Fréttablaðið - 31.08.2018, Síða 20

Fréttablaðið - 31.08.2018, Síða 20
Húðlæknastöðin hefur verið leiðandi í lasermeðferðum í tuttugu ár og leitast við að vera með öflugustu laserana hverju sinni. Við erum þannig með öflugan háreyðingarlaser, æða slits- og rósroðalaser,“ segir Jenna Huld Eysteinsdóttir, doktor í húðsjúkdómalækningum við Húð- læknastöðina. „Við ákváðum fyrir mörgum árum að hætta að bjóða upp á fjarlægingu tattúa þar sem okkur þótti tæknin ekki fullnægj- andi. Þeir laserar sem verið er að nota til að fjarlægja tattú á Íslandi í dag, svokallaðir nanó-laserar, eru byggðir á nærri þrjátíu ára gamalli tækni. Þeir hafa ekki sýnt nægilega góðan árangur því skuggi getur orðið eftir af tattúinu og ör myndast. Þeir kalla á margar með- ferðir auk þess sem meðferðin sjálf getur verið verulega óþægileg.“ Úr nanó í pico En nú verður breyting á því Húð- læknastöðin á von á nýju laser- tæki, pico-laser „Með þessum pico-laser getum við boðið upp á byltingarkennda meðferð í fjar- lægingu tattúa,“ segir Anton Örn Bjarnason húðsjúkdómalæknir og lýsir nánar hvernig hin nýja tækni virkar. „Þegar laser er notaður til að fjarlægja tattú er verið að skjóta ljósorku inn í litarefnið, það hitað upp og brotið í smærri einingar sem líkaminn getur hreinsað upp. Tíminn sem það tekur ljós- orkuna að hita upp og brjóta niður litarefnið hefur hingað til verið talinn í nanósekúndum en með nýja lasernum er tíminn talinn í picosekúndum. Litarefnið er því hitað upp mörghundruðfalt hraðar sem leiðir til að það brotnar niður í mun smærri einingar sem auð- veldar líkamanum enn betur að hreinsa þær upp,“ lýsir hann og tekur dæmi um stein sem er mul- inn í smærri steinvölur. Með nýju tækninni mætti segja að steininum sé breytt í duft. Minni sársauki og færri skipti „Með þessari aðferð fást mun öfl- ugri áhrif en notuð til þess minni orka. Þannig verður bólgumyndun minni og lítil hætta á öramyndun eftir sjálfa meðferðina. Sársaukinn er líka mun minni en mestu máli skiptir að færri meðferðarskipta er þörf,“ lýsir Jenna og bendir á að rannsóknir sýni að með pico- lasernum þurfi fólk þriðjung til helmingi færri meðferðarskipti miðað við nano-lasera. Innt eftir því hve mörg skipti þurfi til að fjarlægja tattú segja þau Anton og Jenna að meta verði hvert tilvik fyrir sig. „Litir í tattúum bregðast misvel við laserum en tattúlitir eru mjög ólíkir og engin stöðlun á þeim. Meðferðar- tíminn er því breytilegur, fer eftir gæðum lita, magni þeirra, dýpt og blöndun,“ útskýrir Anton. „Svarti liturinn svarar lang- Jenna Huld Eysteinsdóttir og Anton Örn Bjarnason húðsjúkdómalæknar á Húðlæknastöðinni. Mynd/Ernir Bylting í fjarlægingu tattúa Húðlæknastöðin fær til landsins á næstu vikum nýtt pico-laser- tæki sem fjar- lægir tattú mun hraðar og betur en þau laser- tæki sem til eru á landinu í dag. best en sýnt hefur verið fram á að pico-laserinn fjarlægi bláan, grænan og gulan lit mun betur en eldri tæknin. Með gömlu tækninni vildi það líka oft gerast að ljós upphleyptur skuggi og ör varð til eftir meðferðina. Rannsóknir hafa sýnt að pico-laserinn getur oftast fjarlægt þessa skugga. Innbyggt í tækið er sterkur fractional-laser sem virkar vel á ör,“ segir Jenna. En má tattúvera yfir húð sem búið er að fjarlægja gamalt tattú af? „Já, það mælir ekkert gegn því þar sem ekki verða húðskemmdir eftir meðferðina.“ Ódýrara þegar upp er staðið Hvert meðferðarskipti verður dýrara í pico-lasernum en nanó- lasernum. „En þar sem fólk þarf að koma í færri skipti verður heildar- kostnaðurinn minni og árangurinn betri,“ segir Anton. Húðlæknastöðin hefur fengið fjölda fyrirspurna um fjarlægingu tattúa í gegnum tíðina. „Við erum því að bregðast við eftirspurn,“ segir Jenna en nú þegar er kominn biðlisti í laserinn nýja sem von er á til landsins eftir um átta vikur. nýtt fitukælingartæki Húðlæknastöðin á von á fleiri nýjum tækjum. „Við erum að taka inn fitukælingartæki og töluverð eftirvænting eftir því. Með tækinu er hægt að eyða fitu með kæliað- ferð, en kælingin er notuð til að brjóta niður fitufrumur. Það hefur sýnt sig að af því magni sem kælt er niður í hvert sinn eyðast 25 til 30% af fitu upp á um það bil tveimur mánuðum eftir hverja meðferð,“ lýsir Jenna. Anton tekur fram að fag- mennskan sé í fyrirrúmi á Húð- læknastöðinni. „Hér eru allar meðferðir framkvæmdar af heil- brigðismenntuðu starfsfólki undir faglegri handleiðslu sérfræðilækna í húðsjúkdómum.“ Nánari upplýsingar: Húðlæknastöðin Smáratorgi 1 S 520 4407 & 520 4412 www.hudlaeknastodin.is laser@hls.is Eftir 2 meðferðir með pico-laser. Myndir/nicolA ZErBinAti Md Eftir 5 meðferðir með pico-laser. Eftir 4 meðferðir með pico-laser. Eftir 4 meðferðir með pico-laser. niðurbrots litarefnis með Q-Switch laser litarefni brotið niður í mun smærri einingar með pico-laser. Kostir Pico lasers: n Betri árangur n Færri meðferðir n Minni aukaverkanir n Minni óþægindi n Lægri heildarkostnaður 6 KynninGArBlAÐ FÓlK 3 1 . áG Ú s t 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R 3 1 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :1 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 B 5 -D 9 B C 2 0 B 5 -D 8 8 0 2 0 B 5 -D 7 4 4 2 0 B 5 -D 6 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.