Fréttablaðið - 31.08.2018, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 31.08.2018, Blaðsíða 21
Framhald á síðu 2 ➛ Hollt og bragðgott F Ö S T U DAG U R 3 1 . ág ú s t 2 0 1 8 Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is Hanna Þóra í eldhúsinu heima, en það er einn af hennar uppáhaldsstöðum. Við hlið hennar má sjá fallega leirpotta sem hún hefur búið til en í þeim má til dæmis baka brauð. Mynd/Stefán Matreiðsla er mín slökun Hanna Þóra th. guðjónsdóttir hefur óþrjótandi áhuga á matargerð. Hún heldur úti vefsíðunni hanna.is þar sem er að finna ljúffengar uppskriftir og fagrar ljósmyndir af fjölbreyttum réttum. Matargerð er eitt aðal-áhugamál Hönnu Þóru en mataráhuginn vaknaði snemma. „Mamma er mjög góður kokkur og ég er alin upp við mikla matseld og áhuga á mat. Mamma var líka ævintýragjörn og tileinkaði sér til dæmis sænska matargerð þegar við bjuggum í Svíþjóð í nokkur ár,“ segir Hanna. Það voru einmitt uppskriftir mömmu hennar sem ýttu við Hönnu og systur hennar, Ernu Guðrúnu, að setja uppskriftavefsíðu í loftið. Vefsíða í jólagjöf „Við Erna Guðrún höfðum velt fyrir okkur hvernig væri best að halda utan um uppskriftirnar frá mömmu. Systir mín er hugbún- aðarverkfræðingur og gaf mér það í jólagjöf ein jólin að setja upp vefsíðuna hanna.is. Síðan hefur hún þróað þetta með mér. Ég tek myndirnar og set inn uppskriftir en hún sér um tæknivandamálin ef þau koma upp,“ segir Hanna glaðlega. Uppskriftunum á síðunni fjölgar ört enda er Hanna dugleg að prófa sig áfram með uppskriftir. Fjölskylduáhugamál Öll fjölskylda Hönnu hefur áhuga á matargerð en hún á eiginmann, fjögur börn og eitt barnabarn. „Maðurinn minn er með mér í þessu og við eldum bæði saman og sitt í hvoru lagi. Svo hittumst við alltaf öll á sunnudögum og borðum saman en elsta dóttir mín er farin að heiman.“ Hanna segist ekki aðhyllast neina sérstaka matarstefnu. „Mér finnst allt spennandi og er alltaf að prófa eitthvað nýtt. Hugmynd- irnar koma víða að, stundum spretta þær upp þegar ég fer út að borða og smakka eitthvað nýtt en svo skoða ég líka tímarit og fæ uppskriftir í gegnum vinkonur.“ Hún segist sjaldnast elda eftir uppskriftum heldur breyti þeim og bæti. „Matargerðin er mín slökun.“ Hanna er viðskiptafræðingur að mennt og starfaði um tíma sem slíkur og seinna við kennslu. Síðan skipti hún um gír og er í dag með keramikstúdíó með tveimur öðrum auk þess sem hún málar. Hún reynir að blanda saman keramik- og mataráhuga sínum. „Ég hef verið að þróa leirpotta sem hægt er að baka brauð í en má einnig nota undir annan mat.“ Hanna gefur hér nokkrar góðar uppskriftir en fleiri slíkar má finna á www.hanna.is. Kynningarblað 3 1 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :1 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 B 5 -C A E C 2 0 B 5 -C 9 B 0 2 0 B 5 -C 8 7 4 2 0 B 5 -C 7 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.