Fréttablaðið - 31.08.2018, Blaðsíða 38
Alltaf eitthvað sögu-legt er yfirskrift ljós-myndasýningar Báru Kristinsdóttur sem verður opnuð í kvöld, föstudag, í Hafnar-
borg. Þar sýnir hún myndir frá næl-
onhúðunarverkstæði. Í tengslum við
sýninguna kemur út ljósmyndabók
með myndunum.
„Árið 2013 átti ég erindi á verk-
stæði sem hét Nælonhúðun og var í
Garðabæ. Þetta hafði verið stórt og
mikið verkstæði, með fjölda starfs-
manna á sínum tíma. Ég hafði komið
þangað áður fyrir mörgum árum en
í þessari ferð sá ég að þar var orðið
frekar tómlegt um að litast og allt
orðið gamalt og þreytt,“ segir Bára.
„Eigandinn, Elías Guðmundsson, var
þarna að störfum og með einn starfs-
mann, Baldvin Þórarinsson. Ég sagði
við Elías: Má ég ekki mynda hérna
svolítið? Hann sagði að ég mætti
mynda allt sem ég vildi nema hann
sjálfan. Eftir einhverjar vikur var ég
búin að mynda allt í bak og fyrir og
búin að drekka heilu lítrana af kaffi
og hlusta á Elías segja sögur. Hann
var mikill sögumaður og vel lesinn.
Einn daginn sagði ég: Elías, má ég
ekki mynda þig? Hann svaraði: Jú,
en vertu fljót að því!“
Ég fylgdi Elíasi og Baldvini allt þar
til verkstæðinu var lokað. Ég mynd-
aði þá báða og allt sem þeir voru að
sýsla og verkstæðið sjálft. Þeir voru
báðir skemmtilegir og miklir katta-
vinir. Myndirnar lýsa þessum tíma.
Þegar ég byrjaði að mynda var verk-
stæðið enn starfandi en undir lokin
var ekkert þar nema auðir veggir. Allt
var búið.
Í myndunum vildi ég laða fram
hughrifin og stemninguna sem ég
upplifði þarna. Elías var svolítið
dapur, sem er skiljanlegt þegar menn
eru að skilja við ævistarfið. Hann
hafði stofnað fyrirtækið árið 1970
og kom því á koppinn og nú var hans
allt í einu ekki þörf því það sem gert
var á fyrirtækinu var hægt að gera í
Kína á auðveldan hátt.“
Auk þess að taka myndir bjó Bára
til vídeó þar sem Elías sagði frá ýmsu
sem hann hafði upplifað. „Einn dag-
inn þegar Elías var að segja sögur
setti ég vélina á vídeó án vitneskju
Elíasar. Ég sagði honum síðan frá
því og til varð 14 mínútna vídeó-
mynd sem var sýnd í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur. Elías kom á þá sýningu
og sá vídeóið. Þegar ég sagði honum
að ég ætlaði að gera ljósmyndabók
um verkstæðið þá hló hann, honum
fannst svo ómerkilegt að ég skyldi
vera að eltast við tvo karla á verk-
stæði.“
Rithöfundurinn Jón Kalman
Stefánsson skrifar texta ljósmynda-
bókarinnar. „Hann er minn uppá-
haldsrithöfundur og allt sem hann
skrifar er svo fallegt. Hann skrifaði
textann út frá myndunum og vídeó-
inu og þar er ýmislegt sem kemur
beint frá Elíasi,“ segir Bára. Elías lifði
það ekki að sjá ljósmyndabókina en
hann lést í fyrra.
Myndir sem Bára tók af Elíasi
og félaga hans Baldvini eru í ljós-
myndabókinni en ekki á sýningunni
í Hafnar borg. „Þar læt ég umhverfið
tala,“ segir Bára.
Nokkrar af myndum hennar af
verkstæðinu, þar á meðal myndir af
Elíasi og Baldvini, hafa verið valdar
til að fara á samsýningu í Gautaborg,
sem ber heitið Encounters Nordic
Photography Beyond Borders.
Lætur umhverfið tala
Bára við uppsetningu sýningar sinnar í Hafnarborg en ljósmyndirnar tók hún á verkstæði í Garðabæ. FréttaBlaðið/Ernir
ljósmynd Báru af Elíasi Guðmundssyni sem var skemmtilegur sögumaður.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
Bára Kristinsdóttir
sýnir ljósmyndir
frá nælonhúðunar-
verkstæði. Ljós-
myndabók kemur
út með texta eftir
Jón Kalman.
ára
s. 511 1100 | www.rymi.is
Brettatjakkar
Kynningarverð:
43.179 kr. m/vsk
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Finndu okkur
á facebook
Gæði og g
læsileiki e
ndalaust ú
rval af há
gæða flísu
m
30
ára
2018
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
lakaðu á
eð lö
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
ki pir og spe na
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartslá tur
g Kvíði
g Streita
g Pi ringur
Einke i
agnesí
skorts
i t.i
Ertu í lEit að draumastarfinu?
Finndu þitt starf á atvinna.frettabladid.is
3 1 . á g ú s t 2 0 1 8 F Ö s t U D A g U R18 m e n n i n g ∙ F R É t t A B L A ð i ð
menning
3
1
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
B
5
-A
D
4
C
2
0
B
5
-A
C
1
0
2
0
B
5
-A
A
D
4
2
0
B
5
-A
9
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K