Verslunartíðindi - 01.09.1934, Blaðsíða 18
74
VERSLUNARTlÐINDI
skilja, og því er það, að Verslunarskóli
íslands er lítið yngri en stjettin sjálf. Þá
er það einkennandi fyrir þessa aðal-
mentastofnun verslunarmanna, að vöxt-
ur hennar og gengi hefir verið samfara
vexti stjettarinnar sjálfrar. Árið 1931 er
svo komið, að skólinn er svo gersamlega
vaxinn upp úr þeim stakk, er honum
hafði verið sniðinn, að til róttækra ráða
varð að grípa, ef gera átti þörfum hans
full skil. Hið ytra voru skólanum skorð-
ur reistar með því að leiguhúsnæði það,
sem hann fram til ársins 1931 hafði not-
ið, var orðið altof lítið. Þessi ytri skilyrði
voru ekki einungis illur þrándur í götu,
er því var að skifta að taka upp kenslu
í nýjum greinum, til að fylgjast með
auknum kröfum breyttra atvinnu- og við-
skiftahátta, heldur höfðu þessi ytri skil-
yrði einnig lamandi áhrif á hið innra
starf skólans og stóð fjelagslegu uppeldi
nemenda mjög fyrir þrifum. Við þetta
bættist, að ýmsra endurbóta virtist þörf
á kenslu og daglegri stjórn skólans.
Fram úr þessu var meðal annars ráðið
á þann hátt, að Verslunarráðið gekst fyr-
ir því, að stofnað var sjerstakt hlutafje-
lag, Verslunarskólahúsið h.f., og festi það
kaup á húsi handa skólanum. Sýndi hjer
margur kaupsýslumaðurinn hug sinn til
skólamála stjettarinnar, því að um þetta
leyti var Verslunarskóla íslands, sem
sjálfseignarstofnun, gefið mörg þúsund
krónur í hlutabrjefum áðurnefnds fje-
lags. Og er nú svo komið, að skólinn
sjálfur er orðinn einn stærsti hluthafinn
í fjelaginu. Til viðbótar þeim endurbót-
um, sem með húskaupunum voru gerðar
á ytri starfsskilyrðum skólans, má geta
þess, að um þetta sama leyti voru keypt
ný húsgögn handa skólanum og kenslu-
tæki hans aukin að miklum mun. Þá var
og þessu samfara sú breyting gerð á, að
ráðinn var nýr skólastjóri og yfirstjórn
skólans fengin í hendur sjerstöku skóla-
ráði, sem í eiga sæti fulltrúar frá ýmsum
fjelögum kaupsýslumanna og verslunar-
manna. Formaður skólaráðs er fulltrúi
frá Verslunarráðinu.
Um það, hvernig breytingar þessar
hafa reynst, ber skýrsla skólans frá 1930
—’34 glöggan vott. Eftir lestur hennar er
í sannleika ekki of djúpt tekið í árinni,
þótt fullyrt sje, að skólinn hafi á þessum
þremur síðustu árum gerbreytst, eflst og
batnað á öllum sviðum.
Sú staðreynd, að Verslunarskóli ís-
lands er nú stærsti framhaldsskóli á land-
inu, að aðsókn að honum hefir tvöfald-
ast á þeim stutta tíma, sem skýrslan nær
yfir, svo að skráðir nemendur eru nú
280, talar svo ómyrku máli, að ekki þarf
frekar vitnanna við um vinsældir skólans
hjá almenningi.
Um námið sjálft, svo og það aðalmark-
mið skólans, að sjá þjóðinni fyrir vel-
mentuðu verslunarfólki, segir skýrslan
sitt af hverju. Þannig upplýsist, að náms-
tíminn hefir verið lengdur um tvö ár, svo
að skólinn getur nú talist fimm ára skóli,
sjeu undirbúningsdeild og framhalas-
deild taldar með. I skólanum eru nú 18
starfandi deildir, þar af 11 í aðalskólan-
um. Þá hefir námið verið gert fjölbreytt-
ara. Kenslugreinum hefir verið fjölgað
að mun, svo að nemendum er nú gefinn
kostur á að leggja stund á 16 fög, og er
þar, eins og að líkindum lætur, ekki ein-
göngu um skyldunámsgreinir að ræða.
Hefir hjer verið lagt inn á þá braut að
starfrækja námskeið í ýmsum fræðum,
utan daglegrar stundaskrár, og hefir það
fyrirkomulag orðið sjerlega vinsælt, ef
dæma má eftir því, hve vel þessi nám-
skeið hafa verið sótt.
I þessu sambandi ber og að geta þess,
að haldnir hafa verið ýmsir fyrirlestrar
almenns og viðskiftalegs efnis. Ennfrem-