Fréttablaðið - 01.09.2018, Side 16
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án
endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Er ekki
eðlilegt að
forsvarsmenn
lífeyrissjóð-
anna hugsi
sinn gang
– reyni að átta
sig á hvernig
koma megi í
veg fyrir að
slíkur verð-
mætabruni
endurtaki
sig?
Umrót er í viðskiptalífinu svo ekki sé meira sagt. Stóru flugfélögin, Wow og Icelandair, eru fyrirferðarmest. Hið fyrrnefnda náði mikilvægum fjármögnunaráfanga í vikunni og virðist, ef marka má orð stjórnenda, vera komið fyrir
vind fram að fyrirhugaðri skráningu félagsins á næstu
18 til 24 mánuðum.
Icelandair birti sína aðra afkomuviðvörun á réttum
sex vikum. Í kjölfarið axlaði forstjórinn, Björgólfur
Jóhannsson, ábyrgð á slælegu gengi og hætti störfum.
Mikið hefur verið rætt um kerfislega áhættu sem af
kunni að hljótast ef annað flugfélaganna, eða bæði,
lenda í rekstrarvandræðum eða gjaldþroti. Ferða
mannaiðnaðurinn er okkar stærsta útflutningsgrein.
Vart þarf að fjölyrða um áhrifin ef verulegur hluti
ferðamanna sem hingað ætla sér að koma kemst ekki.
Að þessu leyti eru flugfélögin tvö á sama báti. Bæði
eru þau orðin kerfislega mikilvæg fyrir land og þjóð.
Að öðru leyti eru þau gerólík. Wow er ungt fyrirtæki
sem vaxið hefur gríðarlega undir stjórn forstjóra þess,
og eina eiganda, Skúla Mogensen. Lengi hefur verið
á allra vitorði að Skúli og Wow hafi spilað djarft. Það
fylgir því einfaldlega að vera ungt fyrirtæki sem ætlar
sér stóra hluti. Tímabundin lausafjárvandræði eru
þekkt stærð á þeirri vegferð.
Icelandair er rótgróið íslenskt stórfyrirtæki, upp
runalega stofnað 1937, og að mörgu leyti samofið
auknum samskiptum Íslands við umheiminn. Flug
leiðir, eins og Icelandair hét lengi vel, er flaggskipsflug
félag, rétt eins og BA í Bretlandi eða SAS á Norðurlönd
unum. Vandræði Icelandair rista einfaldlega dýpra í
þjóðarsálinni.
En kannski er það einmitt þessi staða Icelandair sem
eins af krúnudjásnunum í íslensku viðskiptalífi sem
er rót vandans. Félagið er nánast einvörðungu í eigu
íslenskra lífeyrissjóða, og því á forræði fólks sem sýslar
með annarra manna fé.
Ýmislegt bendir til þess að skjólstæðingar lífeyris
sjóðanna hafi látið áhrif og völd í stórfyrirtækinu
afvegaleiða sig frá því meginhlutverki að fylgjast með
rekstrinum og veita aðhald. Icelandair missti á meðan
sjónar á rekstrarkostnaði, og fór í auknum mæli að
fjárfesta í óskyldum rekstri.
Hvers vegna, fyrst lífeyrissjóðirnir hafa slíka trú á
flugrekstri, voru öll eggin sett í Icelandairkörfuna?
Hefði ekki verið eðlilegt að dreifa áhættunni og
fjárfesta samtímis í öðrum innlendum og erlendum
flugfélögum?
Hlutabréf í Icelandair hafa lækkað um 60% á einu
ári, 80% yfir tveggja ára tímabil. Lífeyrisþegar hafa
orðið fyrir gríðarlegu tjóni. Er ekki eðlilegt að forsvars
menn lífeyrissjóðanna hugsi sinn gang – reyni að átta
sig á hvernig koma megi í veg fyrir að slíkur verðmæta
bruni endurtaki sig?
Egg í sömu
körfu
Hugmyndafræði er eins og eðlisfræðiformúla búin til úr fiðurkoddum og kasmírull: x + y = klippt og skorin veröld þar sem íbúar sofa
værum svefni á hverri einustu nóttu með höfuðið á
handtíndum æðardún umvafnir vandlega ofinni voð og
vissu um að hlutirnir eru sléttir og felldir, annaðhvort
svartir eða hvítir, og martraðir á borð við efa og óvissu
eru efnislegur ómöguleiki.
Hugmyndafræði er á yfirborðinu jafnkósí og upp
búið rúm í Ikea. En þeir sem hreiðra um sig í slíku kerfi
fljóta þó gjarnan sofandi að feigðarósi.
Auðlindir handa öllum
Fyrir nokkrum vikum birtist í Fréttablaðinu grein um
eignarhald á landi eftir Ögmund Jónasson, fyrrverandi
þingmann og ráðherra. Í greininni spyr Ögmundur Sam
tök atvinnulífsins hvort ekki sé ráð að sameinast um að
auðlindir Íslands á borð við land verði Íslendinga allra.
Þeim til skemmtunar sem hafa gaman af ritdeilum beit
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Sam
taka atvinnulífsins, á agnið og svaraði Ögmundi fullum
hálsi. Halldór kveður það glapræði að færa land í hendur
fjöldans. Vísar hann í kennisetningu um „harmleik
almenninganna“ og segir: „Þegar eitthvað er í eigu allra
hefur enginn hagsmuni af því að ganga vel um það.“
Nýlega kom út í Bretlandi ævisaga Geralds Gros ve
nor, sjötta hertogans af Westminster sem lést árið 2016.
Grosvenor fjölskyldan hefur kynslóðum saman verið
ein auðugasta fjölskylda Bretlands. Fjölskyldunafnið
sem og auðæfin má rekja aftur um þúsund ár. Forfaðir
Geralds, Normanninn Hugh „Le Grand Veneur“ (mikli
veiðimaðurinn), var stór vexti og var því uppnefndur
„Le Gros Veneur“ (feiti veiðimaðurinn). Hugh þessi
var handgenginn Vilhjálmi 1. Englandskonungi, eða
Vilhjálmi bastarði eins og hann er gjarnan kallaður, og
að launum hlaut hann mikið land í Cheshire. Það var
hins vegar árið 1677 þegar Thomas Grosvenor kvæntist
hinni tólf ára Mary Davies, erfingja að votlendi sem
síðar varð að fínustu hverfum Lundúna, Mayfair og
Belgravia, að ríkidæmi fjölskyldunnar var tryggt.
Þegar Gerald Grosvenor lést var hann einn stærsti
landeigandi Bretlands og var hann talinn þriðji ríkasti
maður landsins. Var viðskiptaveldi hans metið upp á
8,3 milljarða punda eða 1.200 milljarða íslenskra króna.
Hertoginn var góðvinur Karls Bretaprins og guðfaðir
Vilhjálms Bretaprins.
Eitt sinn spurði ákafur blaðamaður Financial Times
hertogann hvaða ráð hann gæti gefið ungum athafna
mönnum sem vildu leika eftir velgengni hans. Her
toginn svaraði: „Að eiga forföður sem var góðvinur
Vilhjálms bastarðar.“
Markaðurinn og eiginhagsmunir
Árið 2007 fullyrti Alan Greenspan, fyrrverandi seðla
bankastjóri Bandaríkjanna og óþreytandi talsmaður
hugmyndafræðinnar um hinn frjálsa markað, að laga
setningar á sviði fjármála væru svo gott sem óþarfar:
„Stærstur hluti alþjóðlegra fjármálaviðskipta heims
ins og þar af leiðandi viðskipta einstakra landa sér
sjálfur um að setja sér leikreglur; markaðurinn virkar ...
Við vitum ekki hvernig en hann virkar.“ Árið 2008, eftir
að alþjóðlega efnahagskreppan brast á, varð Greenspan
að éta ofan í sig orð sín: „Það voru mistök af minni hálfu
að gera ráð fyrir að eiginhagsmunir stofnana á borð við
banka væru betur til þess fallnir að vernda hluthafana.“
Eiginhagsmunir tryggja ekki neitt. Ef hagsmunir
okkar stýrðu gjörðum okkar værum við öll í kjörþyngd
með blóðþrýstinginn í lagi, viðbótarlífeyrissparnað
skipulagðan í Excel, búin að plana fisk og salat í kvöld
matinn, afhenda börnunum bók í staðinn fyrir iPadd
inn og að skræla gulrætur í kvöldsnarl á leiðinni í jóga á
hjóli með aukalóð á fótunum.
Það eina sem hugmyndafræði framkvæmdastjóra
Samtaka atvinnulífsins tryggir er að góðvinir Vilhjálms
bastarðar samtímans og afkomendur þeirra mega eiga
von á góðu.
Bastarðar samtímans
Hver tími er 60 mínútur og kennt er tvisvar í viku á
þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 í leikfimissal
Hvassaleitisskóla. Námskeiðið er tólf vikur.
Kennari er Birgitta Sveinbjörnsdóttir danskennari.
Skráning er hafin á námskeiðið sem hefst þriðjudaginn
11. september kl. 17.30.
Upplýsingar og skráning í síma: 899-8669.
SUÐRÆN SVEIFLASUÐR N SVEIFLA
Suðræn sveifla er skemmtileg
líkamsrækt fyrir konur á öllum aldri.
Námskeiðið byggist upp á mjúkri
upphitun, latin dönsum eins og
Cha Cha, Jive, Salsa og fl.,
kviðæfingum og góðri slökun.
Hver tími er 60 mínútur og kennt er tvisvar í viku á þriðjudögum og fim-
mtudögum kl. 17:30 í leikfimissal Hvassaleitisskóla. Einnig verður kennt
á miðvikudögum kl. 18:00 og laugardögum kl. 11:00 í Stúdíói Sóleyjar
Jóhannsdóttur, Mekka Spa. Kennarar eru Birgitta Sveinbjörnsdóttir
danskennari.og Ólöf Björk Björnsdóttir Skráning er hafin á bæði nám-
skeiðin sem hefjast þriðjudaginn 11.janúar og miðvikudaginn 12.janúar
Upplýsingar og s ing í síma: 899-8669.
Suðræn sveifla tileg
líkamsrækt fyrir konur á öllum
aldri. Námskeiðið byggist upp á
mjúkri upphitun, latin dönsum
eins og Cha Cha, Jive, Salsa og fl.,
kviðæfingum og nidra slökun.
1 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r16 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SKOÐUN
0
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
B
7
-4
A
D
0
2
0
B
7
-4
9
9
4
2
0
B
7
-4
8
5
8
2
0
B
7
-4
7
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
1
2
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K