Fréttablaðið - 01.09.2018, Page 22
Sunnudaginn 2. septem-ber verður Jazzhátíð Reykjavíkur þjófstartað með skemmtilegu „jam-session“ á Bryggjunni Brugghúsi kl. 20 þar sem
aðgangur er ókeypis. Jazzhátíðin
sjálf hefst hins vegar miðvikudag-
inn 5. september með skrúðgöngu
frá Lucky Records við Hlemm kl. 17
og gengið verður að Borgarbóka-
safninu þar sem hátíðin verður
formlega sett.
Heimsklassa djasskonur spila
Jazzhátíð Reykjavíkur verður með öðruvísi sniði í ár þar sem viðburðir verða á víð og dreif um borgina og heildar-
myndin því fjölbreyttari. Allt helsta djasstónlistarfólk landsins tekur senn upp hljóðfæri sín en það sem vekur ef-
laust athygli í ár er að hátíðin hefur náð góðum árangri í að auka hlut kvenna í þessum annars karllæga geira.
Drottning dönsku djasssenunnar, Marilyn Mazur, ásamt tíu kvenna hljómsveit sinni en hún var í hljómsveit goðsagnarinnar Miles Davis forðum daga.
Sigmar Þór
Matthíasson,
bassa- og tón-
fræðikennari.
læra að finna æta sveppi?
Það er ráðlegt að þekkja
æta sveppi frá þeim
eitruðu. Í dag klukkan
tíu heldur Háskóli
Íslands ásamt Ferða-
félagi Íslands í árvissa göngu þar sem
sveppum er safnað í Heiðmörk. Gísli
Már Gíslason, prófessor í líffræði
við Háskóla Íslands, leiðir gönguna
ásamt fjölda nemenda sem allir hafa
sérþekkingu á íslenskum sveppum.
Um helgina Af hverju ekki að…
Ragga nagli: Öfgakenndur í örstutta stund?
Á haustin gera margir metnaðarfullar
áætlanir tengdar líkamsrækt fyrir
veturinn. Ragnhildur Þórðardóttir,
betur þekkt sem Ragga nagli, minnir á
að öfgar eru ekki líklegar til árangurs.
„Það er ekkert mál að vera öfgakenndur í örstutta
stund. Það er meiri áskorun að feta meðalveginn í
langan tíma. En sú nálgun mun skila þér langtíma árangri. Tileinkaðu
þér litlar heilsuvenjur frekar en að umturna öllu á einni nóttu. Ef þú
getur ekki hugsað þér mataræði eða hreyfingu eftir sex mánuði, eitt ár
þá ertu ekki á réttri braut.“
skoða vitann sem er opinn almenningi í dag?
Einu sinni á ári er Gróttuviti opnaður almenningi.
Dagskráin er fjölbreytt, útijóga, flugdrekasmiðja og
vöfflukaffi.
horfa á The Innocents (Netflix)?
Drungalegur og rómantískur vísindatryllir um kær-
ustuparið June og Harry sem hleypst á brott til að
hefja nýtt líf. Jóhannes Haukur Jóhannesson fer á
kostum í aðalhlutverki.
Gunnþórunn
Jónsdóttir
gunnthorunn@frettabladid.is
Dagskráin í grófum dráttum
Grand Hótel
„Það verður mikið um að vera
þessa daga og það sem stendur
kannski upp úr er 10 kvenna
hljómsveit slagverksleikarans
Marilyn Mazur. Hljómsveit hennar
heitir Shamania og er Mazur án
efa drottning danska djassins
enda eina konan sem hefur verið
í hljómsveit goðsagnarinnar Miles
Davis.“
Tónleikarnir fara fram á Grand
Hóteli á laugardeginum kl. 19.30.
Fyrr um daginn stígur á svið
söngkonan Katrín Halldóra
Sigurðardóttir sem sló svo eftir-
minnilega í gegn í hlutverki Ellyjar
Vilhjálmsdóttur í Borgarleikhús-
inu. Katrín Halldóra og Haukur
Gröndal ásamt hljómsveit
hans, Arctic Swing kvintett,
leika lög frá gullaldarárum djass-
ins 1927-1945 en tónleikarnir
hefjast kl. 13.
Tuttugu ára gamla tríóið
Marcin Wasilewski Trio spilar
einnig á laugardeginum.
Tjarnarbíó
Gítarleikarinn Ralph Towner kemur
frá Bandaríkjunum og leikur ein-
leik á klassískan gítar. Það sem er
einstakt við gítarleik Towners er að
hann spilar á nælonstrengjagítar.
„Sjálfur er ég mjög spenntur fyrir
þessum tónleikum. Towner er mikill
meistari í sínu fagi enda fáheyrt að
spilað sé á nælonstrengi. Towner er
hvað þekktastur fyrir leik
sinn með hljóm-
sveitinni Oregon
en hefur leikið
með mörgum
af stærstu
nöfnum
djassins,“ segir Leifur. Tónleikarnir
hjá Towner fara fram í Tjarnarbíói
föstudaginn 7. september kl. 21.30.
Sunna Gunnlaugsdóttir verður
með útgáfutónleika á fimmtudeg-
inum í Tjarnarbíói kl. 21.30. Sunna
fór til Finnlands í nóvember sl. með
tríó sitt og vann með trompet-
leikaranum Verneri Pohjola. Sveitin
kom fram á nokkrum stöðum og
hljóðritaði í leiðinni efnið sem er að
finna á nýju plötunni, Anchestry.
Giulia Valle Trio, Ingi Bjarni Trio,
Sigmar Þór Matthíasson og Scott
McLemore Quartet koma einnig
fram í Iðnó.
Leifur
Gunnarsson,
hátíðarhaldari
og tónlistar-
maður.
Það sem er nýtt í ár er að dag-
skráin færist úr Hörpu yfir á fleiri
staði en einnig er í ár lögð áhersla á
fleiri konur í djasstónlist. Sex konur
eru í fararbroddi atriða á hátíðinni í
ár auk Rósu Guðrúnar Sveinsdóttur
sem leiðir skrúðgönguna í ár.
„Í dag er mikið hugað að jöfnum
möguleika kynjanna og í djass-
geiranum eru konur í miklum
minnihluta. Þetta á ekki bara við
hér á Íslandi, þó svo að við séum
kannski á eftir samanburðarþjóð-
um í þessum málum. Við í stjórn
hátíðarinnar trúum því að með því
að flytja inn heimsklassa kvenkyns
hljómleikafólk gefum við kvenkyns
tónlistarnemendum fyrirmyndir.
Stelpur spila líka djass,“ segir Leifur
hátíðarhaldari og tónlistarmaður.
Virku dagana fara tónleikar fram
í Hannesarholti, Iðnó og Tjarnar-
bíói sem eru í göngufæri hvert við
annað en helgardagskráin fer fram
á Grand Hóteli og í Gömlu kartöflu-
geymslunum.
Meginuppistaðan á hátíðinni er
það helsta úr íslensku djasssenunni,
en einnig eru flutt inn nokkur atriði
frá útlöndum.
Hægt verður að kaupa staka miða
á alla viðburði á Jazzhátíð en einnig
eru í boði afsláttarpakkar á 4, 6 eða
8 tónleika. Miðasala fer fram á tix.is
og dagskrána í heild sinni má finna
á reykjavikjazz.is.
gunnthorunn@frettabladid.is
Hannesarholt
Agnar Már og Lage Lund taka
nokkur lög í Hannesarholti en
þeir eru nýkomnir úr hljóðveri í
Brooklyn þar sem þeir tóku upp
nýja tónlist eftir Agnar.
Sigurður Flosason og sænski
píanóleikarinn Lars Jansson hafa
þekkst í nokkur ár og spilað tals-
vert saman. Þeir spila á tvennum
tónleikum í Hannesarholti þar
sem áhersla verður á tónsmíðar
þeirra beggja.
Iðnó
Sellóleikarinn Þórdís Gerður
Jónsdóttir og danska tónskáldið
og kontrabassaleikarinn Richard
Andersson stíga á svið í notalegum
húsakynnum Iðnó. Þórdís Gerður
flytur eigin tónsmíðar en hún er
einnig mikið fyrir spuna í djassi.
Gömlu kartöflugeymslurnar
Aðalstuðið verður svo í Gömlu
kartöflugeymslunum en þar
koma fram Andrés Þór og Miro
Herak, Dóh Tríó, Skeltr og Una
Stef sem hefur verið áberandi í
íslensku tónlistarlífi undanfarin
ár. Hún hefur heillað landann
með sálar- og djassskotnum
lögum sínum líkt og „Mama
Funk“.
1 . s e p t e M b e R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R22 H e L G i n ∙ F R É t t A b L A ð i ð
helgin
0
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
B
7
-8
1
2
0
2
0
B
7
-7
F
E
4
2
0
B
7
-7
E
A
8
2
0
B
7
-7
D
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
1
2
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K