Fréttablaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 30
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 |
Flestir muna eftir Elínu Sif úr söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2015 þar sem hún heill-
aði alla upp úr skónum, sextán
ára gömul og ein á sviðinu með
gítarinn.
„Ég hafði alltaf mjög gaman af
tónlist, mamma er tónlistarkennari
og það var alltaf mikil tónlist heima,
en mér fannst ekki gaman í tón-
listarnámi og það var ekki fyrr en ég
hætti í ballett þegar ég var fimmtán
ára og þurfti skapandi útrás að ég
fékk aftur áhuga á tónlistinni, upp-
götvaði gítarinn og fór að semja,“
segir hún.
„Fyrsta lagið sem ég samdi var
held ég án gríns lagið „Í kvöld“ sem
ég sendi í Söngvakeppni Sjónvarps-
ins 2015. Ég var svo spennt fyrir því
að ég ákvað að senda það án þess
að segja pabba og mömmu frá því.
Svo var lagið valið inn í keppnina og
þegar ég var sextán ára var ég komin
í úrslit.“
Hún segir athyglina sem fylgdi
þátttökunni hafa verið krefjandi.
„Mamma og pabbi pössuðu mjög
mikið upp á að ég væri ekki of mikið
í fjölmiðlum og svoleiðis. Svo er
þetta bara litla Ísland og takmörk
fyrir því hvað svona getur orðið
stórt,“ segir hún en bætir við: „En
mér fannst athyglin óþægileg, ég
fékk ekki þetta kikk út úr keppninni
sjálfri nema bara fyrst og uppgötvaði
að mig langaði ekki til að gera þetta
aftur. Ég var líka busi í menntaskóla
og var hrædd um að þetta myndi lita
alla menntaskólagöngu mína. En
svo gerðist það ekkert.“
Ný plata með Náttsól
Þátttakan í söngvakeppninni færði
Elínu Sif hins vegar ýmis tækifæri.
„Guðrún Ólafsdóttir og Hrafn-
hildur M. Ingólfsdóttir í hljóm-
sveitinni Náttsól sáu mig til dæmis
þar. Þær voru nýbúnar að stofna
hljómsveitina og vantaði þriðja
meðliminn og höfðu samband,“
segir Elín. „Við vorum hluti af list-
hópum Hins hússins þetta sumar
þar sem við vorum að vinna með
lög eftir íslenskar konur. Lagið
Hyperballad eftir Björk gekk svo
vel að við ákváðum að taka þátt í
söngvakeppni MH veturinn eftir
sem leiddi svo til Söngkeppni fram-
haldsskólanna sem við unnum. Í
kjölfarið fórum við svo til Istanbúl
og tókum þátt í alþjóðlegri söng-
keppni þar sem við unnum líka og
þetta var mikið ævintýri. Eftir þetta
höfum við verið að semja og erum
að klára plötu sem vonandi kemur
út bráðum.“
Óþekkjanleg í Lof mér að
falla
Náttsól var ekki eina ævintýrið
sem Söngvakeppnin færði Elínu en
hún fer með annað aðalhlutverkið
í mynd Baldvins Z Lof mér að falla
sem verður frumsýnd í haust.
„Baldvin sá mig líka í Söngva-
keppninni og bað mig að koma í
prufur fyrir sjónvarpsþáttaröðina
Réttur og ég fékk smáhlutverk þar
þó ég hafi ekki verið með neina
leikreynslu nema bara úr Hlíða-
skóla,“ segir Elín. „Svo boðaði hann
mig aftur í prufur fyrir Lof mér að
falla og var greinilega ánægður með
mig og treysti mér til að fara með
þetta hlutverk. Persónan sem ég
leik heitir Magnea, venjuleg stelpa
sem kynnist stelpu sem heitir Stella
og heillast algerlega af henni og
heiminum sem hún lifir og hrærist
í, sem er mjög hættulegur. Þetta
er ástarsaga og neyslusaga en líka
mjög hreinskilin og raunveruleg
saga um allar hliðarnar á því að lifa
svona lífi.“
Mótleikkona Elínar heitir Eyrún
Björk Jakobsdóttir en þær voru
saman í grunnskóla. „Ég held að
bæði ég og Eyrún höfum þurft
að hafa mikið fyrir því að koma
Elín Sif er
lagasmiður,
söngkona og
leikkona sem
sendi frá sér nýtt
lag á dögunum,
Make you feel
better.
MYND/ÞÓRSTEINN
Elín Sif, Baldvin Z og Eyrún Björk við tökur á Lof mér að falla. MYND/STEFÁN
Elín Sif var sextán ára þegar lagið hennar Í kvöld komst í undanúrslit í Söngva-
keppni Sjónvarpsins árið 2015. MYND/ERNIR
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
okkur í hlutverk Magneu og Stellu.
Þegar við vorum á leið til Barce-
lona í tökur horfði Baldvin á okkur
í flugvélinni og ætlaði ekki að trúa
því að við værum leikkonurnar í
myndinni hans. Mér finnst ég hálf
óþekkjanleg í þessari mynd.“
Elín var í ár að undirbúa sig fyrir
tökurnar og finnst það hafa verið
óraunverulegur en mjög skemmti-
legur tími. „Mér finnst stundum
eins og þetta hafi ekki gerst og
fáránlegt að myndin sé tilbúin og
að hún verði frumsýnd bráðum.
Ég fékk að vinna með landsliðinu
í kvikmyndagerð, Baldvini og öllu
fólkinu sem kom að tökunum og
það er mikill heiður.“ Hún segir
kvikmyndagerð heilla eftir þessa
reynslu. „Ég hef klárlega uppgötvað
áhuga minn á leiklist og er mjög
heilluð af heiminum kringum kvik-
myndagerð og öllum kvikmynda-
iðnaðinum,“ segir hún. „Ég væri
alveg til í að prófa að gera eitthvað
fleira kringum kvikmyndir, semja
tónlist, skrifa handrit, framleiða …
allt bara.“
Að láta sér líða betur
Elín Sif lauk stúdentsprófi um ára-
mótin meðfram tökum á myndinni,
og segir að haustið verði helgað
tónlistinni að mestu. „Ég hef verið
að semja ótrúlega mikið af tónlist
í svolítinn tíma núna en hef ekki
látið verða af því að gefa mikið út.
Mig langar að taka tíma í að leggja
lokahönd á nokkur lög og gefa þau
út því það gerist víst ekki af sjálfu
sér. Þannig að það er planið mitt í
haust að leggja áherslu á tónlistina
og sjá hvernig gengur.“
Eitt lag er þegar komið í spilun en
það kom út á dögunum. „Lagið heit-
ir Make you feel better og ég samdi
það með kærastanum mínum,
Reyni Snæ. Það fjallar um það að
leyfa ekki einhverjum að takmarka
þig heldur gera allt eftir sinni
sannfæringu og vera samkvæmur
sjálfum sér. Mér finnst þetta vera
svona peppandi sumarlag.“
Í sumar vinnur Elín í skapandi
sumarstörfum hjá Hinu húsinu og
er því á ferðinni með gítarinn um
allan bæ. „Ég sótti um að fá að vinna
í minni eigin tónlist og æfa mig að
flytja hana þannig að ég er mikið
að spila á elliheimilum sem er mjög
góð æfing og svo er ég líka að spila
úti á götu,“ segir hún. „Í frítímanum
stunda ég félagslíf eða spila á gítar.
Mér finnst mjög gaman að ljós-
myndun og fer stundum í göngu-
túra og tek myndir. En ef ég vil slaka
á eða dreifa huganum, þá gríp ég
alltaf í gítarinn.“
Amínósýrur, Rósepli, Cactus extract,
öflug blanda af B-vítamínum og Magnesíum.
Virkar vel gegn þynnku
2 töflur fyrir fyrsta drykk
2 töflur fyrir svefn
Fæst í apótekum og heilsuhillum verslana
www.artasan.is
Morgundagurinn
verður betri með
After Party
Náttúruleg lausn við timburmönnum
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . J Ú L Í 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
7
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:1
8
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
6
-0
D
2
C
2
0
5
6
-0
B
F
0
2
0
5
6
-0
A
B
4
2
0
5
6
-0
9
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
6
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K