Fréttablaðið - 07.07.2018, Page 44

Fréttablaðið - 07.07.2018, Page 44
Þjónustustjóri óskast 115 Security auglýsir eftir þjónustustjóra Hæfniskröfur: – 25 ára lágmarksaldur – Góð þjónustulund – Góðir samskiptahæfileikar – Geta unnið undir álagi – Reynsla af stjórnun/mannaforráðum er mikill kostur – Hreint sakavottorð Umsókn með mynd og ferilskrá sendist á 115@115.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir Friðrik í síma 5 115 115. Starfið er að hluta til kvöldvinna. Umsóknarfrestur er til 11. júlí. 115 Security Austurbakka 2, 101 Reykjavík 115 Security er ungt og framsækið fyrirtæki sem þjónustar fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Starfsmenn félagsins eru um 100 og búa yfir áralangri reynslu í mannaðri gæslu, uppsetningu og sölu á myndavéla- og öryggiskerfum ásamt brunakerfum, brunaúttektum og aðgangsstýringum. P IP A R \T B W A · S ÍA 115.is Umsóknarfrestur er til og með 16. júlí 2018. Rio Tinto Straumsvík Pósthólf 244 222 Hafnarfjörður Sími 560 7000 www.riotinto.is Rio Tinto á Íslandi óskar eftir að ráða starfsmann á lager. Viðkomandi þarf að hafa góða öryggisvitund, skipulags hæfni og vera gæddur góðum samskiptahæfileikum. Starfssvið » Tiltekt pantana » Vöruafgreiðsla » Móttaka vara » Útkeyrsla » Vörutalningar » Annað tilfallandi Menntunar- og hæfniskröfur » Góð almenn tölvukunnátta » Góð íslensku- og enskukunnátta » Nákvæmni » Geta til að vinna undir álagi » Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni » Þjónustulund » Gild ökuréttindi eru nauðsynleg Nánari upplýsingar veitir Arthur Guðmundsson í síma 560 7000. Áhugasamir, vinsamlegast fyllið út atvinnuumsókn á vef fyrirtækisins, www.riotinto.is. Rio Tinto á Íslandi er þekkingarfyrirtæki sem rekur álverið ISAL í Straumsvík. Við bjóðum upp á margbreytileg störf og fjölbreytt verkefni þar sem hugvit, þekking og kunnátta starfsmanna gegna lykilhlutverki. Við leggjum áherslu á markvisst fræðslustarf, gott upplýsingaflæði og umhverfi sem hvetur til góðrar frammistöðu. Framtíð okkar byggist á framúrskarandi starfsfólki sem skapar öruggan og eftirsóttan vinnustað. Áhersla ISAL á öryggis-, umhverfis- og heilbrigðismál er forsenda framúrskarandi árangurs. Við leggjum okkur fram um að starfa í sátt við umhverfi og samfélag. Gildi ISAL eru ábyrgð, samvinna, heilindi og virðing. Starfsmaður á lager JÓ N S S O N & L E ’M A C K S | S ÍA Fjölskyldusvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða sérfræðing á skrifstofu. Um er að ræða 100% starf og er æskilegur ráðningartími frá 1. október 2018. Starfssvið er eftirfarandi: • Umsjón með skjalavörslu sviðsins. • Almenn skrifstofuverkefni s.s. bókhald og móttaka. • Upplýsingagjöf og rafræn stjórnsýsla. • Vinnur gerð verkferla og mati á þjónustu. • Er staðgengill skrifstofustjóra. • Sinnir ýmsum þróunarverkefnum. Menntunar- og hæfniskröfur eru: • Háskólapróf sem nýtist í starfi. • Reynsla af almennum skrifstofustörfum þ.m.t. bókhaldi er nauðsynleg ásamt færni í öllum almennum tölvuforritum • Reynsla af skjalavörslu er æskileg. • Reynsla af rannsóknarverkefnum er kostur • Þekking á Navision og SAP er kostur • Mikill sveigjanleiki og framúrskarandi samskiptahæfni er nauðsynleg svo og hæfni til að vinna sjálfstætt • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans sam- rýmist starfinu. Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar, www.akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt. Umsóknarfrestur er til og með 22. júlí 2018 Sérfræðingur Aðstoð í eldhúsi Velferðarráðuneytið leitar að einstaklingi í 75% starf í eldhúsi ráðuneytisins. Viðkomandi mun vinna náið með og aðstoða matráð sem hefur umsjón með eld- húsinu. Í boði er krefjandi og skemmtilegt starf þar sem reynir á samvinnu og þjónustulund. Um er að ræða tímabundið starf í eitt til tvö ár Starfið felst í þátttöku í öllum daglegum störfum í eldhúsinu, allt frá eldamennsku og þrifum á vinnusvæði til þess að ná markmiðum um góðan og hollan mat í heilbrigðu og þægilegu umhverfi þar sem ríkir notalegur andi. Gerðar eru kröfur um að viðkomandi hafi reynslu af sambærilegum störfum í eldhúsi. Einnig eru gerðar kröfur um að viðkomandi sé góður í mannlegum samskiptum, áreiðanlegur, samviskusamur og um- hugað um að standa sig vel í starfi. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og Félags starfsmanna Stjórnar ráðsins. Nánari upplýsingar veitir Böðvar Héðins- son, staðgengill skrifstofustjóra á skrifstofu rekstrar og innri þjónustu, netfang bodvar.hedinsson@vel.is. Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf skulu berast velferðarráðuneytinu á netfangið: postur@ vel.is eða í Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík eigi síðar en 22. júlí nk. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf um miðjan ágúst. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Velferðarráðuneytinu, 7. júlí 2018. 10 ATVINNUAUGLÝSINGAR 7 . j ú L í 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 0 7 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 8 F B 0 8 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 6 -5 C 2 C 2 0 5 6 -5 A F 0 2 0 5 6 -5 9 B 4 2 0 5 6 -5 8 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 8 8 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.