Fréttablaðið - 07.07.2018, Side 27
Það er mikið sem
við getum lært af
þeim hér heima en líka
fjölmargt sem við getum
miðlað.
Ég tók við nýju starfi sem vöru-markaðsstjóri (Director of Product Marketing) fyrir skýja-
lausnir NetApp á heimsvísu um
miðjan júní. Ég fæ þar mjög spenn-
andi tækifæri í nýrri og ómótaðri
stöðu að markaðssetja framtíð
NetApp á ört vaxandi markaði
skýjalausna. Það er mikill munur frá
því að vinna í Greenqloud þar sem
ég hafði mörg hlutverk, sem fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar
og markaðsmála og hafði auk þess
yfirumsjón með lögfræðisviði,“ segir
Soffía Theódóra Tryggvadóttir en
hún fer fyrir markaðsteymi NetApp
á Íslandi og í Bandaríkjunum sem er
staðsett í fimm borgum.
Soffía mótar og leiðir ‘go-to-
mark et’ stefnu fyrir skýjalausnir
(cloud products) fyrirtækisins
en teymið vinnur meðal annars í
samvinnu við Google, Amazon og
Microsoft við að koma vörum fyrir-
tækisins á framfæri í skýjaþjónust-
um (public clouds) fyrirtækjanna.
Aðspurð segir Soffía margt ólíkt
með nálgun íslenskra fyrirtækja og
bandarískra stórfyrirtækja í mark-
aðsmálum. Meira fjármagni sé veitt
til markaðsmála ytra en skapandi
nálgun að markaðsmálum einkenni
íslensk fyrirtæki þó meira.
„Allt er stærra í sniðum úti og
gríðarlegir fjármunir lagðir í mark-
aðsmál og því engu minni ábyrgð
lögð á markaðsdeildina en söluna
um að ná tilætluðum árangri og
sækja tilvonandi viðskiptavini. Það
er mikið sem við getum lært af þeim
hér heima en líka fjölmargt sem við
getum miðlað og þá einkum þegar
kemur að skilvirkni og nútímalegri
og skapandi nálgun að viðfangs-
efnum,“ segir Soffía.
„Það er mín upplifun að það er
meiri virðing borin fyrir markaðs-
málum og mikilvægi þeirra í vel-
gengni fyrirtækja í Bandaríkjunum
en almennt hér heima og mun
meira fjármagn lagt í markaðsmál
í bandarískum fyrirtækjum. Með
því að greina t.d. ársreikninga bæði
NetApp og stórra fyrirtækja hér
á landi má sjá eftirtektarverðan
mun á hlutfalli tekna sem veitt er í
markaðsmál úti versus hér heima,
sem lítur út fyrir að skila sér í meiri
framlegð á hvern starfsmann.”
Soffía segir bakgrunn sinn úr
sprotaumhverfinu á Íslandi nýtast
vel í nýju starfi. Skýjalausnir séu
tiltölulega ný áhersla innan NetApp
og þar geti fyrirtækið vaxið hvað
mest. Starfið sé umfangsmikið og
afar spennandi tímar framundan.
„Ég kem að sjálfsögðu inn með
ákveðnar hugmyndir um breytingar
en það tekur tíma að ná utan um
umfang starfsins þar sem þetta er á
allt öðrum skala en hérna heima og
teymið mjög dreift. Eins og er þá er
þetta eins og ‘að drekka úr bruna-
slöngu’, magnið af þeim upplýsing-
um sem ég þarf að viða að mér, en
það er mér mikilvægt að komast vel
inn í núverandi markmið, verkefna-
stöðu og stefnu starfsmanna sem
ég tek við til að geta komið með vel
upplýsta stefnubreytingu.
Komandi úr sprotaumhverfi
þar sem taka þarf ákvarðanir og
framkvæma hratt auk þess að hafa
marga hatta þá skiptir skilvirkni,
réttu vinnutólin og stuttar boð-
leiðir miklu máli. Ég mun klárlega
innleiða þær vinnuaðferðir meðal
míns teymis og vonandi víðar innan
NetApp,“ útskýrir Soffía. Starfs-
hópurinn frá Greenqloud sé veruleg
búbót fyrir NetApp.
„Skýjalausnir er nýleg áhersla
hjá NetApp en jafnframt helstu
vaxtarmöguleikar fyrirtækisins. Þar
höfum við sem heild frá Green-
qloud komið inn sem leiðandi afl
í að drífa áfram bæði vöruþróun
og þekkingu á markhópnum sem
NetApp hefur ekki stílað inn á áður
og hvernig á að nálgast þennan
hóp. Í framhaldi af stöðubreytingu
minni hefur teymið mitt á Íslandi
fengið leiðandi og mótandi störf
hver á sínu sviði innan NetApp. Það
eru því mjög spennandi tímar fram
undan fyrir okkur á Íslandi.“
Markaðssetur framtíð NetApp
Soffía Theódóra Tryggvadóttir er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í stjórnun og stefnu
mótun frá HÍ. Hún er nýr vörumarkaðsstjóri skýjalausna hjá NetApp á heimsvísu og vinnur með
stórfyrirtækjum eins og Google, Amazon og Microsoft. Hún segir starfið gífurlega spennandi.
Soffía Theódóra Tryggvadóttir vörumarkaðsstjóri. MYND/ÞÓRSTEINN
Ég hef leitt hugbúnaðarteymið hér á Íslandi síðustu fjögur ár en var forritari í fimmtán
ár þar á undan,“ segir Jón Arnar.
„Áður en ég fór í stjórnunarstöðu
vann ég í alls konar verkefnum,
allt frá matvælavinnslu yfir í
flugumferðarstjórn. Það skemmti-
lega við þetta er að ég komst að
því að forritun og stjórnun snúast
í grunninn um það sama, góða
samvinnu og að leysa verkefni.“
Hann segir að breytingar við
sameiningu Greenqloud og
NetApp hafi bæði verið miklar og
ekki. „Eiginlega breyttist bæði allt
og ekkert,“ segir hann. „Allt frá
því að við fengum betri kaffivél
yfir í að núna erum við að vinna
með svo ótrúlega mörgum utan
skrifstofunnar hér á Íslandi og
mjög náið með teymum frá stór-
fyrirtækjum eins og Microsoft og
Google. Það var eiginlega stærsta
breytingin, að fara úr því að eiga
allan pakkann og yfir í að deila
ábyrgðinni með öðrum aðilum.
Á sama tíma breyttist ekkert því
við lögðum mjög mikla áherslu á
að halda fyrirtækjamenningunni
okkar óbreyttri og því hvernig
við vinnum. Jónsi hefur alltaf
lagt mikla áherslu á heiðarleika
og hreinskilni þannig að þegar
við vorum í þessari Startup ferð
okkar þá vissum við nákvæmlega
hvernig fyrirtækinu gekk, hvað
gekk vel og hvað gekk illa og við
höfum haldið því áfram. Það er
einna helst að skalinn hafi breyst
og með stækkandi skala kemur
aukin ábyrgð. Þegar við segjum
einhverjar tímasetningar þá
verðum við að standa við þær.“
Skyldi það hafa aukið álagið á
kaffivélina? „Já, bæði og, þetta var
álagstími, sérstaklega kringum
söluna og sameiningarferlið sem
er að ljúka núna en við vorum
vel undirbúin fyrir það að vera
keypt af svona fyrirtæki. Það sem
er öðruvísi við hvernig NetApp
vinnur miðað við mörg önnur
fyrirtæki á Íslandi er að forritar-
arnir þekkja vöruna alveg frá því
að við búum hana til og þangað
til hún er komin í rekstur. Það er
miklu auðveldara að búa til vöru
ef þú þekkir hana frá A-Ö.“ Helsta
verkefni teymisins sem Jón Arnar
leiðir er að búa til nýja vöru sem
heitir Cloud Volumes og á að
gagnast stærstu skýjafyrirtækjum
heims. „Næstu árin stefnum við
að auki á að þjónustuvæða vörur
sem NetApp hefur hingað til selt
til fyrirtækja,“ segir Jón Arnar.
„Við viljum koma NetApp inn í
skýið og selja þjónustu frekar en
vöru sem fyrirtæki kaupa og eiga,
aðgang frekar en eign.“
Teymi Jóns er í miklum sam-
skiptum við stórfyrirtæki á
heimsmælikvarða. „Við höfum
sent og sendum fólk reglulega
bæði til Microsoft og Google,“
segir hann og bætir við: „Það var
skrýtið fyrst að fara inn á þennan
vettvang en svo áttaði ég mig á
því að fólkið okkar hérna stendur
þeim sem eru úti fyllilega á
sporði. Það er ástæða fyrir því að
NetApp keypti þetta fyrirtæki og
hún er starfsfólkið. Ég lít svo á að
við vinnum með þessum fyrir-
tækjum á jafningjagrundvelli, þeir
eru stórir en við eigum fullt erindi
til að sýna þeim hvernig hægt er
að gera betur.“
Hann segir að NetApp hafi verið
óskakaupandi að Green qloud.
„NetApp er hugbúnaðarfyrirtæki
sem skilur hvernig hlutirnir virka
en á sama tíma höfum við getað
fleytt rjómann af verkferlum
þeirra. Við höfum stuðninginn
af ferlunum en ráðum eftir sem
áður hvernig við gerum hlutina og
aðlögum okkar ferla í þeim mæli
sem þarf enda var lagt upp með
það frá byrjun að við myndum
hafa áhrif á það hvernig NetApp
þróast í framtíðinni.“
Fólkið okkar stendur þeim
bestu fyllilega á sporði
Jón Arnar Guð
mundsson er
framkvæmda
stjóri hug
búnaðarþróunar
hjá NetApp Ice
land en hann
starfaði áður hjá
Greenqloud í
fjögur ár og þar
áður sem for
ritari í fjölbreytt
um verkefnum.
Jón Arnar Guðmundsson. MYND/ÞÓRSTEINN
KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 7 . J ú l Í 2 0 1 8 NETApp á ÍSLANDI
0
7
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:1
8
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
5
6
-2
5
D
C
2
0
5
6
-2
4
A
0
2
0
5
6
-2
3
6
4
2
0
5
6
-2
2
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
8
8
s
_
6
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K