Fréttablaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 2
Veður
Fremur hæg norðlæg átt í dag og
rigning með köflum fyrir norðan, en
léttir til sunnan heiða með síðdegis-
skúrum syðst. Hlýnar sunnan til, en
kólnar norðaustanlands. sjá síðu 24
Suðræn sveifla við Tjörnina
Karlar sem konur tóku snúninginn í Tjarnarbíói og sameinuðust í suðrænni sveiflu undir tilfinningaþrungnum söng og gítarleik. Byrjendur stigu
þar sín fyrstu skref í flamenco. Þetta var fyrsta sýning af fjórum. Sú næsta verður í Gamla kaupfélaginu á Akranesi í kvöld. Fréttablaðið/Ernir
Bílar Samgönguráðuneyti
Suður-Kóreu hefur
bannað ökumönnum
20.000 BMW-bíla að
aka þeim og krefst
innköllunar á bíl-
unum.
Gera yfirvöld í
Suður-Kóreu þetta
vegna þess að á
fyrstu sex mánuðum
ársins hefur eldur
blossað upp í 27 BMW-
bílum þar í landi og
með því vilja þau tryggja
öryggi farþega. BMW
hefur verið gert að inn-
kalla alla þessa bíla og gera við gallann
sem þessu veldur.
BMW ætlar reyndar að gera gott
betur og innkalla 106.000 bíla sem
gætu verið með þennan galla sem
felst í eldsneytiskerfi þeirra, en eldur-
inn hefur í öllum tilfellum læst sig í
vélarrúm bílanna. Eigendur
þeirra bíla sem innköll-
unin nær til mega aka
bílunum að þeim
stöðum þar sem gert
verður við þá, en
eingöngu þangað.
BMW hefur gengið
einkar vel að selja
bíla í Suður-Kóreu
á undanförnum
árum og hefur fimm-
faldað sölu bíla sinna
þar á undanförnum
fimm árum og seldi hátt
í 60.000 bíla þar í fyrra.
– fot
BMW-bílar í Suður-Kóreu
kyrrsettir vegna eldhættu
Sjá nánar á
Fréttablaðið+
Fleiri bílafréttir má sjá
á Fréttablaðið+.
dómsmál Leigutaki Þverár og Kjarr-
ár áfrýjaði ekki dómi Héraðsdóms
Vesturlands í máli gegn tveimur
veiðiþjófum.
„Það var ekki talið svara kostnaði
að fara með málið áfram, sérstaklega
þegar horft er til þess að tjónvaldar
eru oft ekki borgunarmenn,“ segir
Páll Mikael Kristjánsson, lögmaður
Stara ehf. „Það breytir því ekki að
niðurstaða héraðsdóms var augljós-
lega röng og ljóst að önnur mál verða
sótt af hörku ef þau koma upp.“
Eins og kom fram í Fréttablaðinu
í gær voru tveir menn staðnir að
veiðiþjófnaði í Kjarrá í fyrrasumar.
Auk þess að vera ekki með veiði-
leyfi – sem kostuðu 245 þúsund
krónur fyrir daginn á þeim tíma –
veiddu þeir á maðk, sem er strang-
lega bannað í Kjarrá. Héraðsdómur
Vesturlands dæmdi þá í 50 þúsund
króna sekt en hafnaði kröfum Stara
ehf. um bætur því ekki hefði tekist
að sanna neitt tjón.
„Þetta var mjög einbeittur brota-
vilji hjá þessum mönnum,“ segir
Ingólfur Ásgeirsson, einn leigu-
takanna. Fyrst hafi sést til mann-
anna á veiðum í Lambá, hliðará
Kjarrár, eftir að bónda grunaði að
óboðnir gestir væru á svæðinu og
setti dróna á loft. Þegar veiðivörður
hafi komið að þeim hafi þeir verið
búnir að veiða einn lax á maðk í
Efra-Rauðabergi, þekktum veiði-
stað í sjálfri Kjarrá. Þangað er vel
hálftíma gangur.
„Þeir velja þennan stað alveg
klárlega með það í huga að það séu
minni líkur á að þeir verði gripnir.
Þetta var einfaldlega skipulögð ferð
með veiðiþjófnað í huga,“ segir Ing-
ólfur.
Veiðiþjófarnir játuði brot sitt en
höfnuðu bótakröfum Stara. „Dóm-
arinn treysti sér ekki til að dæma
neinar bætur – sem er merkilegt
vegna þess að þarna er verið að taka
vöru ófrjálsri hendi,“ segir Ingólfur.
Að sögn Ingólfs færist veiði-
þjófnaður í vöxt. Veiðivarsla hafi
verið aukin víða. „Við erum með
eftirlit með drónum og hestum,
það er mjög vel fylgst með. Vöktun
á ánum almennt er orðin miklu
skipulagðari og drónar eru mjög
góður þáttur í því. Það er ekki verið
að fylgjast með veiðimönnunum
sjálfum heldur því sem gerist utan
veiðitíma og kannski á svæðum sem
eru langt í burtu.“
Viðurlög við veiðiþjófnaði á
Íslandi eru alltof væg að mati Ing-
ólfs. Breyta þurfi lagarammanum
og hann viti til þess að Landssam-
band veiðifélaga sé að skoða málið.
Erlendis sé staðan önnur.
„Ef menn eru staðnir að veiði-
þjófnaði í Kanada til dæmis er allt
gert upptækt; ef þú ert á bíl þá er
hann tekinn af þér og ef þú ert á bát
þá er hann tekinn af þér. Sektin er
allt að 20 þúsund Kanadadollurum
og þú ferð á sakaskrá – þetta er bara
meiriháttar mál.“ gar@frettabladid.is
Una veiðiþjófadómi en
boða hörku framvegis
Dómi um að veiðiþjófar í Kjarrá þurfi ekki að greiða veiðileyfasala bætur verður
ekki áfrýjað. Lögmaður boðar hins vegar hörku ef fleiri slík mál kom upp. Leigu-
takinn segir veiðiþjófum fjölga og að herða þurfi viðurlög við brotunum.
Efra-rauðaberg er þekktur veiðistaður í Kjarrá. Þangað er talsverður gangur.
bilun í eldsneytiskerfi
bMW-bíla.
menning Áhugafólk um lúðrablást-
ur hefur ekki misst af árlegu „lúðra-
sveitabattli“ þriggja lúðrasveita
eins og skilja mátti af myndatexta í
blaðinu í gær.
Liðsmenn úr Lúðrasveitinni
Svani, Lúðrasveit Reykjavíkur og
Lúðrasveit verkalýðsins kynntu í
fyrradag „lúðrasveitabattlið“ sem
sjálft fer ekki fram fyrr en á Menn-
ingarnótt. Viðburðurinn verður við
Hljómskálann í Hljómskálagarð-
inum og hefst með látum klukkan
fimm síðdegis á laugardag. – gar
Battlinu ólokið
blásið af krafti. Fréttablaðið/StEFán
Þetta var einfaldlega
skipulögð ferð með
veiðiþjófnað í huga.
Ingólfur Ásgeirsson,
leigutaki Þverár/
Kjarrár
1 6 . á g ú s t 2 0 1 8 F i m m t u d a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
1
6
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
6
-1
3
3
4
2
0
9
6
-1
1
F
8
2
0
9
6
-1
0
B
C
2
0
9
6
-0
F
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K