Fréttablaðið - 31.08.2018, Síða 26
Við hjónin hættum
meðvitað að kaupa
sætindi inn á heimilið en
við erum miklir súkku-
laðifíklar. Nammihill-
urnar freist a mín ekki.
Vítamín og bætiefni Gula miðans
eru sérstaklega valin og þróuð
fyrir íslenskar aðstæður. Þess
vegna hefur Guli miðinn verið
hluti af daglegu lífi Íslendinga
í 25 ár. Kynntu þér úrvalið
á gulimidinn.is
Fyrir okkur sem leikum
úti allan ársins hring
Jurtir, steinefni
og vítamín
Fæst í næsta apóteki eða
heilsuvöruverslun
Ég hef mjög gaman af því að skoða uppskriftir og rakst á þessa dásamlegu vegan súkku
laðiuppskrift á netinu. Mér fannst
hún svo girnileg að ég ákvað að
prófa að búa til mitt eigið súkku
laði, sem er frábært fyrir nammi
grísi eins og mig sem vilja draga
úr sykuráti. Ég er ekki vegan en er
alltaf til í að prófa eitthvað nýtt,“
segir Sigríður sem er sérfræðingur
hjá Byggðastofnun. Undanfarið
hefur hún haft í mörg horn að líta
en um síðustu helgi stóð Sigríður
ásamt fleirum að Jakobínuvöku
2018 í Iðnó, dagskrá til heiðurs
Jakobínu Sigurðardóttur sem var
vel sótt. Hún er dóttir skáldkon
unnar og er með bók um móður
sína í smíðum.
Auðvelt að sniðganga
nammihillurnar
„Fyrir nokkrum vikum ákváðum
við hjónin að hætta meðvitað að
Heimatilbúið vegan súkkulaði
Sigríður Kristín
Þorgrímsdóttir
hætti að kaupa
sætindi úti í búð
og býr þess í stað
til sitt eigið súkku-
laði sem hún
segir bæði hollt
og ægilega gott.
kaupa sætindi inn á heimilið en við
erum miklir súkkulaðifíklar. Ég er
hissa á hvað það hefur reynst auð
velt og nammihillurnar í búðunum
freista mín ekki hið minnsta.
Stöku sinnum langar okkur þó í
eitthvað sætt og þá er fínt að geta
gripið í eigið súkkulaði,“ segir hún
brosandi.
Uppskriftina fékk Sigríður á
vefsíðunni Heilsa og vellíðan og
höfundurinn heitir Anna Guðný
Torfadóttir. „Ég fór alveg eftir
uppskriftinni í fyrsta sinn sem ég
bjó til súkkulaðið. Ég horfi oft á
matreiðsluþætti mér til skemmt
unar og einnig til að fá nýjar
hugmyndir, ég var lengi áskrifandi
að Gestgjafanum en þar eru pott
þéttar uppskriftir. Svo á ég mikið
af matreiðslubókum og þar leynast
margar góðar uppskriftir sem ég
nýti mér,“ segir Sigríður.
Lítið fyrir boð og bönn
Þótt Sigríður vilji almennt borða
hollan og góðan mat segir hún
stranga matarkúra ekki að sínu
skapi og þeir höfði ekki til sín. „Ég
er lítið fyrir boð og bönn í þeim
efnum. Ef mér er bannað eitthvað
liggur við að ég streitist á móti því.
Þess vegna er ég ekki alveg stíf á
því að borða alls ekkert óhollt. Við
hjónin höfum að vísu að mestu
leyti tekið út sykur en ég leyfi
mér alveg að fá mér kökusneið og
annað góðgæti í veislum og matar
boðum,“ segir hún.
Sigríður hefur fylgst vel með
umræðu um matarsóun og segist
alin upp í þeim anda að henda
helst aldrei mat. „Alla mína
búskapartíð hef ég nýtt afganga af
mat, hitað þá upp eða búið til eitt
hvað nýtt úr þeim. Ég hef alltaf haft
röð og reglu á matartímum, enda
vandist ég því sem barn, og ég held
að það hafi mikið að segja. Ég tel að
óhollustu nútímans megi rekja til
þessara eilífu skyndilausna á öllu
mögulegu, líka hvað varðar mat. Ég
man eftir að hafa verið í matvöru
búð í Bretlandi fyrir meira en ára
tug og það var varla hægt að kaupa
hráefni til að matbúa frá grunni en
hins vegar var nóg úrval af skyndi
réttum. Ég óttast að við stefnum í
þá átt hér á landi,“ segir hún.
Vegan súkkulaði
2 msk. kókosolía
1 msk. kakósmjör
2 msk. möndlusmjör
3 msk. kakó
3 msk. hlynsíróp
¼ tsk. vanilluduft
Gróft salt
Bræðið kókosolíuna og kakó
smjörið. Setjið síðan allt hráefni í
matvinnsluvél og látið hana blanda
öllu vel saman þar til blandan er
orðin mjúk. Setjið bökunarpappír í
form og hellið blöndunni í formið.
Mótið og setjið síðan í frysti. Látið
harðna vel og takið út. Skerið í
teninga og berið fram.
Sigríður Kristín er ekki mikið fyrir boð og bönn og þess vegna leyfir hún sér að borða kökusneiðar og annað góðgæti í veislum og matarboðum. MYND/EYÞÓR
Dásamlega bragðgott og ljúft vegan
súkkulaði. MYND/EYÞÓR
6 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . áG ú S t 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RHoLLt oG BRAGÐGott
3
1
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
B
5
-B
7
2
C
2
0
B
5
-B
5
F
0
2
0
B
5
-B
4
B
4
2
0
B
5
-B
3
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K