Verslunartíðindi - 01.09.1934, Síða 16
72 VERSLUNARTÍÐINDI
2. Gegn fyrsta veðrjetti í frystihúsum,
lifrarbræðslustoðvum, fiskimjölsverk-
smiðjum og öðrum iðnfyrirtækjum,
sem vinna eingöngu eða að langmestu
leyti að hagnýtingu fiskafurða.
8. Gegn fyrsta veðrjetti í fiskverkunar-
stöðvum.
4. Gegn fyrsta veðrjetti í hverskonar
fiskiskipum landsmanna/stærri en 60
rúmlesta.
Veiting lána samkvæmt þessum lið skal
hafin jafnskjótt og sjóðurinn verður að-
njótandi útflutningsgjaldsins af sjávar-
afurðum, sbr. 4. og 5. lið, og skal þá sett
sjerstök viðbótarreglugerð um þessa 'teg-
und útlána.
Eins og greinin ber með sjer, er til-
gangur sjóðsins fyrst og fremst að veita
lán til endurnýjunar fiskiflotanum. En
eins og mönnum er kunnugt, hefir fiski-
flotinn mjög gengið úr sjer á seinni ár-
um. En auk þess er sjóðnum ætlað að
veita lán til annara endurbóta, sem út-
veginn snerta. Svo er fyrir mælt, að fyrst
um sinn verði veitt lán út á skip alt að
60 smálestum, og er þetta gert til þess að
bæta úr brýnni þörf smábátaútvegs-
manna. Lántil stærri skipa er ekki ætlast
til að veitt verði úr sjóðnum, fyr en eftir
1940, en þá er gert ráð fyrir, að útflutn-
ingsgjaldið renni í sjóðinn.
Fiskiráð.
Frumvarp það um Fiskiráð, sem Ólaf-
ur Thors flytur fyrir hönd Sjálfstæðis-
flokksins, er á þessa leið :
1. gr. Atvinnumálaráðherra skipar 7
manna nefnd, er nefnist fiskiráð. Hún skal
skipuð þannig, að ráðherra tilnefnir einn
mann og er hann formaður nefndarinnar,
en Sölusamband ísl. fiskframleiðenda, Fje-
lag ísl. atvinnurekenda, Alþýðusamband
íslands, Verslunarráð íslands, Samlag ísl.
matjessíldarframleiðenda og Fiskifjelag
íslands tilnefna sinn manninn hvert.
Nefndarmenn skulu vera búsettir í
Reykjavík eða svo nærri, að þeir geti hve-
nær sem er sótt þangað fundi.
2. gr. Verkefni fiskiráðsins er að rann-
saka og gera tillögur um breyttar og nýjar
aðferðir um framleiðslu og sölu sjávaraf-
urða, útvegun nýrra markaða og annað,
sem lýtur að vexti og viðgangi sjávarút-
vegsins.
3. gr. Fiskiráðið skal senda atvinnumála-
ráðherra skýrslu um niðurstöðu rannsókna
sinna og tillöguf þær, sem það gerir.
Skýrslur þessar og tillögur skulu einnig
sendar þeim aðiljum sjávarútvegsins, sem
þær snerta, og skal fiskiráðið gera það, sem
í þess valdi stendur, til þess að fá aðila til
að framkvæma tillögurnar. Ráðið skal
einnig senda ráðherra skýrslu um starf-
semi sína eigi sjaldnar en á 6 mánaða
fresti.
4. gr. Kostnaður af störfum fiskiráðsins
greiðist úr verðjöfnunar- og markaðsleitar-
sjóði fiskútflytjenda, eftir úrskurði ráð-
herra.
5. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Tilgangur þessa frumvarps er fyrst og
fremst, að tryggja það, að forustan í fisk-
sölumálunum sjeu í höndum þeirra manna,
sem hafa víðtækasta þekkingu og reynslu
á þessu sviði.
Hefir áður verið á það drepið, hvílíkur
voði steðjar að sjávarútvegi vorum vegna
haftaráðstafana viðskiftaþjóðanna.
Þessu sjálfsagða máli hafa stjórnar-
flokkarnir tekið með svo mikilli úlfúð, að
undrun sætir. Hefir þó svo farið, að stjórn-
in hefir aðhylst hugmyndina um fiskiráð,
og tekið hana upp í írumvarp sitt um
fiskimálanefnd. En auðvitað hefir stjórn-
in skift um aðila, til þess að hafa forgöngu