Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.08.2018, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 31.08.2018, Qupperneq 39
Laugardaginn 1. september  er víða um heim haldið upp á 60 ára útgáfuafmæli Allt sundrast eftir nígeríska rithöfundinn Chinua Achebe (1930-2013). Bókin  kom fyrst út árið 1958 og markaði tíma- mót í bókmenntasögu álfunnar, þegar afrískir rithöfundar hófu að rita um sinn eigin samfélagsveru- leika. Bókin hefur verið þýdd á 58 tungumál og selst í yfir 20 milljónum eintaka.  Fyrr á þessu ári kom Allt sundrast út í íslenskri þýðingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur.  Málstofa um Allt sundrast fer fram í Veröld – húsi Vigdísar, laugardag- inn 1. september kl. 13-15. Kristín Loftsdóttir, mannfræð- ingur og rithöfundur, fjallar um þá fordóma sem Achebe skrifaði bókina inn í og þá afmennsku í garð Afríku sem Achebe talar gegn, og enn sér víða stað í umræðu um álfuna. Rúnar Helgi Vignisson, rithöfund- ur og dósent í ritlist, skoðar erindi bókarinnar í því nýlendusamhengi sem hún varð til í og spyr meðal ann- ars hvort skáldsaga sem skrifuð er á máli herraþjóðar frekar en þeirrar þjóðar sem hún fjallar um geti verið fyllilega raunsönn. Giti Chandra, bókmenntafræð- ingur og rithöfundur, flytur erindið ‘Things Fall Apart: A Modern Epic’, um það hvernig bókin vísar bæði í gömul hetjuljóð og form nútíma- skáldsögunnar. Auk þeirra munu Gauti Krist- mannsson, þýðandi og þýðingafræð- ingur, og Elísa Björg Þorsteinsdóttir, þýðandi bókarinnar, ræða saman um verk Achebes. Málþing um tímamótaskáldsögu Chinua Achebe, höfundur skáldsögu sem sannarlega markaði tímamót. Bækur Syndaflóð HHHHH Höfundur: Kristina Ohlsson Þýðandi: Nanna B. Þórsdóttir Útgefandi: JPV útgáfa Blaðsíður: 447 Það á ekki að vanmeta góða afþreyingu og því ástæðulaust að gera lítið úr glæpasögum sem margar hverjar eru hugvitsam- l e g a s a m a n settar, spenn- andi og með eftirminnilegum persónum. Þetta á því miður ekki við um Syndaflóð eftir Kristinu Ohlsson, sem er sjötta bók hennar um lögreglumennina Fredriku Bergman og Alex Recht. Framan af er þó ástæða til vissrar bjartsýni. Dularfull morð eru framin, að því er virðist í hefndarskyni, og hjón eru innilokuð ásamt börnum sínum og fyllast örvæntingu. Þarna er spenna vissulega fyrir hendi, sérstaklega þegar kemur að þætti móðurinnar sem fer að gruna að eiginmaðurinn muni missa vitið í einangruninni og skaða hana og börnin. Smá Shining-taktar þar. Þegar líða fer á verkið verður sögu- þráður bókarinnar verulega þvælu- kenndur og afar ótrúverðugur. Við það bætist að sagan er ekki vel skrifuð. Unnendum norrænna glæpasagna er vel kunnugt um það hversu miklar þjáningar aðalpersónur þessarar bók- menntagreinar verða að þola. Hér er ólánið hreinlega svo yfirgengilegt að hætt er við að það ofbjóði skynsemi einhverra lesenda. Snemma liggur ljóst fyrir hverjir eru hinir seku, þótt lögguteymið sé ansi lengi að átta sig á því. Ástæð- urnar fyrir morðunum og glæpunum eru síðan næsta fáránlegar og vart boðlegar, nema þá gagnrýnislaus- ustu lesendum. Í sjálfsánægjulegum eftirmála segir Ohlsson að mjög líklega verði þetta síðasta bók hennar um Fred- riku Bergman. Það er leitt að Ohlsson hafi ekki getað lokað ritröð sinni á sómasamlegri hátt, en sjálfri virðist henni þykja þetta afskaplega gott hjá sér. Íslenskir lesendur virðast margir hverjir hafa áhuga á þessari bók Ohlsson sem hefur verið á met- sölulista síðustu vikurnar, sem er reyndar engin trygging fyrir gæðum. Kolbrún Bergþórsdóttir NiðurStaða: Glæpasaga sem byrjar ágætlega en verður síðan þvælukennd og langdregin. Þvælukennd glæpasaga Ástæðurnar fyrir morðunum og glæp- unum eru síðan næsta fÁrÁnlegar og vart boð- legar, nema þÁ gagnrýnis- lausustu lesendum. LjóSa DaGaR 20–50% LæKkUn Okkar árlegu ljósadagar hefjast föstudaginn 31. ágúst með frábærum tilboðum á ljósum. Fáðu sérmenntaðan lýsingarhönnuð Pfaff í heimsókn án endurgjalds. Pantaðu tíma! PFAFF • Grensásvegi 13 • 108 Reykjavík • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ðN N N r t t a a 19F Ö S t u D a g u r 3 1 . á g ú S t 2 0 1 8 3 1 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :1 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 B 5 -B C 1 C 2 0 B 5 -B A E 0 2 0 B 5 -B 9 A 4 2 0 B 5 -B 8 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.