Fréttablaðið - 22.09.2018, Síða 8
Skemmtu þér konunglega
Skelltu þér á völlinn og hvettu þitt uppáhaldslið. Skrepptu á tónleika eða í leikhús.
Röltu um hallargarða og forna kastala og kynntu þér nýjustu strauma og stefnur í
matargerð, listum og tísku. Aldrei hefur verið auðveldara að njóta lífsins í Bretlandi.
BRETLAND
Verð aðra leið frá 13.900 kr.
Verð frá 21.400 Vildarpunktum
Jafnrétti „Sumir spyrja sig nú
þegar þeir velta fyrir sér atburða-
rásinni í Orkuveitunni: Skilaði
#MeToo-byltingin engu? Ég svara
því til að byltingin sé rétt að byrja,“
segir Hulda Ragnheiður Árnadóttir,
framkvæmdastjóri Náttúruhamfara-
trygginga Íslands.
Stjórn Félags kvenna í atvinnu-
lífinu (FKA) fundaði í vikunni um
uppsögn Áslaugar Thelmu Einars-
dóttur, fráfarandi forstöðumanns
einstaklingsmarkaðar hjá Orku
náttúrunnar (ON). Í tilkynningu frá
FKA lýsti stjórn félagsins vanþóknun
á því hvernig staðið hefur verið að
málinu innan móðurfyrirtækis ON,
Orkuveitu Reykjavíkur. Í yfirlýsingu
stjórnar sagði: „Það er algjörlega
óviðunandi eftir alla þá umræðu
sem orðið hefur í kjölfar #MeToo
byltingarinnar að ekki sé staðið fag-
lega að málum vegna kynbundins
ofbeldis og áreitni.“
Hulda er fulltrúi Félags kvenna í
atvinnulífinu í starfshópi á vegum
velferðarráðuneytis sem fylgir eftir
aðgerðum á vinnumarkaði gegn ein-
elti og kynferðislegu og kynbundinni
áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
„Nefndin hefur fengið það verkefni
að koma með hugmyndir að úrbót-
um á vinnuumhverfi. Við vinnum
einnig úr hugmyndum um fræðslu
til fyrirtækja. Til að mynda heima-
síðu þar sem verða upplýsingar um
málefnið. Skýrar leiðbeiningar til
stjórnenda um aðgerðir og viðbrögð
gegn einelti og kynbundinni áreitni
og kynferðislegu ofbeldi á vinnu-
stöðum,“ segir hún og segir flesta
meðlimi aðgerðahópsins þekkjast
vel og hafa starfað áður að úrbótum
í málaflokknum á öðrum vettvangi.
Hulda hefur vegna vinnu sinnar
í aðgerðahópnum fengið í trúnaði
fjölmörg dæmi um áreitni, ofbeldi
og einelti. Henni þykir verst þegar
konur eru gerendur gegn konum. „Þá
verð ég hrygg. Ég hef ekki umburðar-
lyndi fyrir því þegar karlar telja sig
mikilvægari konum, en ég hef á því
vissan skilning. Þegar konur taka
þátt í þöggun á ofbeldi gegn kyn-
systur sinni eða þegar þær leggja þær
í einelti á vinnustað, það skil ég ekki.
Við verðum að vera óhræddar við að
tala um þetta og átta okkur á því að
allir þurfa fræðslu um ofbeldi, bæði
konur og karlar. Karlar eru alls ekki
einir um að beita ofbeldi,“ segir hún
og bendir á að FKA sé vettvangur
kvenna til að stækka tengslanetið
og efla sig sem stjórnendur. „Konur
eiga að vera konum bestar, það er
það sem við göngum út frá í FKA
og viljum vinna að. Konur eru líka
rétt að byrja að átta sig á því að þær
gegni mikilvægu hlutverki í að gagn-
rýna þessa menningu, hafa hátt um
hana. Þær eigi ekki að taka þátt í úr
sér genginni og skaðlegri menningu,“
segir Hulda.
Hún bendir á að OR-málið sé það
fyrsta þar sem háttsettur stjórnandi
sé látinn taka afleiðingum gjörða
sinna. „Við verðum að muna að
þetta mál er aðeins ein birtingar-
mynd vandans. Við eigum að læra af
því. Það eru fjölmargar aðrar konur
og karlar sem glíma við afleiðingar
áreitni, eineltis og ofbeldis.
Ég veit um konur sem hafa bakkað
út úr góðu starfi vegna áreitni eða
eineltis. Ég veit um eitt svæsið dæmi
í stjórnmálum þar sem kona þurfti
að velja um frama innan flokksins
eða afhjúpa háttsettan aðila innan
hennar flokks sem áreitti hana á
mjög óviðeigandi hátt. Hennar
hagsmunir voru of miklir innan
flokksins til að hún væri tilbúin til
að segja sannleikann um hegðun
mannsins. Þá veit ég um konur sem
hafa stigið til hliðar vegna eineltis
annarra kvenna. Þær segja gjarnan
aðspurðar: Ég vildi breyta til. Kjósa
að fara í stað þess að reyna að takast
á við vandann. Ég held að það skorti
betri leiðir til þess að taka á ofbeldi,
einelti og áreitni á vinnustað. Það er
bara nýlega sem ég komst að því að
það er lögbundið hlutverk Vinnu-
eftir litsins að taka á þessum málum
en stofnunin hefur litla burði til
þess.“ í dag,“ segir Hulda.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Hulda Ragnheiður Árnadóttir hjá FKA segir alla þurfa fræðslu um ofbeldi,
bæði konur og karla. Konur eigi að vera konum bestar. .FRéttAblAðið/EyþóR
Hennar hagsmunir
voru of miklir innan
flokksins til að hún væri
tilbúin til að segja sannleik-
ann um hegðun mannsins.
Hulda Ragnheiður
Karlar ekki einir um að beita ofbeldi
„Þegar konur taka þátt
í þöggun á ofbeldi gegn
kynsystur sinni eða
þegar þær leggja þær í
einelti á vinnustað, það
skil ég ekki,“ segir Hulda
Ragnheiður Árnadóttir
framkvæmdastjóri sem
situr í aðgerðahóp vel-
ferðarráðuneytis gegn
einelti, áreitni og ofbeldi
á vinnustöðum landsins.
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
2
2
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
4
-A
C
C
0
2
0
E
4
-A
B
8
4
2
0
E
4
-A
A
4
8
2
0
E
4
-A
9
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K