Fréttablaðið - 31.08.2018, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 31.08.2018, Blaðsíða 24
Kuldinn og sólarleysið hafa óneitanlega haft áhrif á stærð grænmetisins í mat- jurtagörðum Reykvíkinga þetta sumarið. Það er allt minna sem kemur upp úr moldinni núna en á móti má segja að ekkert er úr sér vaxið, eins og stundum gerist í góðri tíð,“ segir Svanhildur Björk Sigfúsdóttir garðyrkjufræðingur. Bragðgæðin séu því ekki endilega lakari þó sólin hafi ekki vermt beðin. „Ánægjan af því að rækta sitt eigið gefur manni einnig svo mikið og sjálf er ég sannfærð um að bragðið er betra af eigin uppskeru. Það sem maður ræktar sjálfur er líka nýtt beint upp úr moldinni, en maður veit ekkert hvenær það sem fæst úti í búð var tekið upp.“ Ráðgjöf um ræktun Svanhildur verður í hópi garð- yrkjufræðinga sem veita ráðgjöf í Grasagarðinum næstkomandi þriðjudag en þá munu Garðyrkju- fræðingar Grasagarðsins og félagar úr Hvönnum – matjurtaklúbbi Garðyrkjufélags Íslands fræða gesti um leiðir til að meðhöndla uppskeruna úr mat- og kryddjurta- garðinum. Þá verður fjallað um hvernig best er að undirbúa garð- inn fyrir veturinn. Einnig munu félagar úr Seljagarði – borgarbýli kynna starfsemi sína.„Fræðslan er ekki í fyrirlestrarformi heldur erum við til staðar og fólk gengur bara á milli okkar spyr. Við erum yfirleitt með fræðslu á vorin um undirbúning mat- jurtagarðsins, sáningu og fleira og á haustin höfum við blásið til fræðslufundar um hvernig á að nýta uppskeruna og hvernig ganga á frá garðinum fyrir veturinn. Frá- gangurinn er nefnilega ekki síður mikilvægur. Fólk vanmetur oft mikilvægi þess að reyta illgresið fyrir veturinn. Ef það er ekki gert kemur það tvöfalt til baka að vori,“ segir Svanhildur. Matjurtarækt ekki flókin Matjurtaræktun er ekki flókin þó kalt sé hér á landi og það má til dæmis vel rækta í pottum úti á svölum, salat og harðgerar krydd- jurtir eins og timjan og oregano. Það er æðislegt að eiga til dæmis salat í potti allt sumarið. Það rækta líka margir kartöflur í pottum eða kerum úti á svölum. Kartöflur geta geymst lengi fram á vetur og eins hvítkál, rauðkál og rófur. Það má einnig súrsa græn- meti svo það geymist lengur,“ útskýrir Svanhildur en ráðgjafar matjurtaklúbbsins Hvanna eru hafsjór af fróðleik um hvernig vinna má grænmeti á ýmsan máta svo það geymist fram á vetur. Fræðslan fer fram í nytjajurtagarði Grasagarðsins við Laugatungu sem er rétt austan við aðalinngang Grasagarðsins og er hægt að koma við hvenær sem er á milli kl. 17.00 og 18.30. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Fólk vanmetur oft mikilvægi þess að reyta illgresið fyrir vetur- inn. Ef það er ekki gert kemur það tvöfalt til baka að vori. Svanhildur Björk. Sigfúsdóttir Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is Hægt er að fá ráðleggingar um matjurta- rækt og frágang á garðinum fyrir veturinn í Grasagarðinum á þriðjudaginn. Bragðið betra af eigin uppskeru Fræðsla um nýtingu uppskerunnar og frágang á matjurtagarðinum fyrir veturinn fer fram í nytja- jurtagarði Grasagarðsins á þriðjudaginn. Félagar úr Seljagarði – borgarbýli kynna starfsemi sína. THERMOMIX® NÚ LOKSINS FÁANLEGT Á ÍSLANDI! Thermomix® hrærir, blandar, mixar, saxar, malar, hnoðar, gufusýður, eldar og er með innbyggða vigt og tíma- og hitastillingu. Allt sem þú þarft í einu tæki. Ef þú vilt velja hráefnin sjálf(ur) og elda frá grunni, draga úr neyslu tilbúinna rétta, matarsóun og kaupum á vörum í plast- umbúðum þá er Thermomix® eitthvað fyrir þig. Kynntu þér Thermomix betur með því að panta kynningu á Thermomix á Íslandi eða eldhustofrar.is Thermomix á Íslandi info@eldhustofrar.is Thermomix® er hannað og framleitt af þýska fyrirtækinu Vorwerk, hefur verið á markaðnum í meira en 50 ár og nýtur sívaxandi vinsælda um heim allan. Samkvæmt nýlegum rannsóknum gæti hóflegt súkkulaðiát verið hollt fyrir hjartað. Samantekt úr fimm stórum rannsóknum sem náðu til meira en hálfrar milljónar einstaklinga leiddi í ljós að fólk sem borðar þrjú súkkulaðistykki á mánuði er í 13 prósent minni hættu á hjartabilun en þeir sem borða ekkert súkkulaði. Þessar niðurstöður voru kynntar á ráðstefnu evrópskra hjartalækna í München fyrir skömmu. Skýringin á þessu er talin vera sú að það eru náttúruleg efni í kakóplöntunni sem eru holl fyrir æðakerfið og geta minnkað bólgur. Rannsakendur segja hins vegar að það sé hægt að auka hættuna á hjartabilun um 17 prósent með því að borða súkkulaðistykki á hverjum degi. Dr. Chayakrit Krittanawong, sem stýrði rannsókninni, segir að hún telji súkkulaði mikilvæga uppsprettu hollu efnanna sem sé að finna í kakó- plöntunni. Þau bæta blóðflæði, minnka bólgur og auka gott kólesteról. Hún bendir hins vegar á að súkkulaði geti innihaldið mikla mettaða fitu og að mjólkursúkkulaði sé sérlega sykrað. Því sé það bara hófleg neysla á dökku súkkulaði sem sé holl. Rannsakendur taka fram að þarna sé um fylgni en ekki orsakasamband að ræða, en segja að tilvist þessara hollu efna geti vel útskýrt fylgnina. Þeir segja samt að það sé þörf á frekari rannsóknum til að staðfesta niðurstöð- urnar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem rannsóknir segja að súkkulaði geti verið hollt. Í fyrra kom út rannsókn þar sem því var haldið fram að einn súkkulaðibiti á dag gæti verið góður fyrir hjartað og í apríl á þessu ári var birt rannsókn þar sem leiddar voru líkur að því að dökkt súkkulaði geti minnkað streitu. Súkkulaði virðist hollt í hófi 4 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . áG ú S t 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RHoLLt oG BRAGÐGott 3 1 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :1 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 B 5 -B 2 3 C 2 0 B 5 -B 1 0 0 2 0 B 5 -A F C 4 2 0 B 5 -A E 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.