Fréttablaðið - 01.09.2018, Qupperneq 12
Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og
heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu.
Afkoma er góð með um 80 milljóna kr. ársveltu
og ágætan hagnað.
Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða
möguleika á veltuaukningu bæði í verslun,
heildverslun og verktöku.
Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða
samhenta fjölskyldu.
Fyrirtæki með
mikla möguleika
Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og
heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu.
Afkoma er góð með um 80 milljóna kr. ársveltu
og ágætan hagnað.
Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða
möguleika á veltuaukningu bæði í verslun,
heildverslun og verktöku.
Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða
samhenta fjölskyldu.
Fyrirtæki með
mikla möguleika
Fyrirtæki með mikla möguleika
Gamalgróin og vel þekkt raftækjaverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu.
Mikill eigin innflutningur á ýmis konar rafmagnsvörum sem gefur
töluverða möguleika á veltuaukningu bæði í verslun og heildverslun.
Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða samhenta fjölskyldu.
Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og
heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu.
Afkoma er góð með um 80 milljóna kr. ársveltu
og ágætan hagnað.
Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða
möguleika á veltuaukningu bæði í verslun,
heildverslun og verktöku.
Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða
samhenta fjölskyldu.
Fyrirtæki með
mikla möguleika
Æðstu yfirmenn m j a n m a r s k a hersins, sem kallaður er Tatma daw á máli heimamanna,
voru í vikunni sakaðir um alvarleg
brot á alþjóðalögum. Í skýrslu sem
rannsóknarnefnd á vegum mann
réttindaráðs SÞ birti voru mennirnir
sakaðir um þjóðarmorð, glæpi gegn
mannkyninu og stríðsglæpi.
Yfirvöld í Mjanmar, til að mynda
Nóbelsverðlaunahafinn Aung San
Suu Kyi, eru sökuð um að ljúga um
glæpi hersins. Bæði yfirvöld og her
hafa lýst sig saklaus af ásökununum.
Skýrslan er sögð einhliða.
Þótt skýrslan fjalli einnig um
ofbeldi í Shan og Kachinríkjum
Mjanmar er að mestu fjallað um
þjóðarmorðið á þjóðflokknum
Róhingjum í Rakhineríki. Á meðan
meirihluti Rakhine, og Mjanmar
alls, er byggður búddistum eru
Róhingjar múslimar.
Svart haust
Haustmánuðir síðasta árs rata á
spjöld sögunnar sem einir þeir
svörtustu í sögu þessa heimshluta,
jafnvel heimsins alls. Eftir auknar
ofsóknir í kjölfar átaka í ríkinu árið
2012 höfðu margir Róhingjar fengið
nóg. Frelsisher Róhingja (ARSA)
gerði árás á herstöðvar í Rakhine
þann 25. ágúst 2017.
Ekki var um háþróaða árás stór
hættulegra hryðjuverkasamtaka að
ræða. Lítill hluti óþjálfaðra leiðtoga
ARSA bar skotvopn en flestir árásar
mennirnir voru algjörlega óþjálfaðir
og báru prik og hnífa. Sumir höfðu
frumstæðar sprengjur. Tólf fórust í
árásunum.
„Viðbrö ð yfirvalda, sem fóru af
stað innan við klukkutíma seinna,
voru snör, harðneskjuleg og úr öllu
samhengi við upphaflegu árásirnar,“
segir í skýrslunni. Markmið yfir
valda var að afmá „hryðjuverkaógn
ina“ sem stafaði af ARSA og á næstu
dögum og vikum breiddist ofbeldið
út til hundraða bæja. Aðgerðirnar
beindust gegn öllum Róhingjum og
töluðu yfirvöld um „hreinsunarað
gerðir“ í þessu samhengi. Á árinu
sem fylgdi flúðu að nærri 750.000
Róhingjar til Bangladess.
Rannsakendur segja að árásar
mynstrið hafi verið hið sama alls
staðar. Róhingjar vöknuðu við
skotvelli, sprengingar eða öskur
nágrann sinna. Kveikt var í bygg
ingum, byrgt fyrir dyrnar og skotið
var inn um glugga.
Landið sem hinir brenndu bæir
stóðu á fór ekki aftur til Róhingja.
Jarðýtur flöttu landið út og var
þannig öllum ummerkjum um
fyrri veru Róhingja á svæðinu eytt.
Nýjar byggingar voru svo reistar
fyrir „alvöru“ íbúa Mjanmar.
Hrottaleg brot
Mat rannsakenda á tölu látinna er
það að of hóflegt væri að áætla að
10.000 Róhingjar hafi verið myrtir.
Í skýrslunni eru útlistuð nokkur af
svæsnustu brotum hersins.
Fjallað er um að í Min Gyi, Maung
Nu, Chut Pyin, Gudar Pyin og í fleiri
bæjum hafi stórfelldar fjöldaaftökur
farið fram. Í mörgum tilfellum hafi
hundruð verið myrt í einu.
Einnig greina rannsakendur frá
því að hermenn hafi beitt kyn
ferðisofbeldi sem vopni. Konum
hafi verið nauðgað í hópum, jafn
vel þangað til þær létu lífið, fyrir
framan fjölskyldu sína.
Ásakanir rannsakenda
Yfirmenn mjanmarska hersins eru í
skýrslunni sakaðir um stríðsglæpi,
glæpi gegn mannkyninu og þjóðar
morð.
Mælst er til þess að öryggisráð SÞ
komi sér saman um að sjá til þess að
réttlætinu verði fullnægt. Annað
hvort með því að vísa málinu til
Alþjóðaglæpadómstólsins eða með
því að samþykkja skipun sjálfstæðs
stríðsglæpadómstóls. Í ljósi við
bragða Kínverja í vikunni, í þá átt að
skýrslan hafi verið til þess fallin að
auka á togstreituna og gert illt verra,
er ljóst að erfitt verður fyrir ráðið að
ná samkomulagi um aðgerðir.
Imogen Foulkes hjá BBC benti á í
vikunni að með því að skipa sérstak
an stríðsglæpadómstól, líkt og gert
var í kringum stríðsglæpi í Rúanda
og Júgóslavíu, væri hægt að komast
hjá neitunarvaldi öryggisráðsins.
Allsherjarþingið gæti skipað dóm
stólinn. Hins vegar þyrfti mjan
marska ríkið að vinna með rann
sakendum, tryggja að hinir ákærðu
mættu fyrir dóm.
Nóbelsverðlaunahafinn
Aung San Suu Kyi er þjóðarleið
togi Mjanmar. Hún komst til valda
í kosningum 2015 eftir að henni
hafði verið neitað um að taka við
völdum eftir kosningar árið 1990.
Eftir þær kosningar fór hún í stofu
fangelsi og fékk hún friðarverðlaun
Nóbels ári seinna fyrir friðsamlega
andstöðu sína gegn herforingja
stjórninni, sem ógilti kosningarnar.
Suu Kyi sneri aftur 2015 og tók sæti
eftir kosningar sem ríkisráðgjafi.
Þrátt fyrir að hafa engin völd yfir
hernum er Suu Kyi ekki undanskilin
gagnrýni rannsakenda í skýrslunni.
Hún er sögð, líkt og ríkisstjórn
hennar öll, hafa logið um glæpi
hersins, neitað því að þeir hafi átt
sér stað og um að torvelda starf
rannsakenda. Ólíklegt þykir þó að
Suu Kyi verði sjálf dregin fyrir dóm.
Viðbrögð Mjanmar
Mjanmarska ríkið neitaði því alfarið
í vikunni að þjóðarmorð hefði verið
framið. „Við leyfðum nefndinni
ekki að koma til Mjanmar og þar
af leiðandi munum við ekki sam
þykkja eða vera sammála neinum
ályktunum mannréttindaráðsins,“
sagði Zaw Htay, upplýsingafulltrúi
ríkisstjórnarinnar.
Htay sagði að ríkisstjórnin hefði
sjálf ráðist í rannsókn á „upplognum
ásökunum stofnana Sameinuðu
þjóðanna og alþjóðasamfélagsins“.
Þá væri ríkisstjórnin algjörlega and
víg öllum mannréttindabrotum.
Þessar rannsóknir mjanmarskra
yfirvalda eru sagðar algjörlega
marklausar í skýrslunni.
Suu Kyi gagnrýnd
Zeid Ra’ad al Hussein, mannrétt
indastjóri Sameinuðu þjóðanna,
sagði á fimmtudag að Suu Kyi hefði
getað gert mun meira til þess að
koma í veg fyrir hörmungarnar.
Hún hefði getað sagt af sér og hefði
í raun átt að gera það frekar en að
reyna að hreinsa mannorð hersins.
„Hún var í góðri stöðu til þess að
beita sér. Annaðhvort hefði hún
átt að þegja eða einfaldlega segja
af sér. Það var engin þörf á því að
hún yrði talsmaður mjanmarska
hersins,“ sagði Hussein í viðtali við
fyrrnefnda Foulkes hjá BBC.
Suu Kyi hefur sjálf ekki tjáð sig um
skýrslu vikunnar. Hún hefur áður
sagt, í viðtölum við fjölmiðla og á
ráðstefnum, að ásakanirnar byggist
á misskilningi og falsfréttum.
Þjóðarmorð á Róhingjum í Mjanmar
Mjanmarskir herforingjar voru í vikunni sakaðir um þjóðarmorð. Sagðir hafa brennt Róhingja inni í húsum þeirra og tekið af lífi í
hrönnum. Mjanmarska ríkið neitar sök og fyrrverandi friðarverðlaunahafinn sem leiðir ríkisstjórnina hefur sagt um falsfréttir að ræða.
Ungar Róhingjastelpur á bak við gaddavírsgirðingu í Kutupalong-flóttamannabúðunum í Bangladess. NoRdicpHotoS/AFp
Aung San Suu Kyi ríkisráðgjafi á ráðstefnu í vikunni. NoRdicpHotoS/AFp
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
Haustmánuðir síðasta
árs rata á spjöld sögunnar
sem einir þeir svörtustu í
sögu þessa heimshluta.
Umfjöllun um baksögu þessarra
ofsókna má nálgast á +Plús síðu
Fréttablaðsins.
Fréttablaðið +plús er eingöngu
í Fréttablaðs-appinu eða í
pdF-útgáfu blaðsins sem er
aðgengileg á frettabladid.is.
+plúS
1 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
0
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
B
7
-7
2
5
0
2
0
B
7
-7
1
1
4
2
0
B
7
-6
F
D
8
2
0
B
7
-6
E
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K