Fréttablaðið - 07.07.2018, Síða 77

Fréttablaðið - 07.07.2018, Síða 77
4G þjónusta í sérflokki Ertu til? Framtíðin er spennandi. Með 4G háhraðaneti Vodafone getur þú fylgst grannt með boltanum í sumarhúsinu eða á ferðalagi innanlands í sumar. Kynntu þér málið í næstu verslun, á vodafone.is eða hjá umboðsaðilum okkar um land allt. Ekki missa af leiknum! Hvað? Hvenær? Hvar? Laugardagur hvar@frettabladid.is 7. júlí 2018 Tónlist Hvað? Þjóðlagahátíðin á Siglufirði Hvenær? 09.30 Hvar? Siglufirði Hellingur í gangi á Þjóðlagahátíð- inni. Uppskeruhátíð um kvöldið. Hvað? Winfried Bönig, organisti Kölnardómkirkju Hvenær? 12.00 Hvar? Hallgrímskirkju Winfried Bönig aðalorganisti í Kölnardómkirkju leikur verk eftir Vierne, Herbert Howells ásamt Prelúdíu og fúgu í a-moll eftir Bach og Battagliu eftir Johann Caspar Kerll. Miðaverð kr. 2.000. Viðburðir Hvað? Allar Mínar Systur á Fringe Festival Hvenær? 16.00 Hvar? Tjarnarbíói Verkið Allar mínar systur er eins konar femínísk útópia sem tekur útgangspunkt frá nornum sem lækningakonum og hugmyndinni um mæðraveldi. Gegnum sam- stöðu, auðmýkt og sköpunarkraft töfra nornirnar fram hvert ritúalið á fætur öðru og taka áhorfendur með í eins konar hugleiðslu eða sálarmeðferð. Verkið er inn- blásið af og óður til samtímans, til byltingarinnar sem á sér stað núna, til systralagsins, til fjórðu öldunnar, til þriðju, annarrar og fyrstu aldanna. Sýningar Hvað? Monstress Hvenær? 10.00 Hvar? Hlemmur Square Í Monstress eftir Helgu Thorodd- sen er kvenleiki, birtingarmyndir og viðhorf til kvenna kannað í gegnum linsu ævintýra og goð- sagna. Helga Thoroddsen lærði málaralist við Camberwell Col- lege of Art á og hefur síðastliðin tvö ár verið húslistakona á Lista- stofunni. Monstress verður á Hlemmi Square. Tónlist Hvað? Sönghátíð í Hafnarborg – Opnunartónleikar Hvenær? 20.00 Hvar? Hafnarborg Á opnunartónleikum hátíðar- innar 8. júlí, sem bera heitið Suð- rænar gyðjur flytur barokkhópur- inn Symphonia Angelica tónlist eftir Händel, Monteverdi og aðra meistara. Cantoque Ensemble, sem skipað er átta þaulreyndum söngvurum, flytur útsetningar tólf íslenskra tónskálda á íslenskum þjóðlögum. Hvað? Þjóðalagahátíð á Siglufirði Hvenær? 14.00 Hvar? Siglufirði Á síðasta degi hátíðarinnar verður allt keyrt í botn og Sinfóníu- hljómsveit unga fólksins gjörsam- lega kveikir í Siglufjarðarkirkju auk þess sem tríóið Dymbrá tekur aukatónleika í Tankanum, Síldar- minjasafninu. Hvað? Sumartónleikar í Akur- eyrarkirkju Hvenær? 17.00 Hvar? Akureyrarkirkju Sunnudaginn 8. júní kl. 17.00 í Akureyrarkirkju koma fram marg- ir af bestu söngvurum landsins en þeir skipa átta radda sönghóp sem heitir Cantoque Ensemble. Flutt verða þjóðlög í gömlum og nýju útsetningum. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Hvað? Englar og menn – tónlistar- hátíð Strandarkirkju Hvenær? 14.00 Hvar? Strandarkirkju Bjarni Frímann og Sveinn Dúa á tónleikum kl. 14 á sunnudag. Viðburðir Hvað? Hin villta Viðey Hvenær? 13.15 Hvar? Viðey Hin villta Viðey er yfirskrift göngu sunnudagsins 8. júlí kl. 13.15. Þá mun Snorri Sigurðsson líffræðingur leiða gesti um Viðey þar sem þeir verða fræddir um fjölbreytilegan gróður og dýralíf eyjunnar. Snorri er líffræðingur hjá Reykjavíkurborg og hefur víðtæka þekkingu á lífríki borgar- landsins. Viðey er gróðursæl úti- vistarparadís og var áður ein besta bújörð landsins. Þar verpa alls um 30 fuglategundir og er æðarfugl algengasti fugl eyjunnar. Þátt- takendur eru beðnir um að koma klæddir eftir veðri og í góðum skóm. Siglt verður stundvíslega frá Skarfabakka kl. 13.15. Þeir sem vilja fá sér léttan hádegisverð í Viðeyjarstofu fyrir gönguna er bent á að taka ferjuna kl. 12.15. Hvað? Verk að vinna – smiðjur Hvenær? 13.00 Hvar? Árbæjarsafni Verk að vinna er yfirskrift sunnu- dagsins 8. júlí í Árbæjarsafni en þá býðst börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt í smiðjum sem ganga út á að kynnast starfs- háttum fyrri tíma. Hvernig var lífið fyrir tíma nútímaþæginda eins og rennandi vatns úr krönum, þvottavéla og ryksuga? Ef þig langar að komast að því þá skaltu koma í Árbæjarsafn á sunnudag og prófa að bera vatn eins og vatnsberar gerðu, sópa með strákústi, sækja í eldivið og leggja á borð fyrir prestakaffi á sunnudegi. Snorri Sigurðsson líffræðingur leiðir fólk um Viðey á sunnudaginn Sunnudagur Þjóðlagahátíðin á Siglufirði er í fullum gangi nú um helgina. m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 37L A U g A R D A g U R 7 . j ú L í 2 0 1 8 0 7 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 8 F B 0 8 8 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 6 -1 7 0 C 2 0 5 6 -1 5 D 0 2 0 5 6 -1 4 9 4 2 0 5 6 -1 3 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 8 8 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.