Fréttablaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 6
Sefitude — ný meðferð við
kvíða og svefntruflunum
Notkun Við vægum kvíða: fullorðnir, 1 tafla á dag allt að 3 á dag. 12–18 ára: 1 tafla á dag allt að 2 á dag.
Við svefntruflunum: fullorðnir og eldri en 12 ára: 1 tafla ½–1 klukkustund fyrir svefn. Ekki ráðlagt börnum yngri en
12 ára, þunguðum konum eða konum með börn á brjósti. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli
fyrir notkun. Leitið læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Fæst í öllum helstu apótekum án lyfseðils
Ert þú að fást við svefntruflanir eða kvíða?
Sefitude er viðurkennt jurtalyf unnið úr rót garðabrúðu.
Styttir tímann til að sofna og bætir gæði svefns.
florealis.is/sefitude
Í stjórnarsáttmálanum segir að ríkisstjórnin muni beita sér fyrir samstilltu átaki með aðilum vinnumarkaðarins til
að tryggja að kjarasamningar skili launþegum og samfélaginu raunverulegum ávinningi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Sólveig Anna
Jónsdóttir
formaður
Eflingar
„Það er unnið
hörðum höndum að undirbúningi
kröfugerðar. Við erum í greiningar-
vinnu hér á kjaramálasviðinu og
erum að skoða mjög margt.“
Sólveig Anna segir líka að beðið
sé eftir niðurstöðum úr ítarlegri
launakönnun meðal félagsmanna.
„Niðurstöður þessarar könnunar
munu nýtast okkur vel því við
erum að kanna hug félagsmanna
og stemninguna meðal þeirra.“
Þar að auki mun Efling standa
fyrir fundaröð sem hefst í dag.
„Við munum fara yfir ýmislegt,
ekki síst áherslurnar í kjaramálun-
um. Svo verðum við með vinnu-
staðafundi í næstu viku þar sem
við eigum beint samtal við okkar
félagsmenn.“
Aðalsteinn
Baldursson
formaður
Framsýnar
„Það má segja að við
séum að versla í okkar kröfugerð.
Við auglýstum eftir hugmyndum
félagsmanna og það er byrjað
að skila sér. Svo verðum við með
félagsfund þar sem fólk fær tæki-
færi til að taka þátt í afgreiðslu
tillagnanna.“
Aðalsteinn segir ýmsar hug-
myndir þegar fram komnar.
Sumar snúi að launatölum,
meðal annars að lágmarkslaun
verði 375.000 krónur á mánuði.
„Svo eru hugmyndir um hækkun
persónuafsláttar og að hann falli
niður við milljón króna tekjur.
Einnig um styttingu vinnu-
vikunnar og hækkun vaxta- og
barnabóta.“
Hilmar
Harðarson
formaður
Samiðnar
„Við erum að leggja af
stað í það verkefni að móta okkar
kröfugerð. Það verður farin hring-
ferð þar sem öll aðildarfélögin
verða heimsótt. Það er mikilvægt
fyrir okkur að heyra í grasrótinni
hvar áherslur okkar eiga að liggja.
Svo vinnum við úr þeim gögnum.“
Hilmar segir það kröfu félags-
ins að fá góða kaupmáttaraukn-
ingu. „Þrátt fyrir áherslu á hækkun
lægstu launa hefur kaupmáttur
þessa hóps aukist mun minna en
þeirra sem eru hærra launaðir.“
Þá gagnrýnir Hilmar að æðsta
stjórnkerfið sé orðið leiðandi í
launaþróun. „Hugsanlegir erfið-
leikar í tengslum við kjarasamn-
inga skrifast
alfarið á stjórn-
völd.“
Ragnar Þór
Ingólfsson
formaður VR
„Við sendum könnun
til okkar félagsmanna um afstöð-
una til komandi kjarasamninga.
Það hefur verið gríðarlega mikil
svörun og greinilegt að baklandið
er orðið virkara. Við höfum ekki
séð svona mikinn áhuga í langan
tíma.“
Ragnar Þór segir það klárt mál
að ef alvara sé á bak við það að
bæta kjör almennings þurfi að
ráðast í almennar kerfisbreytingar
sem séu forsenda þess að launa-
hækkanir skili sér.
„Það er þegar búið að sam-
þykkja hluta kröfugerðarinnar.
Við munum leggja mikla áherslu
á húsnæðismálin og viljum
þjóðarátak þar. Svo
verður áhersla á
skattkerfisbreytingar
eins og þrepaskiptan
persónuafslátt.“
Tónninn sleginn í kröfugerð
vegna komandi kjarasamninga
KJARAMÁL Stjórnvöld hafa staðið
fyrir samráðsfundum með aðilum
vinnumarkaðarins frá því í árs-
byrjun. Í aðdraganda komandi
kjarasamninga var Gylfi Zoëga hag-
fræðiprófessor fenginn til að vinna
skýrslu um stöðu efnahagsmála. Í
skýrslunni sem kynnt var í samráðs-
hópnum í síðustu viku kemur fram
að svigrúm til launahækkana sé um
fjögur prósent.
Ljóst er að verkalýðshreyfingin
lítur einnig til aðgerða stjórnvalda til
að liðka fyrir samningum. ASÍ sendi í
gær frá sér tilkynningu þar sem segir
að tími aðgerða sé runninn upp. Búið
sé að greina stöðuna og er þar meðal
annars vísað í ársgamla skýrslu sam-
bandsins um þróun á skattbyrði
launafólks.
Segir í tilkynningunni að kaup-
máttaraukning síðustu ára hafi síður
skilað sér til lágtekjufólks vegna
vaxandi skattbyrði. Stjórnvöld hafi
í skattaáherslum sínum unnið gegn
áherslu verkalýðshreyfingarinnar á
sérstaka hækkun lægstu launa.
Þessi þróun hafi orðið vegna þess
að skattleysismörk hafi ekki fylgt
launaþróun á sama tíma og vaxta-
og barnabætur hafi lækkað. ASÍ
segir að boltinn sé hjá stjórnvöldum
og tími til kominn að tekið verði á
þessu augljósa óréttlæti.
sighvatur@frettabladid.is
Kjarasamningar á al-
mennum vinnumarkaði
renna út um næstu
áramót. Verkalýðs-
hreyfingin vinnur nú að
kröfugerð sinni en at-
vinnurekendur hafa sagt
að lítið svigrúm sé til
launahækkana. Verka-
lýðsfélög leita til gras-
rótarinnar til að fá fram
áherslumálin.
DóMsMÁL Vigfús Jóhannesson var í
gær dæmdur í fjögurra ára fangelsi
í Héraðsdómi Norðurlands eystra,
fyrir misneytingu og ítrekaðar
nauðganir á þroskaskertri konu.
Hann var bocciaþjálfarinn hennar
um nokkurra ára skeið og var gerður
að persónulegum talsmanni hennar
árið 2015. Við ákvörðun refsingar
var litið til þess að maðurinn sýndi
enga iðrun þrátt fyrir að hafa ekki
getað dulist fötlun konunnar og erf-
iðar aðstæður.
Vigfús var einnig dæmdur til
að greiða konunni tvær milljónir
í miskabætur ásamt vöxtum en í
framburði sálfræðings fyrir dómi
kom fram að brot mannsins hefðu
haft mjög alvarleg áhrif á andlega
heilsu konunnar. – aá
Nauðgari fékk
fjögurra ára
fangelsisdóm
Vigfús fékk fjögurra ára fangelsi
fyrir brot sín gegn konunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AuÐunn
NeyteNDuR Heildsöluverð á smjöri
hækkar um fimmtán prósent í dag
og heildsöluverð mjólkur og mjólk-
urafurða annarra en smjörs um 4,86
prósent. Atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytið tilkynnti um þessa
ákvörðun verðlagsnefndar búvara
í gær. Lágmarksverð mjólkur til
bænda hækkar um 3,52 prósent,
eða úr 84,4 krónum í 90,48 krónur.
Samkvæmt því sem kom fram
í tilkynningu ráðuneytisins er
hækkunin til komin vegna kostn-
aðarhækkana við framleiðslu og
vinnslu mjólkur. Greint er frá því
að síðasta verðbreyting hafi verið
gerð á nýársdag 2017 og síðan þá
hafi gjaldaliðir í verðlagsgrund-
velli kúabús hækkað um 3,6 pró-
sent. Reiknuð hækkun vinnslu- og
dreifingarkostnaðar afurðastöðva
hafi þá hækkað um 8,14 prósent.
– þea
Rukka meira
fyrir smjörið
1 . s e p t e M b e R 2 0 1 8 L A u G A R D A G u R6 f R é t t i R ∙ f R é t t A b L A ð i ð
0
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
B
7
-7
7
4
0
2
0
B
7
-7
6
0
4
2
0
B
7
-7
4
C
8
2
0
B
7
-7
3
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K