Fréttablaðið - 31.08.2018, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 31.08.2018, Blaðsíða 8
Frá degi til dags Halldór Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Félagið má ekki við því að fleiri stórar rangar ákvarðanir verði teknar á næstunni. Auðvitað á Ísland að hefja upp- byggingu í eldi með þessum skilyrðum fremur en að fara í aðgerðir þegar skaðinn er skeður eins og er tilfellið í Noregi. lausn á leikskólavandanum? Sitt sýnist hverjum um þá til- lögu borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins að bólusetningar verði skilyrði fyrir leikskóladvöl. Sóttvarnalæknir telur hana óþarfa og vill reyna aðrar leiðir. Fulltrúar meirihlutans styðja heldur ekki tillöguna. Telja hana ýmist ekki standast lög eða bera vott um forræðishyggju. Í síðustu viku birtust fréttir um að 182 börn biðu þess enn að hefja leikskóladvöl þrátt fyrir fögur fyrirheit um að öllum börnum 18 mánaða og eldri skuli tryggð vist. Maður hefði nú hald- ið að meirihlutinn myndi fagna öllum hugmyndum sem yrðu til þess að fleiri pláss losnuðu á leik- skólum borgarinnar. ódýrt vinnuafl Hagstofan greindi frá því í gær að tæp 19 prósent starfandi fólks á öðrum ársfjórðungi hefðu verið innflytjendur. Það er ekkert nýtt að erlent vinnuafl sé flutt inn á uppgangstímum enda oft um lág- launastörf að ræða. Nýlega bárust af því fregnir að ýmsir bæjarstjórar landsins væru hærra launaðir en borgarstjórar erlendra stórborga á borð við París, London og New York. Sú spurning blasir því við hvers vegna sveitarfélögin fari ekki sömu leið og leiti út fyrir landsteinana að reyndum stjórn- endum og skeri niður launa- kostnaðinn í leiðinni. sighvatur@frettabladid.is Framkvæmdastjóri Landssambands fiskeldistöðva, Kristján Davíðsson, vandaði Pálma Gunnarssyni, tónlistarmanni og baráttumanni fyrir náttúru­ vernd, ekki kveðjurnar í grein hér í blaðinu á dögun­ um. Er Kristján við sama heygarðshorn og ýmsir aðrir sjókvíaeldismenn sem virðast standa í þeirri trú að yfir­ gangur sé leiðin til þess að þröngva þessum iðnaði upp á þjóðina með tilheyrandi vá fyrir umhverfi og lífríki Íslands. Athyglisvert er að bera saman þessa harkalegu fram­ göngu við sjónarmið framkvæmdastjóra skoska lax­ eldisfyrirtækisins Grieg Seafood Shetland, sem rætt er við í fréttaskýringu í fagfjölmiðlinum Intrafish um fjöl­ mörg vandamál sem tengjast fiskeldi í opnum sjókvíum. Ólíkt íslenskum kollegum sínum hefur Grant Cumm­ ing, framkvæmdastjóri skoska fyrirtækisins, miklar áhyggjur af því sem gerist þegar eldislax sleppur úr kvíum. „Þegar flótti á sér stað eru megináhyggjuefnin þau að eldisfiskur blandist villtum stofnum og breyti þannig staðbundinni erfðagerð þeirra,“ segir Cumming og bendir á að nánast ómögulegt sé að útiloka að fiskur sleppi. Hér láta sjókvíaeldismenn hins vegar eins og þetta sé ekkert sem þurfi að hafa áhyggjur af. Í fréttaskýringu Intrafish er bent á að mögulega borga dýrar fyrirbyggjandi aðgerðir sig ekki fyrir sjókvíaeldis­ fyrirtækin þegar þau fá sitt tjón bætt af tryggingafélög­ um. Full ástæða er fyrir þessum hugleiðingum því ekk­ ert lát er á stórslysum í sjókvíaeldi hvort sem það er við Noreg, Skotland, Chile eða Ísland. Fyrirtækin fá sitt tjón bætt, en skaðinn er skeður fyrir umhverfið og lífríkið. Við hjá IWF höfum bent á að Norðmenn stefna að því að ganga svo frá eldisstöðvum sínum að úrgangur verður hreinsaður, engin laxalús verði í kvíunum og enginn fiskur sleppi. Þessum markmiðum verður náð mishratt en eigi síðar en fyrir 2030 samkvæmt vegvísi samtaka norskra iðnfyrirtækja. Norðmenn eru þarna að koma skikki á sinn laxeldis­ iðnað í kjölfar mikilla búsifja fyrir náttúru landsins. Auðvitað á Ísland að hefja uppbyggingu í eldi með þessum skilyrðum fremur en að fara í aðgerðir þegar skaðinn er skeður eins og er tilfellið í Noregi. Yfirgangur Freyr Frostason arkitekt og for- maður stjórnar Icelandic Wild- life Fund Queen 13.693 kr. á mánuði* KING KOIL ALPINE PLUSH Hágæða Amerískt heilsurúm með millistífu fimm svæða skiptu poka gorma kerfi, mjúkur toppur og steyptir kantar, ásamt botni og fótum. Stærð King (193x203 cm) AFMÆLISVERÐ 213.459 kr. 18.816 kr.* á mánuði með kredikortaláni Fullt verð 355.765 kr. Stærð Queen (153x203 cm) AFMÆLISVERÐ 154.070 kr. 13.693 kr.* á mánuði með kredikortaláni Fullt verð 256.783 kr. King 18.816 kr. á mánuði* *12 mánaða vaxtalaus kreditkortalán**. Einnig hægt að greiða með Netgíró. Það er eitthvað mikið að hjá Icelandair. Ekki er langt síðan tilkynnt var um að stjórnarformaður flugfélagsins hefði keypt hlutabréf í félaginu fyrir 100 milljónir. Kaup af slíkri stærðargráðu hafa ekki þekkst á meðal stjórnenda þess og hækkaði gengi bréfanna umtalsvert í kjölfarið. Tveimur vikum síðar sendi fyrirtækið frá sér afkomu­ viðvörun, þá þriðju á árinu, þar sem upplýst var um að tekjur yrðu talsvert lægri en áður var gert ráð fyrir og hlutabréfaverð félagsins féll um 17 prósent dag­ inn eftir. Fullyrða má að stjórnendur fyrirtækisins hafi því aðeins fáum dögum áður, eða þann 13. ágúst þegar formaðurinn fjárfesti fyrir verulega fjárhæð í Icelandair, ekki haft upplýsingar um að útlit væri fyrir að afkoma ársins yrði mun verri en fyrri spár höfðu áætlað. Það er ekki góðs viti. Vandinn sem flugfélögin standa frammi fyrir er vel þekktur. Gríðarleg samkeppni, sem hefur haldið niðri meðalfargjöldum, og miklar hækkanir á olíu­ verði hefur leitt til þess að afkoman hefur versnað til muna. Spár Icelandair um að meðalfargjöld hlytu að fara hækkandi á ný, sem flugfélagið áætlar núna að muni gerast 2019, hafa ítrekað reynst rangar og á sama tíma hefur launakostnaður haldið áfram að aukast langt umfram tekjur. Útlit er fyrir að launa­ kostnaður sem hlutfall af tekjum á þessu ári verði um 35 prósent sem er einsdæmi í samanburði við önnur sambærileg flugfélög. Verði ekkert gert, samhliða því að félaginu tekst ekki að velta þessum aukna kostnaði út í verðlagið, stefnir í óefni. Fjárhagsstaða Icelandair er vitaskuld um margt sterk og félagið því í góðri stöðu til að takast á við núverandi erfiðleika, sem vonandi eru aðeins tímabundnir. Eiginfjárhlutfallið er um 30 prósent og handbært fé um 25 milljarðar. Meðal annars af þeim sökum getur Icelandair brugðist við því þegar fyrirtækið mun síðar á árinu, eins og nú virðist óum­ flýjanlegt eftir síðustu afkomuspá, brjóta lánaskil­ mála sem kveða á um að vaxtaberandi skuldir megi ekki vera meiri en sem nemur 3,5 sinnum EBITDA félagsins. Það væri engu að síður óskhyggja að halda að hægt sé að brjóta slíka skilmála án þess að það kunni að hafa neikvæðar afleiðingar í för með sér, ekki hvað síst fyrir lánakjör fyrirtækisins í fram­ tíðinni. Fá fyrirtæki skipta Íslendinga – og íslenskt efna­ hagslíf – jafn miklu máli og Icelandair. Eftirmanns Björgólfs Jóhannssonar, sem axlaði ábyrgð á slökum rekstri með því að segja af sér, í forstjórastól Ice land­ air bíður ekki öfundsvert hlutverk. Á meðal þess sem hann gæti þurft að taka til skoðunar er hvort það hafi verið rétt að ganga til samninga á sínum tíma um kaup á sextán vélum frá Boeing. Margt bendir til að svo hafi ekki verið. Eitt er að minnsta kosti víst. Félagið má ekki við því að fleiri stórar rangar ákvarð­ anir verði teknar á næstunni. Á móti vindi 3 1 . á g ú s t 2 0 1 8 F Ö s t U D A g U R8 s k o ð U n ∙ F R É t t A B L A ð i ð SKOÐUN 3 1 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :1 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 B 5 -C F D C 2 0 B 5 -C E A 0 2 0 B 5 -C D 6 4 2 0 B 5 -C C 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.