Fréttablaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 26
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: NetApp NetApp er 25 ára gamalt Fortune 500 fyrirtæki sem er stofnað og með höfuð- stöðvar í Silicon Valley. NetApp er í raun hugbúnaðarfyrirtæki sem þróar stýrikerfi fyrir storage lausnir og fór síðar út í að búa til vélbúnað með. NetApp hefur ítrekað verið valið besti vinnu- staður í Silicon Valley og er þekkt fyrir að hugsa mjög vel um sína starfsmenn. Hjá NetApp starfa um 12.000 manns á heimsvísu og hér á Íslandi starfa um 55 og fer ört fjölgandi. Okkur hefur tekist að halda í þennan ótrúlega starfsanda sem ríkti hjá okkur í Greenqloud og var að stórum hluta ástæðan fyrir þeim árangri sem við náðum,“ segir Jónsi. „Með kaupum NetApp á Greenqloud höfum við fengið rosalega gott bakland sem veitir okkur frelsi til að gera mun meira saman sem teymi og ef eitthvað er þá er hugsað jafnvel enn betur um okkar starfsfólk en við sem startup fyrirtæki höfðum kannski efni á að gera.“ Nú hefur hefur verið fjallað mikið um kaup NetApp á Greenqloud, hvernig kom það til? „Eins og flestar sölur á startup fyrirtækjum þá gerast þær ekki yfir nótt og það liggur gríðarleg vinna að baki sem felst ekki bara í þróun á hugbúnaði heldur að koma vörunni og fyrirtækinu á heim- skortið. Við byrjuðum til dæmis á samstarfsverkefni með NetApp og Microsoft um 4 mánuðum áður en sölu- eða kaupferlið byrjaði, sem gekk mjög vel og endaði á því að þeir létu í ljós áhuga á að kaupa Greenqloud. Við vorum í raun byrjaðir á samstarfsverk- efnum með mörgum af stærstu tæknifyrirtækjum heims á þessum tíma sem segir mörg orð um gæði vörunnar, starfsfólksins okkar og þeirrar sýnar sem við vorum með á framtíðina.“ Einstakt tækifæri að vinna hjá NetApp „Við erum að stækka hérna heima mjög hratt og erum með 27 stöður opnar í dag. Það eru kannski ekki mörg fyrirtæki hérna heima sem eru að vinna jafn náið með langstærstu tæknifyrirtækjum heims eins og Google, Microsoft og Amazon. Við erum að vinna og þróa ofan á Kubernetes og skrifum stóran hluta af okkar kóða í for- ritunarmálinu GO. Lausnin sem við skrifuðum sem Greenqloud er undirstaðan í NetApp Cloud Volumes sem er núna keyrandi sem „1st party service“ hjá öllum stærstu Public Clouds, þar sem okkar forritarar fara reglulega í svokölluð „codejam sessions“ eða „peer programming“ með for- riturum hjá þessum fyrirtækjum, annaðhvort til Silicon Valley eða Seattle.“ Í hverju felst helsti munurinn á að starfa fyrir nýsköpunarfyrirtæki og núna amerískt risafyrirtæki? „Það sem við höfum lagt ríka áherslu á er að halda í þetta startup hugarfar hjá okkur. Þar sem við virkilega hvetjum okkar starfsfólk í að vera mjög skapandi og gagn- rýnið í allri sinni nálgun og vinnu. Opin samskipti og góður andi er okkur gríðarlega mikilvægur. Síðan bætist að sjálfsögðu við þetta bakland sem gerir okkur kleift að bjóða upp á mjög svo samkeppnis- hæf laun og fríðindi sem eru langt frá því að vera algeng á Íslandi. Innleiðing Greenqloud í NetApp hefur gengið vonum framar og okkur finnst í raun og veru magnað hvernig allir hjá NetApp eru til í að leggja sig fram til að tryggja að allt gangi eins snurðulaust fyrir sig og hugsast getur. Það eru alltaf viðbrigði að fara frá litlu startup fyrirtæki yfir í Fortune 500 fyrirtæki þegar það kemur að skrif finnsku og ferlum. En það hefur komið okkur á óvart hversu þægileg sú breyting var og hversu fljótt okkar starfsfólk aðlagaðist og tók upp nýja siði. Það sem hefur líka klárlega hjálpað okkur er að hjá Greenqloud vorum við mjög fjölþjóðlegt umhverfi og starfs- fólk með ólíkan og mismunandi bakgrunn. Við höfum alltaf fagnað fjölbreytileikanum og höldum áfram að gera það.“ Hvernig lítur framtíðin út? „Það er gríðarlega bjart fram undan hjá okkur og í nógu að snúast. Við erum að vinna í mjög stórum verkefnum þar sem við fáum að vera og erum mjög leið- andi í. Við erum til dæmis ásamt öllu hinu að vinna í multi cloud application layer sem okkur finnst mjög spennandi að vera að vinna í og kannski sérstaklega einhverju sem kemur alltaf til að nýtast þeim sem vinna í þróun eins og okkur sjálfum. Við höfum öll deilt þeirri sýn að við getum virkilega betrum- bætt og einfaldað heildarþróunar- ferli fyrirtækja með þeim lausnum sem við höfum byggt og stefnum ótrauð í átt að þeim draumi. Það er rosaleg viðurkenning að okkar platform hafi verið valið af öllum svokölluðum „hyper scalers” og sú staðreynd að við höfum fengið það frelsi til að vera jafn skapandi í okkar nálgun á þessi verkefni eins og við vorum þegar við vorum start up fyrirtæki. Það hefur verið einstaklega gaman fyrir mig persónulega að sjá okkar starfsfólk virkilega springa út og taka að sér veigamikil hlut- verk á heimsvísu í þessu virkilega flotta fyrirtæki. Ég held að við höfum öll lært gríðarlega mikið á þessu ferli og kannski er það mikilvægasta að eftir stendur mjög samhuga teymi sem vinnur vel saman og veit núna að það stendur jafnfætis þeim fremstu í heimi. Það hefur líka sýnt sig að NetApp eru óhræddir við að veita þeim sem skara fram úr stöðu- hækkanir algjörlega óháð hvar í heiminum þeir eru staðsettir. Við erum ekki bara með forritara og devops (SRE, Site Reliability Engineering) stöður heldur hefur marketing deild okkar svo sannar- lega sett sinn svip á NetApp og leiðir stór verkefni og svarar beint til höfuðstöðvar NetApp í Silicon Valley. Það hefur að sjálfsögðu ekki skemmt fyrir að hlutabréf í Bjartir tímar framundan hjá NetApp Jónsi Stefánsson, forstjóri hugbún- aðarfyrirtækisins Greenqloud, leiddi fyrirtækið í sameiningu við tækniris- ann NetApp. Hann er ákaflega hreyk- inn af því hversu samruninn tókst vel og lítur framtíðina björtum augum. Jónsi Stefánsson forstjóri. NetApp hafa meira en tvöfaldast síðan við vorum keypt og við að sjálfsögðu höfum spilað okkar hlutverk í þeirri jákvæðu þróun.“ Af hverju að sækja um hjá NetApp? „Eins og ég sagði áðan þá er þetta tækifæri sem gefst ekki svo auðveldlega á Íslandi, eða alla- vega hingað til. Að fá tækifæri til að vinna að og þróa brautryðjandi tækni sem stærstu tæknifyrirtæki heims hafa kosið að nota er ein- stakt. Það að þroskast og dafna í starfi hjá svona fyrirtæki er gríðar- lega lærdómsríkt og fólk býr að því í langan tíma. Við tökum fagnandi á móti öllum umsóknum og þeim sem vilja vinna hjá fyrirtæki sem verðlaunar dugnað og metnað,“ segir Jónsi. Ég held að við höfum öll lært gríðarlega mikið á þessu ferli og kannski er það mikilvægasta að eftir stendur mjög samhuga teymi sem vinnur vel saman og veit núna að það stendur jafnfætis þeim fremstu í heimi. 2 KYNNINGARBLAÐ 7 . J Ú L í 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RNEtApp Á íSLANdI 0 7 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 8 F B 0 8 8 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 6 -3 4 A C 2 0 5 6 -3 3 7 0 2 0 5 6 -3 2 3 4 2 0 5 6 -3 0 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 8 8 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.