Fréttablaðið - 01.09.2018, Page 10
Kringlan 4–12 103 Reykjavík www.reitir.is 575 9000
TIL LEIGU
Myndir, teikningar og nánari upplýsingar má nálgast á www.reitir.is
og hjá Halldóri Jenssyni sölustjóra í 840 2100 eða halldor@reitir.is.
Lyngás 17, 748 m2
Bjart skrifstofurými í Garðabæ
Skrifstofurými á 2. hæð í lyftuhúsi í Garðabæ. Rýmið skiptist í opin rými með góðum gluggum og skrifstofur/fundarherbergi.
Góð lofthæð, þakgluggar og fallegt útsýni. Reitir geta útfært eða breytt rýminu í takt við þarfir nýrra leigutaka.
Kína Ásakanir nefndar Sameinuðu
þjóðanna um upprætingu kynþátta-
fordóma um að Kínverjar starfræki
risavaxnar heilaþvottabúðir fyrir
Uyghur-fólk í Xinjiang-héraði eru
óábyrgar og byggðar á röngum upp-
lýsingum. Þetta sagði Hua Chunying,
upplýsingafulltrúi utanríkisráðu-
neytis Kína, á blaðamannafundi í gær.
Nefndin lýsti áhyggjum sínum af
ástandinu í skýrslu á fimmtudaginn.
„Margar ábendingar hafa borist um
fangelsun stórra hópa Uyghur-fólks
og annarra minnihlutahópa sem eru
íslamstrúar. Fólki sé meinað að hafa
samband við umheiminn í langan
tíma án þess að hafa verið ákært fyrir
nokkuð eða farið fyrir dómstóla. Þetta
sé gert undir því yfirskini að verið
sé að berjast gegn hryðjuverkum
og trúaröfgum,“ segir í skýrslu sem
nefndin birti almenningi á fimmtu-
dag. Ýmis hryðjuverkasamtök innan
þjóðflokksins hafa gert árásir í Kína.
Vitnað er til sönnunargagna frá
Xinjiang í skýrslunni sem benda til
þess að tugum þúsunda sé haldið í
fangabúðum í héraðinu. Þar sé fólkið
„endurmenntað“. Nefndin lagði til
að Kommúnistaflokkur Kína sleppti
þeim sem hefðu ekki verið ákærð eða
hlotið dóm og rannsakaði vandlega
og á óhlutdrægan hátt ásakanir um
kynþáttafordóma í garð Uyghur-fólks
og annarra múslima.
Einnig fór nefndin fram á að Kín-
verjar greini opinberlega frá staðsetn-
ingu og ástandi flóttamanna úr Uyg-
hur-þjóðflokknum sem kínverska
ríkið krafðist að kæmu heim á undan-
förnum fimm árum. Farið var fram á
skýringu á því hversu margir væru
í fangabúðunum í Xinjiang, hvers
vegna hver og einn hefði verið fluttur
þangað og ástandi fanga og kennslu-
skrá „endurmenntunarinnar“.
Newsnight, fréttaskýringaþáttur
á BBC, fjallaði ítarlega um málið á
fimmtudag. Meðal annars var greint
frá því að gervihnattamyndir sýndu
að stórar fangabúðir hefðu nýlega
verið byggðar og þá voru sýndar ljós-
myndir af föngum sem áttu að hafa
verið teknar í búðunum.
Rætt var við tvo sjónarvotta, annar
hafði verið í búðunum og hinn heim-
sótt þar ástvin. Frásögnum þeirra bar
saman um að fólk væri látið kyrja
söngva Kommúnistaflokksins, afneita
trú sinni og þylja upp boðskap kín-
verska kommúnismans.
Maðurinn sem hafði verið í búð-
unum sagðist hafa verið pyntaður og
hengdur upp klukkutímum saman
fyrir framan ýmis pyntingartæki.
Sá sem heimsótti búðirnar sagði að
vinir hans og vandamenn í búðunum
hefðu virst eins og vélmenni.
John Sweeney, blaðamaður BBC
sem var með umfjöllunina, sagði að
þótt Kínverjar hefðu talað um endur-
menntun í útgefnu efni kallaðist starf-
semin í búðunum í Xinjiang einfald-
lega „heilaþvottur“ á mannamáli.
Mannréttindabrotarannsakandi
sem BBC ræddi við sagði að afar hóf-
legt væri að áætla að 100.000 væri
haldið í búðum í Xinjiang. Mögulega
væri talan mun nær milljón.
Allnokkrir bandarískir þingmenn
úr röðum beggja stóru flokkanna
kölluðu eftir því í vikunni að ráðist
yrði í þvingunaraðgerðir vegna máls-
ins. „Í ljósi fangelsunar allt að milljón
Uyghur-fólks og annarra múslima í
„pólitískum endurmenntunarbúð-
um“ er nauðsynlegt að alþjóðasam-
félagið bregðist við af hörku,“ sagði í
bréfi sem þingmennirnir sendu Mike
Pompeo utanríkisráðherra.
„Saga mannréttindamála í Kína er
mun betri en í Bandaríkjunum þann-
ig að Bandaríkin eru ekki í neinni
stöðu til þess að dæma okkur. Kína
er staðráðið í því að tryggja trúfrelsi
kínverskra borgara,“ sagði Hua um
bréfið. thorgnyr@frettabladid.is
Kína hafnar ásökunum um heilaþvott
Nefnd á vegum SÞ sakar Kínverja um að heilaþvo Uyghur-fólk í búðum í Xinjiang-héraði. Kínverjar sakaðir um heilaþvott og pynting-
ar. Talið að milljón gæti verið í haldi án ákæru eða dóms. Kínverjar hafna ásökununum og segja þær byggðar á röngum upplýsingum.
Hua Chunying, upplýsingafulltrúi kínverska utanríkisráðuneytisins, hafnaði ásökununum í gær. NordiCpHotos/AFp
1 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
0
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
B
7
-8
6
1
0
2
0
B
7
-8
4
D
4
2
0
B
7
-8
3
9
8
2
0
B
7
-8
2
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
1
2
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K