdómar Tilraunir með nýtt bólu-
efni við HIV-sýkingu í ósmituðum
einstaklingum og öpum hefur borið
afar góða árangur. Vísindamönn-
unum tókst að framkalla heppilega
ónæmissvörun með því að gefa
þessum einstaklingum blöndu af
nokkrum lyfjum sem áður hafa gefið
góð raun í baráttunni við HIV. Lyfja-
kúrinn stöðvaði smit í öpum.
Það voru vísindamenn við
háskólasjúkrahúsið Beth Israel
Deaconess í Harvard sem stóðu að
rannsókninni en hún tók í senn
til 393 heilbrigðra einstaklinga og
apa. Þeir birtu niðurstöður sínar í
vísindaritinu The Lancet síðdegis í
gær og tilkynntu að til stæði að færa
prófanir með lyfjakúrinn á næsta
stig þar sem reynt verður að bólu-
setja einstaklinga í Suður-Afríku
fyrir HIV-smiti.
„Þessi rannsókn sýnir fram á það
að Ad26/Env, sem er blandaður
lyfjakúr við HIV, framkallar öflugt
ónæmisviðbragð í mönnum og
öpum. Um leið myndaði bóluefni
67 prósent vörn gegn smiti í öpum,“
segir Dan H. Barouch, prófessor við
læknadeild Harvard.
Bóluefnið byggir á erfðaefni
úr mismunandi kirnaröðum úr
nokkrum stofnum HIV-veirunnar.
Þannig er lyfjakúrinn hannaður
til að vernda fyrir smiti alls staðar
í heiminum. Þeir sem tóku þátt
í rannsókninni eru frá Rúanda,
Suður-Afríku, Úganda, Taílandi og
Bandaríkjunum. Allir þátttakendur
sýndu jákvæða svörun.
Rúmlega 30 ár eru síðan tilvist
HIV-veirunnar var staðfest og á
þeim tíma hafa vísindamenn um
allan heim unnið að þróun bóluefn-
is. Sú vinna hefur gengið hægt. Þessi
tiltekna rannsókn er sú fimmta í
sögunni sem færð verður á stig til-
rauna í mönnum.
„Út frá þessum niðurstöðum
hefur bóluefnið verið fært á næsta
stig lyfjatilrauna, þar sem verkun í
mönnum verður könnuð betur með
því að freista þess að koma í veg fyrir
HIV-smit í mönnum í Suður-Afríku,“
segir Barouch. „Við vonumst til að
geta birt niðurstöður í síðasta lagi
árið 2022.“ – khn
Hefja tilraunir með mögulegt bóluefni við HIV í mönnum
HIV-veiran. Bóluefni gegn henni byggir á blöndu lyfja. NordIcpHotos/Getty
VIðSkIPTI Skiptum á þrotabúi Peru
ehf. lauk í júní og var niðurstaðan
sú að 1,1 milljón fékkst greidd upp í
kröfur á hendur félaginu sem námu
tæplega 19,7 milljörðum króna.
Þetta kemur fram í auglýsingu í Lög-
birtingablaðinu.
Pera er dótturfélag Lykils fjár-
mögnunar, sem áður hét Lýsing,
og var stofnað árið 2007. Félagið
hélt utan um tryggingar vegna lán-
veitinga Deutsche Bank til Lýsingar-
samstæðunnar upp á tugi milljarða
króna. Kröfuréttindin sem voru á
undirliggjandi samningum hjá Lýs-
ingu voru þannig framseld til Peru.
Lánin voru endurfjármögnuð árið
2013 og dró þá verulega úr starfsemi
félagsins.
Í ársreikningi Lykils fyrir árið
2017 segir að í desember hafi stjórn
Peru sent beiðni til dómstóla þess
efnis að félagið yrði tekið til slita-
meðferðar með hliðsjón af ógjald-
færni félagsins. Enn fremur segir að
yfirfæranlegt tap Lykils, þá Lýsingar,
á árunum 2010, 2011 og 2012, sem
nam tæplega 16,9 milljörðum í
heildina, sé komið frá Peru og falli
niður við gjaldþrot félagsins. Hins
vegar myndist skattaleg gjaldfærsla
vegna tapaðrar kröfur Lykils á hend-
ur Peru að fjárhæð 18,5 milljarðar
króna. – þfh
Smáaurar fengust upp í risakröfur á félag Lýsingar
Mikilvægt er sagt að hey til útflutnings sé ekki af svæðum þar sem garnaveiki hefur greinst. FréttaBlaðIð/steFáN
Kröfur í Peru ehf., dóttur-
félag Lýsingar, námu hátt í 20
milljörðum króna en aðeins
fékkst greidd 1,1 milljón
króna úr þrotabúinu.
7 . j ú L í 2 0 1 8 L a u G a r d a G u r6 f r é T T I r ∙ f r é T T a b L a ð I ð
0
7
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:1
8
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
6
-1
B
F
C
2
0
5
6
-1
A
C
0
2
0
5
6
-1
9
8
4
2
0
5
6
-1
8
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
8
8
s
_
6
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K