Fréttablaðið - 07.07.2018, Síða 17

Fréttablaðið - 07.07.2018, Síða 17
Bifreiðagjöldin eru komin í pósthólfið þitt á island.is Stefnum saman á stafrænt Ísland Greiðsluseðlar fyrir bifreiðagjöld einstaklinga birtast nú eingöngu á rafrænu formi. Þú nálgast þá í pósthólfinu þínu á island.is og um leið er krafa stofnuð í netbanka. Með þessu má spara um 65 milljónir króna og fimm tonn af pappír á hverju ári. Gjalddagi bifreiðagjalda er 1. júlí og eindagi er 15. ágúst. Vilt þú útprentaðan seðil? Hafðu samband við Þjónustuver Tollstjóra í 560 0300 eða á fyrirspurn@tollur.is Fótbolti Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, kvaðst vilja taka sér eina til tvær vikur til þess að hugsa málin hvað varðar framtíð sína eftir að liðið tapaði fyrir Króatíu í loka- umferð riðlakeppninnar á þriðju- daginn í síðustu viku. Samningur Heimis við Knatt- spyrnusamband Íslands, KSÍ, var til loka heimsmeistaramótsins og nú er spurning hvað gerist í þjálfara- málum liðsins í framhaldinu. KSÍ er ekki búið að setja neinn tímaramma á ákvörðun Heimis að sögn Guðna Bergssonar, formanns KSÍ. „Það er í raun fátt að frétta og staðan enn sú sama. Það er að við séum að gefa Heimi andrými til þess að hugsa málið og við erum að kortleggja stöðuna. Ég get ekki sagt meira á þessum tímapunkti. Við höfum ekki sett neinn tímaramma eða pressu, en þetta skýrist líklega á einhvern hátt í næstu viku,“ sagði Guðni þegar Fréttablaðið tók stöð- una á viðræðum við Heimi í gær. Næsta verkefni íslenska liðsins er fyrsti leikur í Þjóðadeildinni sem er ný keppni sem evrópska knatt- spyrnusambandið, UEFA, hefur settur á laggirnar. Hefur Ísland leik gegn Sviss ytra þann 6. september næstkomandi en ásamt Sviss er Belgía með Íslandi í riðli. Leiða má líkur að því að góður árangur íslenska landsliðsins undanfarin ár hafi vakið áhuga á kröftum Heimis og honum standi til boða fleiri verkefni en að halda áfram þjálfun íslenska liðsins. – hó Landsliðsþjálfarinn liggur áfram undir feldi Hjólreiðar Hin árlega Tour De France hjólreiðakeppni hefst í Noirmoutier í Frakklandi í dag en þessi stærsta hjólreiðakeppni heims stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Hjóla keppendur rúmlega 3.300 kílómetra á þessum þremur vikum og fá aðeins tvo hvíldardaga. Er þetta í 105. skiptið sem þessi keppni fer fram en augu allra verða á Bretanum Chris Froome sem hefur unnið keppnina þrisvar í röð og fjórum sinnum á síðustu fimm árum. Aðeins Eddy Merckx frá Belg- íu hefur unnið Tour De France oftar eða fimm sinnum og getur Froome jafnað við hann í ár. Hefur Froome verið í sviðsljósinu undanfarið eftir að lyfjaeftirlitið ákvað að rannsaka nánar sýni úr honum sem tekið var á Spáni í sept- ember. Eftirlitið gaf út tilkynning um daginn um að eftir nánari rann- sókn hefði ekkert ólöglegt fundist en baulað hefur verið á Froome undanfarna mánuði eftir að ákveðið var að skoða sýnið nánar. – kpt. Tour de France hefst í dag Tekst Froome að vinna sinn fimmta titil í Frakklandi? NordicPhoTos/geTTy heimir þungt hugsi á blaðamanna- fundi Íslands í rússlandi á dögunum. FréTTablaðið/ eyþór GolF Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, komst í gegnum niðurskurðinn á Prague Golf Challenge í höfuðborg Tékk- lands í gær en Axel Bóasson, GK, náði ekki niðurskurði. Lék Birgir Leifur annan hring mótsins á fjórum höggum undir pari og slapp í gegnum niðurskurð- inn á þremur höggum undir pari eftir að hafa leikið á einu höggi yfir pari fyrsta daginn. Var hann á pari eftir átta holur með sex pör, fugl og skolla en þá setti hann í flug- gír. Fékk hann fjóra fugla á næstu fimm holum og lauk hringnum á því að fá fimm pör í röð. Er þetta í fjórða sinn á tímabilinu sem Birgir Leifur nær niðurskurði á Áskorendamóta- röð Evrópu en besti árangur hans er sjöunda sætið, einnig í Prag, í lok maí. - kpt Birgir Leifur komst áfram í Tékklandi S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð 17l a U G a r D a G U r 7 . j ú l í 2 0 1 8 0 7 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 8 F B 0 8 8 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 5 -F 9 6 C 2 0 5 5 -F 8 3 0 2 0 5 5 -F 6 F 4 2 0 5 5 -F 5 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 8 8 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.