Fréttablaðið - 16.08.2018, Síða 36

Fréttablaðið - 16.08.2018, Síða 36
Hvernig tryggjum við að börn nái tökum á læsi og þeirri flóknu málnotkun sem nútíma sam-félag útheimtir? Það er nokkuð sem við þurfum að ræða,“ segir Hrafnhildur Ragnars- dóttir prófessor um viðfangsefni ráðstefnu Menntavísindasviðs HÍ sem haldin er í dag. Hrafnhildur bendir á að aðstæð- ur íslenskra barna til að öðlast góðan málþroska og lesskilning hafi um margt gerbreyst á síðustu tíu árum, að ekki sé talað um ef horft er lengra aftur. „Nú eru börn í skólum lungann úr deginum frá tveggja ára aldri, fjölskyldu- mynstur hafa breyst og flestir foreldrar vinna langan vinnudag þannig að samskipti við nánustu fjölskyldu, tilfinningaleg og vits- munaleg, eru ekki söm og áður. Svo er það blessuð tólmenningin, tölvur og snjalltæki sem taka sinn toll, ekki síst hjá eldri börnum og unglingum. Þetta þýðir að við þurf- um að hugsa dæmið upp á nýtt og kafa mun dýpra en mér finnst gert í umræðunni á Íslandi í dag.“ Er hægt að snúa þessari þróun við eða hvern telur Hrafnhildur sjálf lykilinn vera að góðum málþroska? „Við þurfum að skilja hvernig börn læra mál og öðlast færni í lestri og ritun til að ná að laga upp- eldið að síbreytilegum aðstæðum. Þar er fullorðna fólkið gullnáman. Því meiri samskipti sem börn hafa við aðstandendur og aðra full- orðna, og því tilbúnari sem þeir eru til að setja sig í spor barnanna, svara spurningum, hvetja þau áfram og fræða þau um allt milli himins og jarðar, því betra. En það gerist ekki nema tími og vilji sé fyrir hendi,“ segir Hrafnhildur. Er hún að boða lífsstílsbreytingu? „Ja, auðvitað er það samfélagið sem hefur áhrif á stóru myndina, setur leikreglurnar og ræður tempó- inu. Síðan verðum við aðstand- endur, foreldrar, ömmur og afar, að forgangsraða með það í huga að börnin nái að blómstra. Það gerum við með því að gefa okkur meiri tíma með börnunum. Samræður eru svo mikil vægar í sambandi við allan skilning og ef lesið er fyrir börn og augu þeirra opnuð fyrir lífinu umhverfis, náttúru og menn- ingu, er svo miklu auðveldara fyrir þau að skilja það sem kemur fram í skólanum um þau efni. Umræðu- efnin breytast svo þegar börnin verða unglingar en samræðurnar eru áfram lykilatriði.“ Tilfinninga- og félagsþroski er mikilvægur í öllu námi að mati Hrafnhildar. „Ef börn eru að lesa um fólk í öðrum menningarsamfélögum eða frá öðrum tíma í sögunni en þau þekkja, þá er nauðsynlegt að þau geti sett sig í spor annarra. Það er svo aftur ein mikilvæg undirstaða lesskilnings. Við megum ekki leggja of mikla áherslu á hraða í lestri, við verðum líka að gefa okkur tíma til að skilja og meðtaka það sem lesið er.“ Hrafnhildur hefur unnið í 42 ár við kennslu og fræðimennsku í Kennaraháskólanum og á Mennta- vísindasviði HÍ. „Ráðstefnan í dag er haldin að mínu frumkvæði í tilefni af starfs- lokum með dyggum stuðningi sam- starfskvenna minna. Ég á vini og samstarfsfólk bæði hér og erlendis sem er að gera nýja og merkilega hluti í sambandi við undirstöður og langtímaþróun lesskilnings og læsis, allt fólk sem var til í að taka þátt í þessu giggi. Mig langaði að láta fyrrverandi nemendur mína, kennarana í skólunum og auðvitað allan almenning, njóta þess áður en ég yfirgef sviðið.“ Aðstæður barna hafa gerbreyst á síðustu árum „Við þurfum að skilja hvernig börn læra mál og öðlast færni í ritun til að ná að laga uppeldið að síbreytilegum aðstæðum,“ segir Hrafnhildur. Fréttablaðið/Eyþór RannsakenduR á heimsvísu Fyrirlesarar á ráðstefnunni eru rannsakendur á heimsvísu frá Bandaríkjunum, Noregi og Svíþjóð sem allir eru í framvarðarsveit í mál- og læsisrannsóknum. Meðal þeirra er Catherine Snow, prófessor við Harvard Graduate School of Education. Hún hefur stýrt tímamótarannsóknum á mál- þroska, læsi og lesskilningi barna og ungmenna. Þær rannsóknir hafa orðið leiðarljós í stefnumótun á öllum skólastigum í Bandaríkj- unum og verið ráðgefandi í sam- bærilegum rannsóknum um víða veröld. Rauði þráðurinn í rannsókn- um Snow hefur verið að skilgreina hvers konar reynsla, samskipta- mynstur og kennsla, heima og í skóla, stuðlar helst að velgengni og góðum námsárangri barna og unglinga, einkum og sér í lagi þeirra sem eru í áhættuhópi vegna félags- legra aðstæðna eða vegna þess að móðurmál þeirra er annað en það sem notað er í skólanum. Byggjum brýr og eflum læsi frá leik- skóla til unglings- ára er heiti ráð- stefnu sem haldin er í dag í hí að frumkvæði hrafn- hildar Ragnars- dóttur prófessors. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is ef lesið eR fyRiR BöRn og augu þeiRRa opnuð fyRiR lífinu umhveRfis, náttúRu og menningu, eR svo miklu auðveld- aRa fyRiR þau að skilja það sem kemuR fRam í skólanum um þau efni Fjölmennur samráðsfundur um bókmenntir og bókmennta-hátíðir verður haldinn í Gunn- arshúsi við Dyngjuveg í kvöld. Davíð Stefánsson skáld hefur skipulagt fundinn. „Þetta er í raun fagfundur,“ segir hann. „Tilefnið er það að hér á landi eru staddir góðir gestir frá Svíþjóð, þau Anita Alexanderson og Victor Estby frá sænsku sumarbókmennta- hátíðinni Bokdagar i Dalsland. Þau sjá auk þess um umfangsmikla starf- semi í Västra Götaland þar sem rit- höfundum er boðið til dvalar.“ Davíð segir Anitu hafa verið annan tveggja stofnenda bókmenntahá- tíðarinnar Bokdagar i Dalsland árið 2000. „Hátíðin hefur vaxið stöðugt síðan og Victor tók við stjórnar- taumunum í fyrra. Hún er hins vegar kjarnorkukona og hvergi nærri hætt, heldur starfar áfram sem alþjóðlegur tengiliður bókmenntafólks og bók- menntahátíða á Norðurlöndunum og í Evrópu allri.“ Sjálfur kveðst Davíð hafa dvalið í þrjár vikur í fyrra á vegum þessa heiðursfólks í borginni Åmål, að skrifa skáldsögu. „Áhugi þeirra Anitu og Victors á Íslandi er mikill. Ég stakk upp á að þau kæmu hingað í heimsókn á Menningarnótt og það varð úr. Reyndar er rosalega mikill Íslands- áhugi í Svíþjóð almennt. „Ég var bara eins og stjarna og Einar Már er eins og súperstjarna þar.“ – gun Bókmenntafólk frá Svíþjóð komið í heimsókn Victor Estby og anita alexanderson ætla til dæmis að upplifa Menningarnótt. 1 6 . á g ú s t 2 0 1 8 F I M M t U D A g U R28 M e n n I n g ∙ F R É t t A B L A ð I ð 1 6 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 9 6 -1 8 2 4 2 0 9 6 -1 6 E 8 2 0 9 6 -1 5 A C 2 0 9 6 -1 4 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.