Fréttablaðið - 16.08.2018, Side 8
Auglýst eru til umsóknar starfslaun listamanna sem
úthlutað verður árið 2019 í samræmi við ákvæði laga
nr. 57/2009.
Umsóknum skal skila í síðasta lagi mánudaginn
1. október 2018.
Úthlutað verður úr eftirfarandi sjóðum:
launasjóður hönnuða
launasjóður myndlistarmanna
launasjóður rithöfunda
launasjóður sviðslistafólks
launasjóður tónlistarflytjenda
launasjóður tónskálda
Umsóknir skiptast í eftirfarandi flokka:
● Starfslaun fyrir einn listamann í einn launasjóð eða fleiri,
falli vinnan undir fleiri en einn sjóð.
● Starfslaun fyrir skilgreint samstarf listamanna í einn
launasjóð eða fleiri, falli vinnan undir fleiri en einn sjóð.
● Starfslaun fyrir sviðslistahópa. Sviðslistahópaumsókn er
felld inn í atvinnuleikhópaumsókn.
Umsóknareyðublöð og eyðublöð fyrir framvinduskýrslu
ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn má finna á
vefslóðinni www.listamannalaun.is.
Nota þarf rafræn skilríki við umsóknina.
Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn
aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu vegna síðustu
úthlutunar hefur verið skilað til stjórnar listamannalauna,
sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009.
● Ferðastyrkir verða ekki veittir.
● Eingöngu verður tekið við rafrænum fylgigögnum.
Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Zoëga
á skrifstofu Rannís, listamannalaun@rannis.is.
Stjórn listamannalauna, ágúst 2018
Umsóknarfrestur 1. október
Listamannalaun
2019
Hafnarfjörður Fulltrúar minni-
hluta í Hafnarfirði eru mjög ósáttir
vegna þeirrar stefnubreytingar sem
varð í stóra knatthúsamáli bæjarins
í síðustu viku þegar ákveðið var á
fundi bæjarráðs að bærinn keypti
öll þrjú knatthús Fimleikafélags
Hafnarfjarðar á 790 milljónir og FH-
ingar stæðu sjálfir að byggingu nýs
knatthúss á eigin kostnað og ábyrgð.
Á aukafundi í bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar í gær lögðu fulltrúar minni-
hlutans fram fjölda fyrirspurna
vegna málsins en fyrir liggur að
kaup bæjarins á mannvirkjunum
hafa það markmið að gera félag-
inu mögulegt að byggja nýtt knatt-
hús. Meðal annars er vísað til þess
að félagið hafi fengið eitt húsanna
að gjöf frá bænum árið 1989 en
skilyrði gjafagerningsins hafi ekki
verið uppfyllt á tilsettum tíma og
hann því aldrei farið í gegn og húsið
sé því enn í eigu bæjarins. Óskað er
upplýsinga um kostnað bæjarins
við kaup á þessari eign sinni, þar
á meðal tilfallandi kostnaði verði
gjafagerningurinn gjaldfærður áður
en kaupin fara fram.
Einnig er gagnrýnt að hvorki
liggi fyrir verðmat né mat á ástandi
umræddra eigna heldur fari kaup-
verðið eftir fjárþörf FH vegna bygg-
ingar nýs húss.
Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,
oddviti Bæjarlistans í Hafnarfirði,
segir þetta ekki góða meðferð skatt-
fjár. „Nei, alls ekki, og við í minni-
hlutanum erum sammála um það
að þessi vinnubrögð séu vafasöm
og höfum beint því til samgöngu-
og sveitarstjórnarráðuneytisins
að ganga úr skugga um það hvort
þetta sé löglegt. Okkar tilgáta er sú
að þetta sé ólöglegt.“
Knatthúsamálið hefur verið
þrætuepli í bæjarmálum Hafnar-
fjarðar um nokkurra ára skeið og var
málið uppspretta stöðugra deilna
innan meirihluta Sjálfstæðisflokks
og Bjartrar framtíðar á síðasta kjör-
tímabili.
Tvö knatthús eru í Hafnarfirði,
bæði á athafnasvæði FH, þar á
meðal Risinn í Kaplakrika sem
bærinn leigir af félaginu fyrir tugi
milljóna á ári. Haukar eiga ekkert
yfirbyggt knatthús og vilja fá sams
konar samning og gerður var við FH
en meirihlutinn í Hafnarfirði hefur
ákveðið að FH fái þriðja knatthús
bæjarins.
adalheidur@frettabladid.is
sveinn@frettabladid.is
Hafnarfjörður kaupi
hús í eigin eigu af FH
Meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar vill kaupa þrjú knatthús á 790 millj-
ónir. Eitt húsið er reyndar í 80 prósent eigu bæjarins. Minnihlutinn segir
ekkert verðmat liggja fyrir og því óvarlega farið með peninga bæjarbúa.
Reisa á þriðja knatthúsið á svæði FH-inga. Málið hefur verið þrætuepli í bæjarmálum í Hafnarfirði FRéttablaðið/GVa
Guðlaug
Kristjánsdóttir,
oddviti
bæjarlistans.
Kjaramál Stjórn Flugfreyjufélags
Íslands hefur samþykkt að boða til
atkvæðagreiðslu meðal allra félags-
manna sinna um vinnustöðvun
félagsmanna hjá flugfélaginu Prim-
era Air Nordic. Allir félagsmenn geta
tekið þátt í atkvæðagreiðslunni og
er búist við því að niðurstaða verði
klár í lok septembermánaðar. Deil-
an hefur staðið yfir í nokkur ár.
Berglind Hafsteinsdóttir, formað-
ur stjórnar FFÍ, segir samningavið-
ræður við Primera Air Nordic hafa
verið hálfgerðan skrípaleik. „Það
hafa verið haldnir eitthvað um átta
fundir hjá ríkissáttasemjara þar
sem aðilar flugfélagsins hafa aldrei
mætt. Krafa okkar er afar einföld í
þessari deilu. Við viljum einfald-
lega að gerður verði við flugfreyjur
kjarasamningur þar sem ljóst er að
flugfélagið starfi hér á landi. Það er
ekki óeðlileg krafa að okkar mati,“
segir Berglind. „Nú höfum við óskað
eftir því að ríkið komi að borðinu án
árangurs og því er þetta lokatilraun
okkar til að knýja á um að samið
verði við flugfreyjur hjá fyrirtæk-
inu.“
Fyrirtækið telur sig hins vegar ekki
vera starfandi á íslenskum markaði,
heldur í Riga í Lettlandi. Flugliðar
starfa sem verktakar hjá fyrirtækinu
sem telur sig aðeins þurfa að greiða
laun í samræmi við það sem gengur
og gerist í Lettlandi. – sa
Flugfreyjur kjósa um vinnustöðvun
Primera air er skráð í lettlandi en fyrirtækið sjálft hér á landi. Flugfreyjur vilja að
gerður verði kjarasamningur við flugfreyjur fyrirtækisins. FRéttablaðið/HöRðuR
reyKjavíK Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks í skipulags- og samgönguráði
Reykjavíkurborgar gengu af fundi
ráðsins í gær. Hildur Björnsdóttir,
einn af þremur fulltrúum flokksins
í ráðinu, segir Sjálfstæðismenn efast
um lögmæti fundarins.
Á fundi ráðsins í gær voru 75 mál
á dagskrá. Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins töldu sig ekki hafa fengið
fundargögn með nægilegum fyrir-
vara til að kynna sér málin og einnig
hafi nokkrir gestir ekki fengið boð
um að mæta á fundinn.
„Við fengum ekki gögnin fyrr en
eftir hádegi í gær. Þetta eru fleiri
hundruð blaðsíður. Við viljum
vanda okkur og berum virðingu
fyrir málaflokknum,“ segir Hildur
Björnsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins.
„Mér finnst skrýtið að borgar-
fulltrúar haldi að það sé val hvort
við mætum á fund eða ekki. Það á
ekki að vera eðlilegt að ganga út af
fundi vegna þess að þeim mislíkar
eitthvað,“ segir Kristín Soffía Jóns-
dóttir, fulltrúi Samfylkingar í skipu-
lags- og samgönguráði. „Það er hins
vegar eðlilegt að málum sé frestað
ef fulltrúar telja sig þurfa að kynna
sér málin betur. Þetta eru aftur á
móti vinnubrögð sem ég hef ekki
séð áður og er augljóst leikrit sett
á svið á kostnað eðlilegra vinnu-
bragða.“ – sa
Gengu af fundi skipulagsráðs
Við viljum vanda
okkur og berum
virðingu fyrir mála
flokknum
Hildur Björns-
dóttir, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í
skipulagsráði
Kristín Soffía
Jónsdóttir,
varaformaður
umhverfisráðs.
1 6 . á g ú s t 2 0 1 8 f I m m t u D a g u r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð
1
6
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
6
-3
5
C
4
2
0
9
6
-3
4
8
8
2
0
9
6
-3
3
4
C
2
0
9
6
-3
2
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K