Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.07.2018, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 07.07.2018, Qupperneq 12
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Gunnar Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Þeir þurrka upp tekjur smærri miðlanna og freista þess að þagga niður í þeim. Varla stuðlar það að lýðræðislegri umræðu. Þvert á móti. Veðrið hefur leikið íbúa Suðvesturlands grátt þetta sumarið. Meðalhiti í júní var á höfuðborgar-svæðinu nærri tveimur gráðum undir meðaltali síðustu tíu ára. Júnímánuður hefur ekki verið jafnkaldur síðan 1997. Sólskin hefur ekki verið minna síðan 1914. Ekkert lát virðist á harðindunum en roki og rigningu er spáð út júlí. „Það má eiginlega segja að íslenska sumarið sé komið í langt sumarfrí,“ sagði veðurfræðingurinn Páll Bergþórsson í samtali við DV.is. En fátt er svo með öllu illt að ekki hafi það einhvern tímann verið verra. Nú þegar Íslendingar standa bug- aðir gagnvart náttúruöflunum, sólaráburðurinn nálgast síðasta söludag og nýju sandalarnir eru búnir að bíða svo lengi í skókassanum að þeir eru við það að detta úr tísku, má leita styrkingar í einu fyrsta sjálfshjálparriti Íslandssögunnar. Er Ísland byggilegt? Í lok átjándu aldar spurðu Íslendingar sig eftirfarandi spurningar af fullri alvöru: Er Ísland byggilegt? Spurningin var svo sannarlega réttmæt. Alla öldina hafði landið, örlögin og náttúran gert sitt besta til að koma íbúunum fyrir kattarnef. Hannes Finnsson, biskup í Skálholti, ákvað að skoða málið. Árið 1703 var gert manntal á Íslandi. Er manntalið elsta þjóðarmanntal sem varðveist hefur í heiminum. Árið 1703 voru Íslendingar 50.358 að tölu. Þrjú áföll áttu hins vegar eftir að höggva stórt skarð í fólks- fjöldann: – Bólusótt: Á árunum 1707 til 1709 lést fjórðungur þjóðarinnar úr bólusótt. Ef fjórðungur þjóðarinnar félli frá í dag væru það rúmlega 85.000 einstaklingar. – Kuldi: Á árunum 1751 til 1758 geisaði hungurs- neyð vegna óvenjumikils kulda, hafíss og lítils fiskafla. Íslendingum fækkaði um tæplega sex þúsund manns. – Eldgos: Árið 1783 hófst eitt mesta eldgos Íslands- sögunnar: Skaftáreldar. Ekki var nóg með að hraun- kvikan legði tugi bæja í eyði heldur olli eitruð gjóskan mikilli mengun um allt land og gífurlegum búfjár- dauða. Aftur fengu Íslendingar að svelta. Talið er að tíu þúsund manns eða fimmtungur þjóðarinnar hafi látið lífið í móðuharðindunum svokölluðu, sem drógu nafn sitt af móðunni sem lá yfir landinu. Svo slæmt var ástandið undir lok átjándu aldar að til tals kom að flytja alla Íslendinga á brott til Danmerkur. Voru hugmyndir þess efnis skoðaðar af fullri alvöru; þær voru rannsakaðar af embættismönnum, um þær voru skrifaðar álitsgerðir og var kostnaðurinn við mannflutn- ingana kannaður. Áfangastaðirnir sem komu til álita voru Jótlandsheiðar, Finnmörk og Kaupmannahöfn. Hvernig fór um sjóferð þá vitum við öll; ekkert ykkar er að lesa þessi skrif undir berum himni á kaffihúsi á Strikinu yfir smurbrauði og Gammel dansk raulandi „vi er røde, vi er hvide, vi står sammen, side om side“. En þótt ekkert hafi orðið af sjóferðinni til Danmerkur færði átjánda öldin Íslendingum óvænt innlegg í lífs- baráttuna. Þetta reddast Er Ísland byggilegt? Hannes Finnsson biskup birti niðurstöður athugunar sinnar árið 1796 í ritinu Mann- fækkun af hallærum. Í bókinni er eymd íslenskrar þjóðar rakin frá landnámi. Ítrekaðar hamfarir túlkar Hannes þó ekki sem ábendingu um að Íslendingum væri betur borgið í Köben með pylsu í annarri hendi, Tuborg í hinni og Kim Larsen í eyrunum. Jú, þjóðin hafði gengið í gegnum mikil áföll vegna harðinda og náttúruhamfara, viðurkenndi Hannes. En henni hafði alltaf tekist að rétta við aftur: „Ísland fær tíðum hallæri, en ekkert land í Norðurálfunni er svo fljótt að fjölga á ný manneskjum, og bústofni sem það, og er því eigi óbyggjandi.“ Skilaboð bókar Hannesar, sem hlýtur að teljast með fyrstu sjálfshjálparbókum Íslandssögunnar, útleggjast svo á nútímamáli: Krakkar, þetta reddast. Næst þegar skólpið flæðir um sumarbústaðinn vegna rigninga, klæðast þarf skíðaúlpu á golfvellinum og sum- arlaukarnir í garðinum blómstra ekki má að minnsta kosti gleðjast yfir einu: Þú ert ekki uppi á 18. öld. Fyrsta sjálfshjálparbók hrakinnar þjóðar Vaxandi skilningur virðist vera meðal ráða-manna um að ekki verði unað við óbreytta stöðu á fjölmiðlamarkaði. Slíkt er löngu tíma-bært, enda hefur framganga Ríkisútvarpsins gegn frjálsu fjölmiðlunum fengið að viðgang- ast alltof lengi. Nýleg dæmi eru af auglýsingasölu Ríkisútvarpsins í tengslum við Heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu. Ríkisútvarpið lét ekki duga að einoka nánast auglýsinga- markaðinn á meðan á keppninni stendur heldur seldi auglýsingar með þeim hætti að tengja þær viðburðum langt fram á haustið. Afleiðingarnar eru því ekki einungis þær að þrengja að tekjumöguleikum einkamiðlanna yfir blásumarið, heldur reyndi ríkisrisinn að einoka markaðsfé fyrirtækja í landinu til enn lengri tíma. Áhrifa hefur auðvitað gætt í einkageiranum, sérstaklega hjá smærri miðlum sem síður þola höggið. Forsvarsmenn bæði Hringbrautar og N4 hafa lýst þessari stöðu vel. Auðvitað er þetta ekki boðlegt. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, lýsir því að lögboðið hlutverk Ríkisútvarpsins sé meðal annars að stuðla að lýð- ræðislegri umræðu. Vitaskuld gerir Ríkisútvarpið það með fréttaflutningi sínum, og oft á tíðum mjög vel. Framganga stjórnenda RÚV á auglýsingamarkaði er hins vegar í hróplegu ósamræmi við þetta hlutverk. Þeir þurrka upp tekjur smærri miðlanna og freista þess að þagga niður í þeim. Varla stuðlar það að lýðræðislegri umræðu. Þvert á móti. Ríkisútvarpið nýtur í dag ríflega fjögurra milljarða króna forskots á einkamiðlana í formi beinharðra ríkisfram- laga. Því til viðbótar aflar miðillinn svo rúmlega tveggja milljarða með auglýsingasölu. Umræðan á það til að snúast um að ef Ríkisútvarpið færi út af auglýsingamarkaði yrði að bæta því tekjumissinn. Hvers vegna? Í fyrsta lagi myndu útgjöld sparast þar sem ekki þyrfti að halda úti auglýsingasöludeild. Í öðru lagi þá benda öll sólarmerki til þess að talsvert væri hægt að hagræða í starfsemi RÚV. Í þeim efnum nægir að bera RÚV saman við stærsta einkaaðilann, Vodafone. Afköst síðar- nefnda félagsins í sambærilegri starfsemi eru margföld og mun minna til kostað bæði í mannafla og öðru. Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hefur nú boðað að tillögur til úrbóta verði kynntar með haustinu. Aðal- lega virðast tillögurnar eiga að snúast um endurgreiðslu á kostnaði vegna framleiðslu á fréttum og fréttatengdu efni. Lilja vísar þessu til stuðnings í norrænar fyrirmyndir, en stuðningur sem þessi hefur tíðkast í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Vonandi verður eitthvað úr loforðunum í þetta sinn. Einkamiðlarnir sinna nefnilega lögbundnu hlutverki RÚV ekki síður en stofnunin sjálf. Æskilegast væri hins vegar að aðgerðirnar gerðu hvort tveggja í senn: styrktu starfsemi einkamiðlanna, og tækju fyrir þátttöku RÚV á auglýsinga- markaði. RÚV gæti þá einbeitt sér að lögbundnu hlutverki sínu. Ljós í gangaendanum Flísabúðin Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is 30% afmælisafsláttur á Heliosa hiturum HELIOSA hitarar henta bæði innan- og utandyra. Helstu kostir HELIOSA hitara eru: • Hitna strax • Vindur hefur ekki áhrif • Vatnsheldir og menga ekki Margar gerðir til á lager. Finndu okkur á facebook Flísabúðin 30 ÁRA 2018 7 . j ú l í 2 0 1 8 l A U G A R D A G U R12 s k o ð U n ∙ F R É T T A B l A ð i ð SKOÐUN 0 7 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 8 F B 0 8 8 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 6 -1 7 0 C 2 0 5 6 -1 5 D 0 2 0 5 6 -1 4 9 4 2 0 5 6 -1 3 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 8 8 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.