Fréttablaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 84
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Haustið kallar á bragðsterkan mat. Það er eins og manni hlýni með chilli-sósunni.
Hver og einn getur þó alveg valið
hversu sterkur maturinn á að vera.
Hér eru tveir góðir réttir sem geta
verið eins sterkir og fólk vill.
Bragðmikill kjúklingur er alltaf
vinsæll. Hér er réttur þar sem chilli-
pipar og paprika eru í aðalhlutverki
með kjúklingnum. Það er hægt að
nota hvort sem er úrbeinuð kjúkl-
ingalæri eða bringur í þennan rétt,
eftir smekk hvers og eins. Sumum
finnst kjötið af lærunum bragð-
meira.
Kjúklingur með papriku
og chilli
Fyrir fjóra til sex
600 g kjúklingur, læri eða bringa
3 msk. maizena
1 egg
1 tsk. salt
½ tsk. svartur pipar
Sósa
2 msk. sojasósa
½ tsk. chilli-flögur
1 hvítlauksrif
2 msk. hunang
1 msk. chilli-mauk
Grænmeti og hnetur
2 paprikur, skornar niður
1 rauður chilli-pipar, fræhreinsaður
og skorinn smátt
1 lúka kasjú-hnetur
3 vorlaukar
Skerið kjúklinginn í litla bita.
Blandið saman í skál maizena, eggi,
salti og pipar. Veltið bitunum upp
úr blöndunni.
Gerið chilli-sósuna með því að
blanda sojasósu, chilli-flögum,
hvítlauki, hunangi og chilli-mauki
saman. Sósan verður sterkari eftir
því sem meira er sett af chilli. Um
að gera að smakka sig áfram til að
finna rétta styrkleikann fyrir ykkar
smekk.
Skerið papriku og vorlauk. Steikið
kjúklinginn í rapsolíu. Hann á að
fá smá lit. Þegar kjúklingurinn er
tilbúinn er hann tekinn af pönn-
unni og settur í skál. Hellið chilli-
sósunni yfir og hrærið.
Setjið hnetur, chilli og papriku á
heita pönnuna. Bætið við olíu ef
þarf. Bætið síðan kjúklingnum og
chilli-sósunni saman við. Stráið
vorlauknum yfir. Blandið öllu vel
saman og berið fram með hrís-
grjónum.
Mexíkóskt lasagna
Þetta er einföld uppskrift sem gleður
alla fjölskyldumeðlimi. Gott er að
hafa allt hráefnið tilbúið og niður-
skorið þegar eldamennskan hefst.
Byrjið á að gera sósuna.
Sósa
2 msk. rapsolía
2 msk. hveiti
4 msk. chilliduft
½ tsk. hvítlauksduft
1 tsk. salt
1 tsk. cumin
1 tsk. óreganó
1 dós hakkaðir tómatar (400 g)
2-3 dl kjúklingasoð
Síðan þarf
Um það bil 500 g kjúklingabringur,
steiktar
8 stykki tortillur
50 g spínat
1 dós maísbaunir
1 dós svartar baunir
200 g rifinn ostur
Meðlæti
Lárpera í bitum
Tómatar í bitum
Vorlaukur í sneiðum
Ferskt kóríander
Límóna í bátum
Chilli-sósa
Sýrður rjómi
Hitið ofninn í 200°C.
Þegar sósan er gerð er olía hituð á
pönnu og hveiti, chilli-duft, hvít-
lauksduft, salt, cumin og óreganó
sett út í og steikt í nokkrar mínútur.
Góður ilmur kemur frá kryddunum.
Bætið þá við tómötum og soði.
Leyfið öllu að malla smá stund.
Rífið kjúklingakjötið niður. Skerið
hverja tortillaköku í fernt. Opnið
baunadósina, hellið vatninu frá og
skolið svörtu baunirnar undir renn-
andi vatni.
Takið nú sósuna af hitanum og
sækið eldfast mót sem er 20x25 að
stærð. Setjið smá sósu í botninn
á forminu. Leggið tortilla-kökur
yfir. Setjið spínat og kjúkling yfir,
síðan svartar baunir og maísbaunir.
Dreifið osti yfir og setjið meira af
sósunni. Þá eru aftur settar tort-
illa-kökur yfir og síðan spínat og
kjúklingur. Þá eru baunir og svo
haldið áfram eins þar til allt er búið.
Í restina er sósa og rifinn ostur.
Breiðið álpappír yfir formið.
Setjið formið í 200°C heitan oft og
bakið í 30-40 mínútur. Takið þá
álpappírinn, dreifið aðeins meiri
osti yfir og bakið í 5-10 mínútur í
viðbót. Osturinn á að vera gullin-
brúnn. Gott er að kæla réttinn í
nokkrar mínútur áður en hann er
borinn fram svo enginn brenni sig.
Berið fram með meðlætinu sem upp
var talið og jafnvel salati líka.
Kjúklingaréttir með chilli
Margir elska sterka rétti og spara ekki chilli-piparinn. Það er hægt að gera þessa kjúklingarétti eins
sterka og fólk vill. Ef börn eru til borðs má minnka chilli í réttinum en bæta chilli-sósu á eigin disk.
Mexíkóskt lasagna er fyrir alla fjöl-
skylduna. Einfalt að laga þennan rétt.
Æðislegur kjúkl-
ingaréttur með
chilli-pipar.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Arnar Magnússon markaðsfulltrúi Fréttablaðsins
Sími: 512 5442 / arnarm@frettabladid.is
ENDURSKOÐUN
OG BÓKHALD
Veglegt sérblað Fréttablaðsins um Endurskoðun
og bókhald kem r út miðvikudaginn 26. september
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . S E p T E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
2
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
E
4
-D
4
4
0
2
0
E
4
-D
3
0
4
2
0
E
4
-D
1
C
8
2
0
E
4
-D
0
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K