Fréttablaðið - 07.07.2018, Síða 10

Fréttablaðið - 07.07.2018, Síða 10
9. Vestur-Armenía Tyrkir búsettir í Armeníu. Hafa lengi farið halloka í landinu. 10. Tamil Eelam Aðskilnaðarhreyfing Tamíla sem vilja skilja sig frá Srí Lanka. 11. Tíbet Tíbeta þekkja flestir en þjóðin hefur lengi verið undir hæl Kína. 1 2 3 4 5 1. Cascadia Íbúar á vestur- strönd BNA sem vilja sjálfstæði. 2. Mön Íbúar eyjarinn- ar Mön. Tilheyrir Bretlandi. 3. Padanía Nyrstu héröð Ítalíu. Hluti vill skilja sig frá. 4. Kabylia And- spyrnu- hérað í Alsír. Staðið í styrjum við ríkið. 5. Kárpátalja Fólk af ungversk- um upp- runa í Úkraínu. 6. Matabeland Fólk frá Matabe, einu frjóasta héraði Simbabve, sem vill aðskilnað. 7. Seklerland Fólk af ungverskum uppruna búsett í Sekler í Rúmeníu. 8. Norður-Kýpur Fólk af tyrkneskum uppruna sem búsett er á Kýpur. 16. Barawa Land- flótta Sómalar búsettir í Bretlandi 15. Túvalú Póló- nesar á eyju mitt á milli Havaí og Ástralíu. 14. Sameinað- ir Kóreumenn í Japan Fólk frá Kóreu sem hefur flúið til Japan. 13. Panjab Múslimar sem eiga rætur að rekja til Punjab-héraðs. 12. Abkasía Sjálf- stjórnar- hérað í Georgíu. Vilja sjálfstæði. 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 Þátttökuþjóðir á heimsmeistaramóti ConIFA 2018 KNATTSPYRNA Þegar þetta er ritað er fyrri hluta fjórðungsúrslita á HM í Rússlandi lokið og aðeins rúm vika í að nýir heimsmeistarar verði krýndir. Fyrir mánuði fór hins vegar fram annað heimsmeistaramót í knattspyrnu sem fékk öllu minni athygli. Í borginni Luleå í norðurhluta Svíþjóðar eru samtökin ConIFA með höfuðstöðvar. Þau voru stofn- uð árið 2013 til að vera regnhlífar- samtök fyrir ríki eða þjóðarbrot sem ekki eiga aðild að Alþjóða- knattspyrnusambandinu. „Markmið okkar er að veita knattspyrnumönnum og ríkjum, sem eru ekki hluti af FIFA, tæki- færi til að leika knattspyrnu með landsliði sínu og vaxa þannig og dafna sem fótboltamenn og mann- eskjur. Flestir meðlimir okkar eiga ekki þann möguleika að spila með landsliði eða eru ekki gjaldgengir til að leika með neinu ríki sem á aðild að FIFA,“ segir Þjóðverjinn Sascha Düerkop, formaður ConIFA. Sem stendur eru aðildarríkin 47 talsins frá öllum heimsálfum að Suður-Ameríku undanskilinni. Að baki hverju og einu þeirra er oft mikil saga um baráttu þjóðar- brota við ofríki móðurríkisins eða stríðsátök heima fyrir. Stærstur hluti aðildarfélaga ConIFA kemur frá Evrópu en í þeim hópi má nefna lönd á borð við Mónakó, Abkasíu, Ellan Vannin (eyjuna Mön), tyrk- neska hluta Kýpur og Kárpátalja. Frá Asíu má nefna írska Kúrda, Róhingja, Sameinaða Kóreumenn í Japan og Tíbet. Til viðbótar má nefna til sögunnar Eyjaálfuríkin Túvalú og Kíríbatí og í Afríku meðal annars Vestur-Sahara, Darfúr og Sansibar. Ár hvert stendur ConIFA fyrir stórmóti í knattspyrnu. Álfumót eru haldin á oddatöluárum en heims meistaramót á sléttum ártöl- um. Fyrsta heimsmeistaramótið fór fram í Östersund í Svíþjóð árið 2014 en gestgjafar voru þá Samar. Nice- hérað stóð uppi sem sigurvegari. Héraðið tók ekki þátt að tveimur árum liðnum og var mótið því haldið í Abkasíu, eða Georgíu eftir því hvernig á málið er litið. Þar voru það heimamenn sem urðu hlut- skarpastir eftir vítaspyrnukeppni í úrslitaleiknum gegn Panjab-héraði. Mótið í ár var hýst af Barawa en það er hérað í Sómalíu. Barawíska knattspyrnusambandið saman- stendur af Sómölum búsettum í Bretlandi sem hafa neyðst til að flýja heimaland sitt vegna borgara- styrjaldar, óöryggis og fátæktar. Mótið var haldið á fimm leik- vöngum í London en í fyrsta skipti í sögu ConIFA var fenginn styrkt- araðili fyrir mótið auk þess sem ConIFA tókst að selja sýningarrétt- inn fyrir það. Írska veðmálafyrir- tækið Paddy Power var opinber styrktaraðili og því fylgdu nokkrar breytingar á reglum knattspyrn- unnar. Til að mynda gátu dóm- arar leiksins lyft grænu spjaldi, auk hinna hefðbundnu gulu og rauðu, en það fór á loft ef leikmaður gerð- ist sekur um að dýfa sér. Afleið- ingar þess voru að nauðsynlegt var að skipta leikmanninum út af þá þegar. Dómarar mótsins voru ekki Heimsmeistaramótið sem enginn sá Tíbetar riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni gegn Abkasíu í fyrstu umferð en þeir gátu þó brosað í leikslok. MYND/CONIFA Jóhann Óli Eiðsson johannoli@frettabladid.is af verri endanum en þeirra fremstur var vafalaust Mark Clattenburg sem getið hafði sér gott orð sem dómari í ensku úrvalsdeildinni. Sextán þjóðir unnu sér inn þátt- tökurétt á mótinu en tvær heltust úr lestinni áður en það hófst. Eyjaálfu- ríkið Kíríbatí náði ekki að skrapa saman fjármunum til að ferðast á mótið og tók Túvalú því þess stað. Landslið Felvidek, sem samanstend- ur af fólki af slóvöskum uppruna í Ungverjalandi, dró sig einnig úr keppni og í staðinn kom Kárpatalja, Ungverjar í vesturhluta Úkraínu. Mótið í ár var ekki laust við dramatík. Ellan Vannin, sem var taliið sigurstranglegt fyrir mót, dróst í A-riðil ásamt Cascadíu, Tamil Eelam og gestgjöfunum í Barawa. Liðið vann fyrstu tvo leiki sína og var í efsta sæti riðilsins fyrir lokaleikinn gegn Barawa. Sá leikur tapaðist 2-0 en það þýddi að Cas- cadía og Barawa komust upp fyrir Mönverja á markatölu. Liðin höfðu unnið hvort annað innbyrðis og allir unnu lánlausa Tamíltígrana. Eftir leikinn kom í ljós að Barawa hafði kallað inn í hóp sinn nýjan leikmann milli leikja vegna meiðsla. ConIFA gaf grænt ljós á það þrátt fyrir að þátttökuþjóðum hefði borið að tilkynna endanlegan hóp áður en mótið hófst. Hinum liðunum fimmtán var ekki tilkynnt um þessa breytingu. Mönverjar mótmæltu harðlega en það skilaði engu nema því að þeir létu sig hverfa af mótinu án þess að leika fleiri leiki. Sigurinn skilaði Barawa leik í fjórðungsúrslitum gegn Norður- Kýpur þar sem liðið steinlá, skor- aði ekki mark en fékk á sig átta. Tyrkirnir lögðu Padaníu í undanúr- slitum og mættu þar viðbótarþjóð- inni Kárpatalja. Liðið hafði lagt Cascadíu og Seklerland að velli á leið sinni í úrslitin. Norður-Kýpur þótti sigurstrang- legra fyrir leikinn en liðið hafði lent í þriðja sæti árið 2016. Kárpá- talja var hins vegar að leika á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. Liðin höfðu verið saman í riðli í upphafi móts og gerðu þá jafntefli. Staðan í úrslitaleikslok var einnig markalaus og þurfti að grípa til vítaspyrnu- keppni til að ákvarða sigurvegara. Voru það nýliðarnir sem höfðu betur, nýttu þrjár spyrnur en Norð- urkýpverjar aðeins tvær. Áhugamenn um knattspyrnu smáríkja geta fylgst spenntir með Evrópumótinu á næsta ári. Ekki liggur fyrir hvar það mun fara fram. Heimsmeistaramótið í Rússlandi er nú í fullum gangi. Annað slíkt fór fram í London fyrir mánuði þar sem mikil dramatík var og nýjung- ar kynntar til sögunnar. Flestir meðlimir okkar eiga ekki þann möguleika að spila með landsliði eða eru ekki gjaldgengir til að leika með neinu ríki sem á aðild að FIFA. Sascha Düerkop, formaður ConIFA 47 eiga aðild að samtökum þeirra sem ekki eru í FIFA. 7 . J ú l í 2 0 1 8 l A U G A R D A G U R10 F R é T T I R ∙ F R é T T A B l A ð I ð 0 7 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 8 F B 0 8 8 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 6 -2 A C C 2 0 5 6 -2 9 9 0 2 0 5 6 -2 8 5 4 2 0 5 6 -2 7 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 8 8 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.