Fréttablaðið - 16.08.2018, Síða 25
Við vitum öll að einnota tíska fer afar illa með umhverfið. Talið er að milljarður fata-
plagga sé framleiddur árlega og um
helmingur þess ódýra fatnaðar sem
seldur er fer í ruslið innan árs. Þetta
viðskiptalíkan fær okkur til að versla
án þess að leiða hugann að því hvað
við þurfum og munum í raun nota.
Föt að andvirði 30 milljarðar enskra
punda hanga í fataskápum án þess
að nokkur hafi nokkru sinni klæðst
þeim og fatnaður að andvirði 140
milljarðar punda fer í landfyllingar
ár hvert svo það er ekki að undra
að tískuiðnaðurinn muni nýta
um fjórðung af mengunarkvóta
heimsins árið 2050. Sumar versl-
anir, eins og H&M til dæmis, hafa
gripið boltann og bjóða viðskipta-
vinum sínum að skila ónýtum eða
ónotuðum fötum í búðirnar og fá í
staðinn inneign í búðinni. Deila má
um hvort það sé nóg.
Því hafa æ fleiri horft til möguleik-
ans á leigutísku. Westfield-verslunar-
miðstöðin í Bretlandi gerði tilraun
með að opna tískuleigu í nokkra
daga til að athuga hvort sá möguleiki
væri raunhæfur og niðurstöðurnar
voru jákvæðar fyrir þá sem láta sig
umhverfið varða. Hægt var að leigja
dýran hátískufatnað og fylgihluti
fyrir aðeins brot af raunvirði um
jólaleytið sem er mikil veislutíð í
Bretlandi. Flestir leigðu sér eitthvað
tvennt og meðalleigutíminn var
aðeins eitt kvöld. Karlar voru aðeins
viljugri til að leigja sér veislufatnað
en konur en samkvæmt könnunum
reynast 60% Breta líta á það sem
ákjósanlegan kost að leigja sér
fatnað til að nota við sérstök tilefni
frekar en að fjárfesta fyrir eitt kvöld.
Nefndu flestir það sem kost að geta
leigt dýr föt frá þekktum merkjum
sem þeir hefðu ekki efni á að kaupa
en fannst gaman að geta skartað við
rétt tilefni. Einnig sögðu margir að
það borgaði sig að leigja frekar en
kaupa föt við tilefni þar sem mikið
er tekið af myndum, eins og brúð-
kaupsveislur.
Deilihagkerfið hefur breytt við-
horfum gríðarlega á undanförnum
árum og framtíðarspár gera ráð fyrir
að tískuleiga muni aukast tölu-
vert á næstu árum. Tískan er enda
síbreytileg og erfitt að tolla í henni
nema með stórum fjárfestingum á
hverjum ársfjórðungi sem er bæði
slæmt fyrir umhverfið og budduna.
Bloggarar og áhrifavaldar eru
löngu farnir að nýta sér tískuleigu-
markaðinn. Ef einhver úr þeim hópi
deilir mynd af sér í því sem viðkom-
andi segir vera nýju fötin sín eru lík-
urnar miklar á því að viðkomandi sé
þegar búinn að skila þeim í leiguna
og farinn að leita að næsta setti.
Shika Bodani, stofnandi hátísku-
leigusíðunnar FrontRow, segir að
eftirspurnin sé mest eftir dýrum
merkjavörum og fylgihlutum en
á síðunni má fá hátísku leigða til
fimm daga í senn og fyrir töluverðar
upphæðir sem slaga þó ekki hátt í
raunverðmiðann á vörunni. „Fólk
er ekki bara að hugsa um hag-
kvæmnina,“ segir Bodani, „þó hún
sé eflaust stærsti þátturinn, heldur
líka umhverfisþáttinn sem hefur
verið æ meira áberandi í umræðunni
kringum tískuna.“
Því hefur verið spáð að tískuleiga
sé komin til að vera á sama hátt og
Spotify, Netflix og Airbnb, enda er
möguleikinn fyrir hendi að þeir sem
vilja fjárfesta í einstökum tísku-
vörum geti síðan leigt þær kvöld og
kvöld og þannig deilt gleði sinni með
öðrum og fengið upp í afborgunina.
Og allir græða, líka umhverfið.
Nýjasta tíska til leigu
Hugmyndin um tískuleigur ryður sér til rúms. Byggir hún á hugmyndafræði deilihagkerfis, að þú
þurfir ekki að fjárfesta í hlutum heldur getir leigt eða fengið lánað það sem þú þarft hverju sinni.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Þessi kjóll er úr lystisnekkjulínu
Chanel 2018 og er til leigu í fimm
daga fyrir 30.000 krónur sem eru tíu
prósent af söluvirði úr búð.
Þessi Elie Saab kjóll úr diskólínunni
2017 fæst leigður í fimm daga á
innan við tíu prósent af kaupverði.
Þessi Gucci peysa úr vorlínunni 2018
er meðal fatnaðar sem hægt er að
leigja hjá tískuleigum eins og Front-
Row. MYNDiR/NoRDiCphotoS/GEttY
Haustið er komið
í Comma í Smára-
lind og verslunin
stútfull af nýjum
vörum. Köflótt,
röndótt og tein-
ótt eru heitustu
mynstrin í haust-
tískunni.
Haustin eru líflegur tími þar sem skólinn hefst á ný, fólk snýr aftur til vinnu eða
breytir um starf. Þá er gaman að
klæða sig upp á og ganga þannig
í augun á skóla- og vinnufélögun-
um,“ segir Hjördís Sif Bjarnadóttir,
eigandi Comma í Smáralind.
Hún segir ýmis ný trend koma
inn með haustinu. „Köflótt, rönd-
ótt og teinótt. Þessi þrenna verður
áberandi þennan vetur,“ lýsir hún
og bætir við að í haustlínunum sé
að finna ullar- og kasmírpeysur,
blússur, leðurpils, töff klúta og
áberandi hálsmen.
Hvað með liti? „Þeir litir sem
verða áberandi í haust og vetur eru
fjólublár og dökkrauður, dökkblár
og koníaksbrúnn í bland, og föl-
bleikur með svörtu,“ svarar Hjördís
og finnst skemmtilegt að slík
litagleði skuli lífga upp á komandi
vetur. Hún segir dragtir koma
sterkar inn og í boði sé mikið úrval
af þeim. „Þá eru kjólarnir og pilsin
alltaf vinsæl og við eigum úrval af
þeim bæði til að nota dagsdaglega
og við sparileg tækifæri.“
Alltaf er hægt að finna eitthvað
nýtt og skemmtilegt í verslun
Comma enda eru línurnar tólf á
hverju ári og nýjar vörur berast
vikulega. „Okkar áhersla er alltaf
á viðskiptavininn því við viljum
að honum líði vel í því sem hann
klæðist. Fötin okkar eru með
þýskum sniðum sem henta okkur
Íslendingum sérstaklega vel. Við
bjóðum upp á klæðilegar blússur
og mismunandi snið á buxum
enda erum við ekki allar eins í
laginu,“ segir Hjördís glaðlega en
boðið er upp á stærðir frá 34 til 46.
Í tilefni af því að verslunin fyllist
nú af haustvörunum býður Hjördís
viðskiptavinum Comma að kíkja í
verslunina á annarri hæð Smára-
lindar í dag, fimmtudag, og njóta
léttra veitinga og kynningar á því
sem koma skal í vetur.
Litríkt og mynstrað haust í Comma
Comma kynnir nýja haustlínu í verslun sinni í Smáralind í dag. Af því tilefni
verður viðskiptavinum boðið upp á léttar veitingar.
22.490 kr.
8.990 kr.
11.990 kr.
18.490 kr.
13.990 kr.
FÓLK KYNNiNGARBLAÐ 5 F i M Mt U DAG U R 1 6 . ág ú S t 2 0 1 8
1
6
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
6
-1
8
2
4
2
0
9
6
-1
6
E
8
2
0
9
6
-1
5
A
C
2
0
9
6
-1
4
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K