Fréttablaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 40
Arndís Valgarðsdóttir sálfræðingur segir að ýmis andleg vandamál geti fylgt því að eldast og það sé mikilvægt að
aldraðir hafi aðgang að sálfræðiþjónustu ef á þarf að halda, því hún geti reynst þeim mjög dýrmæt. MYND/EYÞÓR
Arndís Valgarðsdóttir, sál-fræðingur hjá Sálfræðingum Höfðabakka, sérhæfir sig í að
veita öldruðum sálfræðiþjónustu.
Hún segir að það séu ýmis andleg
vandamál sem geti komið upp á efri
árum og það sé misjafnt hversu vel
einstaklingar séu í stakk búnir til að
takast á við þau. Því geti sálfræði-
þjónusta reynst þessum hópi sér-
lega dýrmæt, þó að aldraðir séu oft
tregir til að leita sér slíkrar hjálpar.
„Fólk upplifir það að eldast á
mjög mismunandi hátt. Með hækk-
andi aldri, breytingum á samfélags-
legri stöðu við starfslok og líkam-
legri hrörnun aukast líkur á ýmiss
konar sjúkdómum og versnandi
heilsufari,“ segir Arndís. „Veikindum
fylgir yfirleitt líkamleg vanlíðan og
erfiðar tilfinningar sem birtast oft í
formi reiði og pirrings. Þessu fylgja
líka oft aðrar neikvæðar tilfinn-
ingar eins og þunglyndi, kvíði og
vanmáttur, sem geta reynst þeim
öldruðu erfiðir fylgifiskar.
Þegar hjón eldast saman er
algengt að það verði hlutskipti ann-
ars þeirra að sinna veikum maka
Aldraðir þurfa aðgang
að sálfræðingum
Ýmis andleg
vandamál geta
fylgt því að eld-
ast, en það er
misjafnt hve auð-
velt aldraðir eiga
með að takast
á við þessa van-
líðan. Því er mikil-
vægt að þeir hafi
aðgang að sál-
fræðiaðstoð ef á
þarf að halda.
sínum. Við þær aðstæður breytist
staða hjónanna innan hjónabands-
ins og slíkt getur reynt mjög á sam-
bandið,“ segir Arndís. „Það getur
verið erfitt að takast á við þetta nýja
hlutverk og auk þess er algengt að
þeim sem þurfa á aðstoðinni að
halda finnist erfitt að vera þiggjandi.
Þetta getur leitt til andlegrar van-
líðanar hjá þeim báðum.“
Þunglyndi stundum talið
eðlilegt
„Þunglyndi er einn algengasti
kvillinn á Vesturlöndum og mikið
heilsufarsvandamál, þar sem því
fylgir bæði andleg og líkamleg van-
líðan. Helstu birtingarmyndir þung-
lyndis eiga jafnt við eldra fólk og
yngra,“ segir Arndís. „Þær eru dep-
urð, grátur, vanlíðan, óskilgreindur
kvíði og framtaksleysi. Þeir sem
eru þunglyndir bera sig oft illa, eiga
erfitt með að finna til ánægju, hafa
vantrú á eigin getu, mikla hlutina
fyrir sér og missa áhugann á sam-
skiptum við aðra. Þeir upplifa sig
gjarnan einskis verða og vanmáttur
og vonleysi brýst oft fram sem pirr-
ingur og reiði í samskiptum.
Þunglyndi og einmanaleiki
haldast líka oft í hendur og líkamleg
einkenni, eins og svefntruflanir,
þyngdartap, meltingartruflanir,
þreyta og alls kyns verkir geta fylgt
þunglyndi,“ segir Arndís. „Eldra fólk
telur gjarnan að þunglyndi sé eðli-
legur fylgifiskur þess að eldast og er
líklegra til að kvarta yfir líkamlegum
kvillum eða minnisleysi heldur en
andlegri vanlíðan.“
Mikilvægt að þekkja einkenni
kvíða
„Kvíði er eðlilegt viðbragð sem við
upplifum þegar okkur finnst við
ráða illa við þær aðstæður sem við
stöndum frammi fyrir,“ segir Arn-
dís. „Kvíði getur verið gagnlegur og
hvatt okkur til dáða en hann getur
líka verið hamlandi og er oft mjög
óþægilegur.
Hækkandi aldri fylgja ýmsar
breytingar á lífinu sem við erum
misvel fallin til að takast á við og
algengt er að finna til aukins kvíða.
Heilsan lætur undan síga, getan
til sjálfsbjargar minnkar og sumir
kvíða dauðanum,“ segir Arndís.
„Meðal einkenna sem fylgja kvíða
eru eirðarleysi, þróttleysi, einbeit-
ingarskortur, pirringur, svefntrufl-
anir og vöðvaspenna.
Sum þessara einkenna geta verið
eðlileg afleiðing öldrunar, en það
getur skipt miklu máli að greint
sé á milli eðlilegra merkja þess að
eldast og einkenna kvíða eða ann-
arra sálrænna kvilla,“ segir Arndís.
„Þó getur stundum verið erfitt að
aðgreina einkenni kvíða, þung-
lyndis og heilabilana hjá öldruðum,
þar sem einkennin geta verið bæði
svipuð og samofin.“
Oft erfitt að vera aldraður
„Eldra fólk býr oft yfir mikilli sorg
eftir lífsreynslu langrar ævi. Erfiðast
er að missa börn, maka eða aðra ást-
vini, en mörgum finnst starfslokin
líka erfið og að missa hlutverk sitt
og samfélagsstöðu,“ segir Arndís.
„Öðrum finnst erfitt að sjá líkama
sinn eldast og finna virkni og þrótt
dvína.
Það er misjafnt hversu vel fólki
gengur að takast á við vanlíðan sína.
Sumum finnst erfitt að tala um líðan
sína eða hafa engan til að tala við
og eiga því erfiðara með að vinna úr
vanlíðan og sorg,“ segir Arndís. „Það
er líka mjög misjafnt hversu mikið
innsæi eða þekkingu fólk hefur á
tilfinningum sínum og sumir átta
sig ekki á hvað það er sem veldur
vanlíðaninni.
Að átta sig á hvað liggur að baki
breytingum á líðan getur eitt og
sér verið mikilvægt og gerir það
auðveldara að ákveða hvernig má
takast á við vandann. En eldra fólk
leggur oft meiri áherslu á líkamlega
heilsu sína en andlega líðan og er
oft tregt til að leita til sálfræðinga,“
segir Arndís. „En ef fólk glímir við
heilsufarsvanda, þunglyndi eða
kvíða getur það aukið lífsgæðin að
fá hjálp sálfræðinga til að takast á
við breytta lífssýn.
Því er ástæða til að benda á að
þjónusta sálfræðinga stendur öllum
til boða, á hvaða aldri sem fólk er,“
segir Arndís. „Til að stuðla að góðri
líðan á efri árum þarf að tryggja
eldra fólki greiðan aðgang að allri
heilbrigðisþjónustu og sálfræði-
þjónusta er mikilvægur hluti af
henni.“
Þá getum við hjá Sinnum lagt þér lið.
Hikaðu ekki við að leita til okkar ef
þig vantar þjónustu við skyldmenni
eða sjálfa/n þig.
Aðhlynning, afþreying, böðun,
liðveisla og leikhús eða matargerð
- við höfum lausnina sem hentar
þínum lífsvenjum.
Vantar þig aðstoð við
athafnir daglegs lífs?
Ármúla 9 - 108 Reykjavík - Sími 519 1400
sinnum@sinnum.is - www.sinnum.is
Heyrðu í okkur í síma 519-1400
eða sendu okkur línu á
sinnum@sinnum.is
4 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . s E p t E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U REfRI áRIN
2
2
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
4
-F
B
C
0
2
0
E
4
-F
A
8
4
2
0
E
4
-F
9
4
8
2
0
E
4
-F
8
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K