Fréttablaðið - 07.07.2018, Page 78

Fréttablaðið - 07.07.2018, Page 78
Ég spila á barokk- selló, eyjólfur og björk spila á langspil og öll syngjum við meira og minna. Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Reykjavíkurborg auglýsir hér með eftir óprentuðu handriti að skáldverki fyrir börn eða unglinga, frumsömdu á íslensku, til að keppa um Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur. Verðlaununum verður úthlutað í fyrsta sinn í apríl 2019. Verðlaun að upphæð 1 milljón króna verða veitt fyrir eitt handrit. Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður að starfa með. Þriggja manna dómnefnd metur verkin. Sé dóm- nefnd á einu máli um að ekkert innsent handrit fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka má fella verðlaunaafhendinguna niður það árið. Handritum skal skila undir dulnefni, en nafn og heimilisfang höfundar fylgi í lokuðu umslagi. Handrit berist í síðasta lagi 20. janúar. Utanáskrift: Bókmenntaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur b.t. Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11, 101 Reykjavík Í apríl 2018 samþykkti borgarráð að frá vorinu 2019 verði Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur veitt árlega að vori. Guðrún er einn vinsælasti og virtasti barnabókahöf- undur landsins og um leið og hún er heiðruð með þessum hætti stuðla verðlaunin að nýsköpun í greininni og styðja við barnabókmenntir á Íslandi. Undirbúningsstyrkir og styrkir til minni sýningarverkefna allt að 500.000 kr. Styrkir til stærri sýningarverkefna, útgáfu-/rannsóknarstyrkir og aðrir styrkir allt að 2.000.000 kr. M yn dl is ta rs jó ðu r Veittir verða Upplýsingar um myndlistarsjóð, umsóknareyðublað, úthlutunarreglur og leiðbeiningar er að finna á vefsíðu myndlistarráðs, myndlistarsjodur.is Úthlutað verður í september Úthlutað er tvisvar úr sjóðnum árinu 2018 Umsóknarfrestur er til miðnættis 20. ágúst 2018 Opnað verður fyrir umsóknir í myndlistarsjóð 9. júlí Steinunn Arnbjörg Stef­ánsdóttir sellóleikari er í hópi þeirra tónlistar­manna sem koma fram á Sönghátíð í Hafnarborg. Hátíðin hefst í dag, 7. júlí, og stendur til 15. júlí. Sjö tónleikar verða á hátíðinni þar sem fjörutíu tónlistarmenn koma fram og fimm námskeið verða haldin. Dagskrána má sjá á songhatid.is. Steinunn mun ásamt Eyjólfi Eyj­ ólfssyni og Björk Níelsdóttur koma fram á tónleikunum Baðstofu­ barokk miðvikudaginn 11. júlí. Þar munu þau sameina kvöldvökur bað­ stofanna og tónlistarflutning evr­ Hirðtónar mæta baðstofutónum steinunn arnbjörg stefánsdóttir selló- leikari er meðal flytjenda á sönghátíð í Hafnarborg. sogaðist að barokktónlist. „Ég sogaðist að henni eins og fiskifluga að signum fiski,“ segir Steinunn um áhugann á barokktónlist. FrÉttablaðið/auðunn ópskrar hirðmenningar með söng og leik á langspil og barokkselló. barón Þórarins „Það er meiri baðstofutónn í þessu en hirðtónn,“ segir Steinunn. „Eyj­ ólfur hafði lesið Baróninn eftir Þór­ arin Eldjárn og þar er lýsing á því þegar barón spilar á selló hjá Reyk­ víkingum á 19. öld. Eyjólfur fór að velta fyrir sér hvernig það hefði verið ef einhver hefði komið með selló inn í baðstofuna og bóndinn eða bóndakonan farið að spila með á langspilið sitt. Þetta er útfærsla á þeirri hugmynd. Ég spila á barokk­ selló, Eyjólfur og Björk spila á lang­ spil og öll syngjum við meira og minna.“ Lögin sem flutt verða eru blanda af gömlum lögum og frumsömdum. „Það má kalla þetta ný­þjóðlagatón­ list,“ segir Steinunn. „Við höfum öll verið að semja okkar eigin lög við ljóð eftir Pál Ólafsson, Eggert Ólafs­ son, sjálfa mig og fleiri, sem við flytjum á tónleikunum. Svo erum við með útsetningar á fimm söng­ lögum eftir Jórunni Viðar en sum sönglaga hennar eru með þjóð­ legum tóni. Jórunn samdi lögin með píanóundirleik en við höfum útsett þau á langspil og selló.“ Hugar að bók Steinunn hefur leikið á selló frá fjögurra ára aldri. Hún býr í Frakk­ landi og leikur með barokkhópum og hljómsveitum þar í landi. Hún er spurð hvað henni þyki svo heillandi við barokktónlist. „Ég held að mér hafi bara þótt hún skemmtileg. Ég fór að sérhæfa mig í henni þegar ég var í tónlistarnámi í París. Ég sogaðist að henni eins og fiskifluga að signum fiski,“ segir hún. „Í tón­ listarheiminum er barokkdeildin orðin nokkuð stór, þannig að hún hrífur greinilega nútímamanninn á einhvern hátt.“ Steinunn er ekki einungis tón­ listarkona því hún hefur fengist þó nokkuð við að yrkja. Hún hefur sent frá sér eina ljóðabók, USS, sem kom út árið 2016. Hún segir að það brenni á sér að gefa út aðra bók. Steinunn kemur reglulega til Íslands og segir: „Ég er heimakær en ég hef ekki komið mér að því almenni­ lega að flytja heim, þótt ég sé alltaf að velta mér upp úr því hvað mig langi mikið til þess. Frekar skrýtið háttalag!“ Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@frettabladid.is Íslensk tónlist með sérstakt vægi til að halda upp á aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands er íslenskri tónlist gefið sérstakt vægi á Sönghátíðinni í Hafnarborg, en á lokatónleikum hátíðarinnar Fullveldi 1918-2018 sunnudaginn 15. júlí flytja Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Þóra Einarsdóttir, Ásta Marý Stefánsdóttir, Ástríður alda Sigurðardóttir og Francisco Javier Jáuregil hápunkta íslenskrar söngsögu síðustu hundrað ára. Á opnunartónleikum hátíðarinnar 8. júlí flytur barokkhópurinn Symphonia angelica tónlist eftir Händel, Monteverdi og fleiri. Cantoque Ensemble flytur útsetningar tólf íslenskra tónskálda á íslenskum þjóðlögum 10. júlí. Eyjólfur Eyjólfsson, björk níelsdóttir og Steinunn arnbjörg Stefánsdóttir koma fram á tónleikum 11. júlí, eins og sagt er frá annars staðar á síðunni. Kristinn Sigmundsson og nemendur á masterclass námskeiði hans á hátíðinni halda tónleika 12. júlí við píanóleik Matthildar Önnu Gísla- dóttur. Olga Vocal Ensemble frá Hollandi flytur 13. júlí dagskrána it’s a Woman’s World, þar sem listakonum síðustu 1000 ára er fagnað. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui í Dúó atlantica og bára Grímsdóttir og Chris Foster í Funa flytja íslensk, ensk, írsk og skosk þjóðlög á Fjölskyldutónleikum 14. júlí, þar sem börn í söng- og tónlistarnámskeiðum hátíðarinnar koma einnig fram. 7 . j ú l í 2 0 1 8 l A U G A R D A G U R38 m e n n i n G ∙ F R É T T A B l A ð i ð menning 0 7 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 8 F B 0 8 8 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 6 -1 B F C 2 0 5 6 -1 A C 0 2 0 5 6 -1 9 8 4 2 0 5 6 -1 8 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 8 8 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.