Fréttablaðið - 01.09.2018, Page 27
bara foreldra mína og stelpurnar
tvær. Eldri dóttir mín frestaði brúð
kaupinu fyrir mig og bíður eftir að
ég losni,“ segir Mirjam og bendir á
að ólíkt íslenskum föngum sem geta
fengið heimsóknir, farið í dagsleyfi
og viðhaldið tengslum við fjöl
skyldu sína, hefur hún ekki haft
nein tök á að hitta fólkið sitt í Hol
landi frá því að hún var handtekin.
Lögfræðingur Mirjam vinnur
nú að því að fá ákvörðuninni um
boðun í fangelsi breytt. Mirjam var
veittur frestur, fyrst í viku og svo í
mánuð til viðbótar. Sá frestur renn
ur út 7. september. Að óbreyttu þarf
Mirjam að mæta til afplánunar eftir
viku. Hún segir margt hafa breyst
frá því símtalið kom. „Svo er alltaf
verið að hringja í mig á næturnar, út
af tækinu,“ segir Mirjam og vísar til
móttökutækis ökklabandsins. Hún
veit ekki hvort þau eru frá Fangelsis
málastofnun eða öryggisfyrirtækinu
sem sér um ökklaböndin. Þau áttu
sér aldrei stað áður en hún fékk
boðun um að mæta aftur til afplán
unar. „Mér líður eins og það sé fylgst
með hverju skrefi sem ég tek og þess
beðið að ég stígi feilspor sem rétt
læti að ég verði sett inn.“
Hvað vilt þú helst að gerist?
„Ég vil bara að þetta hverfi. Ég
vil bara fá að ljúka minni afplánun
næsta vor og fara heim til Hollands.
En nú er það ekki lengur möguleiki.
Það er ekki hægt að taka aftur hina
breyttu ákvörðun.“
Mirjam ætlar að berjast fyrir frelsi
sínu og lögmaður hennar er vakinn
og sofinn í málinu og er daglegur
gestur í helstu stofnunum sem hafa
með málið að gera. „En í sannleika
sagt er ég hundleið á þessu,“ segir
Mirjam. „Mig langar ekkert að berj
ast, mig langar bara til að lifa lífinu.
En ef þeir setja mig í fangelsi, þá
kæri ég þá til andskotans.“
Vildi geta sýnt kerfinu virðingu
Mirjam segist oft hafa haft tæki
færi til að kvarta undan ýmsu og
fara með mál í fjölmiðla. „En ég hef
altaf hugsað það vandlega, og hver
áhrifin af því gætu orðið. Ekki bara
fyrir mig heldur líka af virðingu
fyrir starfsfólki stofnunarinnar. Ég
fæ ekkert út úr því að nudda þeim
upp úr því sem rangt hefur verið
gert. Ég ber almennt virðingu fyrir
fólki og er yfirhöfuð hvorki haturs
full né bitur manneskja. En núna
hef ég bara hugsað, þegar öllu er á
botninn hvolft þá hefur það sýnt
sig að þetta fólk ber ekki snefil af
virðingu fyrir mér eða mínu lífi og
framtíðarvonum eftir afplánun. Mér
líður eins og það sé stöðugt verið að
draga fram í mér allar mínar verstu
tilfinningar, hatur, biturð og reiði, í
staðinn fyrir að nálgast mig af kær
leika. Þetta veldur mér svo miklum
vonbrigðum, líka bara með fólk. Af
hverju má ég ekki bara halda áfram
með lífið?“
Aðspurð um framtíðina segir
Mirjam erfitt að skipuleggja líf sitt
þegar maður veit ekki hvar maður
má vera.
„Lífið hefur bara verið í bið og
óvissan lamar mann í svo mörgu.
Ég var til dæmis að hugsa um að
læra íslensku en til hvers? Í húsinu
okkar á Akranesi hef ég stóra vinnu
aðstöðu til að gera töskur, en ég
hef ekki standsett hana eða skipu
lagt neitt. Á efri hæðinni langar
mig svo að hafa gallerívegg með
myndum af börnunum mínum og
börnunum hans Tomma og myndir
úr lífi okkar. En ég hef ekki byrjað
á neinu af því að ég veit ekki hvort
við verðum hér; hvort ég fæ að vera
í þessu landi öðru vísi en í fangelsi.
Þetta er svo mikil byrði, að vita
ekki, að ég hef bara ekki orku til
að hugsa um framtíðina. Eini slök
unartíminn minn er þegar ég er
með hestunum,“ segir Mirjam sem
hefur verið hestakona frá unga aldri
og þegar hún var á Vernd keypti
Tommi handa henni hest. Nú eiga
þau tvo hesta og Mirjam segir að
bestu stundir þeirra hjóna séu með
hestunum.
Langar að heimsækja Auschwitz
En eitthvað hlýtur þig að langa til að
gera í framtíðinni?
„Mig langar svo að ferðast. Eign
ast húsbíl og keyra um alla Evrópu.
Við höfum bæði gengið í gegnum
svo margt og ég verð fimmtug á
næsta ári. Nú langar mig bara að
lifa lífinu aðeins. Ég hef líka fengið
annað tækifæri í lífinu eftir hjarta
aðgerðina og mig langar bara að
njóta þess, og með Tomma, því að
við elskum félagsskap hvort annars
og okkur líður svo vel saman og við
skiljum hvort annað svo vel. Því í
sannleika sagt þá erum við líka bæði
frekar brotin eftir fangelsisvistina
því að fangelsi breytir fólki. Það
breytir manni fyrir lífstíð og með
óafturkræfum hætti að vera sviptur
frelsinu.“
Hvernig breytir fangelsi manni?
„Það er erfitt að treysta fólki til
dæmis. Mig langar að treysta fólki
og reyni að sjá það góða í fólki en á
erfiðara með að hleypa fólki að mér
núna. Tommi er alveg eins. Þess
vegna erum við svo góð saman, af
því að við skiljum hvort annað.“
Hvað langar þig að sjá í Evrópu?
„Ég veit að þetta hljómar undar
lega, en mig langar að sjá Auschwitz.
Amma var í andspyrnunni.
En fyrst af öllu vil ég fara heim og
stinga tánum í hollenska fjöru og
anda að mér hollenska loftinu.“
Áttu eftir að taka Ísland í sátt?
„Sko, ég þoli ekki Ísland. En ég
elska samt landið og náttúruna. Við
Tommi förum oft í langa bíltúra og
svo erum við auðvitað mikið úti í
náttúrunni með hestana og landið
er dásamlegt. En þegar kemur að
pólitíkinni og hræsninni hér þá
skil ég ekki hvernig Íslendingar
geta horft fram hjá því sem gerist
hér stundum, ekki bara í mínum
málum heldur víðar. Ég veit að ég
gerði rangt enda fékk ég þyngsta
dóm sögunnar fyrir og þótt ég
muni berjast gegn þessu alla leið þá
langar mig mest bara til að halda
áfram með lífið. Mig langar ekkert
að rífast og berjast. Vegna þess líka
að í öllum þessum hryllingi fann ég
eitt gott. Ég fann ég manninn minn
og ég má bara ekki vera að þessu.“
Mig langar ekkert að
berjast. Mig langar
bara að lifa lífinu. en
ef þeir setja Mig aftur
í fangelsi þá kæri ég þá
til andskotans.
Höll í Naustareit
— til leigu
1.
h
æ
ð
2.
h
æ
ð
550 2090Áhugasamir hafi samband:
Tryggvagata 10
N
or
ðu
rs
tíg
ur
Besta hornið
í bæ
num
!
naustareitur@festir.is
Fiskhöllin, Tryggvagötu 10, var byggð sem sláturhús árið 1906
úr steypusteinum en var seinna notuð sem fiskgeymsla, fiskbúð
og íbúðarhús. Húsið hefur verið endurbyggt í upprunalegri mynd.
Til að mynda eru gluggarammar og turn hússins endurgerð.
Við leitum að áhugasömum rekstraraðilum í húsið sem mun
verða áberandi kennileiti við gömlu höfnina. Ýmiskonar rekstur
kemur til greina.
h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 27l A U g A R D A g U R 1 . s e p T e m B e R 2 0 1 8
0
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
B
7
-8
1
2
0
2
0
B
7
-7
F
E
4
2
0
B
7
-7
E
A
8
2
0
B
7
-7
D
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
1
2
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K