Fréttablaðið - 01.09.2018, Síða 38
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Jóhanna Gísladóttir, formaður samtakanna, í Háskóla Íslands sem hefur gert stórátak í endurvinnslumálum. MYND/EYþór
Átakið gekk svo vel í fyrra að við vorum staðráðnar í að hafa september líka
plastlausan í ár,“ segir Jóhanna
Gísladóttir, formaður samtakanna
Plastlaus september. „Í fyrra kom
upp hugmyndin að vera með
markað þar sem fólk gæti nálgast
plastlausar vörur og sameina opn-
unarhátíð átaksins en það náðist
ekki þá og verður núna í staðinn.“
Markaðurinn verður í Tjarnarsal
Ráðhússins milli 12 og 16 og þar
kennir ýmissa grasa. „Umhverfis-
ráðherra setur átakið og sendi-
herra ESB á Íslandi flytur ávarp.
Þá verður erindi frá Landspítal-
anum sem er dæmi um vinnustað
sem getur ekki án plasts verið en
sem hefur markvisst dregið úr
ónauðsynlegri plastnotkun og
Farfuglar halda erindi um plast-
lausnir sínar. Á markaðinum
verða ýmsir söluaðilar en einnig
fræðslubásar, til dæmis frá Land-
vernd, Sorpu sem kynnir flokkun
á plasti, Umhverfisstofnum mætir
með plastkassann góða sem sýnir
plastneyslu fjölskyldu á mánuði,
leikskólinn Fífuborg í Grafarvogi
kynnir Ellu endurvinnsludúkku
sem kennir leikskólabörnum
umhverfisvernd og svo verður bás
frá pokastöðvunum á Íslandi þar
sem verða saumaðir taupokar.“
Tilgangur verkefnisins er að
vekja fólk til umhugsunar um
plastnotkun og þann plastúrgang
sem fellur til dagsdaglega og leita
leiða til að minnka plastnotkun.
„Plastlaus september hvetur okkur
til að taka eftir plastnotkun okkar
og í framhaldinu að kaupa minna
af einnota plasti. Við getum valið
hvort við tökum þátt í einn dag,
eina viku, heilan mánuð eða til
frambúðar,“ segir Jóhanna sem
viðurkennir að hafa ekki hugsað
mikið út í plastið áður en Plastlaus
september kom til sögunnar. „Ég
er í doktorsnemi í umhverfis- og
auðlindafræði og var auðvitað
mikið að pæla í umhverfismálum
eins og kolefnisfótsporinu, fjöl-
nýtingu og að lágmarka rusl og
eignasöfnun en ekkert sérstak-
lega í plastinu. Þegar mér var svo
boðið að taka þátt í Plastlausum
september í fyrra fór ég að pæla
í hvað plastið skapar gríðarlegan
og margþættan vanda í heim-
inum, þessi gríðarlega, einnota
hraða neysla og hugsunarleysið
sem henni fylgir í daglegu lífi. Það
hefur verið mjög hvetjandi að
kafa djúpt í þessi mál með svipað
þenkjandi fólki og finna lausnir,“
segir hún og bætir við að áherslan
sé á að vera á jákvæðum nótum.
„Við viljum ekki vera svartsýn og
skamma heldur leggja áherslu á
hvað er ótrúlega auðvelt að breyta
hlutum.“ Hún bendir enn fremur
á nauðsyn þess að kynna vanda-
málin sem fylgja plastneyslu fyrir
fólki og lausnirnar líka. „Fjöl-
miðlar hafa tekið vel við sér frá
því í fyrra og fjalla um plasttengd
málefni nánast vikulega. Á heima-
síðunni okkar er listi yfir leiðir til
að minnka plastnotkun og það
skiptir allt máli, það þarf ekki allt
eða ekkert,“ segir Jóhanna og bætir
við: „Ég er formaður átaksins og ég
er ekki alveg plastlaus en ég geri
mitt besta. Ég held sem dæmi að ég
hafi ekki tekið nema tvo plastpoka
í matvöruverslun síðustu átján
mánuði. Við Íslendingar notum 70
milljón plastpoka á ári sem þýðir
að hver einstaklingur notar 282
poka. Þannig að mín fjölskylda
er búin að spara fullt af pokum.
Hver og einn getur fundið eitt eða
fleiri atriði í lífinu þar sem hægt
er að minnka plastnotkun. Kaupa
bambustannbursta, muna eftir
fjölnotapokanum þegar þú ferð út
í búð og bara vera meðvituð um að
koma minna plasti í umferð yfir-
höfuð, þessu óþarfa einnota plasti
sem við höfum ekkert við að gera.
Endilega fylgið okkur á samfélags-
miðlum til að fá góðar hugmyndir
og lausnir að minni plastnotkun.
Það er fínt að plokka og safna í
endurvinnslu en best að byrja á
byrjuninni. “
Hægt er að skrá sig í átakið á heima-
síðunni plastlausseptember.is.
Auðveldara en
margan grunar
Árvekniátakið Plastlaus september hefst í dag en átakið
var fyrst haldið í september í fyrra. Markmiðið er að vekja
athygli á því hversu auðvelt er að minnka plastnotkun.
Hver og einn getur
fundið eitt eða fleiri
atriði í lífinu þar sem
hægt er að minnka plast-
notkun.
Jóhanna Gísladóttir,
formaður Plastlauss septembers
Vilt þú geta dansað?
Við getum kennt þér.
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
Frettabladid.is færir þér nýjustu
fréttir dagsins og ítarlega umöllun
um málefni líðandi stundar.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
4 KYNNINGArBLAÐ FóLK 1 . s E P t E M B E r 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
B
7
-C
6
4
0
2
0
B
7
-C
5
0
4
2
0
B
7
-C
3
C
8
2
0
B
7
-C
2
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K