Verslunartíðindi - 01.09.1934, Blaðsíða 19

Verslunartíðindi - 01.09.1934, Blaðsíða 19
VERSLUNARTÍÐINDI 75 ur segir í skýrslunni, að skoðuð hafi ver- ið ýms verslunar- og iðjufyrirtæki og haldin sýning á skrifstofuvjelum og skrif- stofuvinnu. Færi vel á því, að þessu yrði haldið áfram á komandi árum og frekar aukið en hið gagnstæða. I einum kafla skýrslunnar eru til- færð sýnishorn af prófverkefnum skól- ans. Sá, er þetta ritar veit að sönnu ekki, hvernig þau voru alment af hendi leyst, en hafi árangurinn yfirleitt verið sæmi- legur, má telja, að skólinn hafi fyllilega náð því takmarki sínu, að sjá landinu fyr- ir vel mentuðum verslunarmönnum. — Verkefnin voru síst ljettari en verkefni samskonar verslunarskóla nágrannaland- anna. Eitt af því, sem ekki má vanta í góðan skóla er fjörugt fjelagslíf og holt sam- starf nemenda um áhugamál sín utan námsins. Um það, hvernig ástatt er í þess- um efnum í Verslunarskólanum, fjallar einn kafli skólaskýrslunnar. Þar er skýrt frá, að í skólanum hafi starfað málfunda- fjelag, íþróttafjelag, taflfjelag, söngfje- lag og dálítil hljómsveit. Ennfremur hafa nemendur gefið út blað, Viljann, þar sem þeir ræða hverskonar áhugamál sín. Þá er einnig skýrt frá nemendamótum eða skemtisamkomum, sem nemendur stofna til öðru hvoru. Alt miðar þetta að því, að auka fjelagslegan samhug og þroska nemenda og verður að teljast holl og nauðsynleg viðbót við þá bóklegu ment- un, er skólinn veitir sjerstaklega. Það, sem hjer að ofan hefir verið tií- fært úr skýrslu skólans, og er það þó að- eins fátt eitt, ber glöggan vott um þann blóma, sem skólinn stendur nú í og þær framfarir, er hann hefir tekið á undan- förnum árum. Án þess að vanmeta starf þeirra mörgu, sem skólinn á framfarirn- ar að þakka, þá mun samt öllum, sem til. þekkja, koma saman um, að skólastjór- inn sjálfur eigi drýgstan þátt í núverandi gengi skólans. Það er hann, sem verið hefir lífið og sálin í að hrinda hinum mörgu endurbótum í framkvæmd, og sem átt hefir hugmyndina að fiestum þeim ný- mælum, sem komið hefir verið á undan- farin þrjú ár. Hefir hann með þessu unn- ið verslunarstjettinni hið þarfasta verk, sem hún má lengi minnast. Þá er það að lokum eitt atriði, sem ekki má ganga fram h.já, þegar rætt er um Verslunarskóla íslanns. Það er sem sje fjárhagur skólans. Á einum stað í hinni nýútkomnu skýrslu eru birtir reikningar skólans fjögur síðustu ár. Við athugun þessa kafla kemst lesandi að því mjög svo einkennilega fyrirbrigði, að samfara hinum mikla vexti skólans undanfarin ár, þá hefir styrkur ríkisins til þessarar stofn- unar verið lækkaður ár frá ári. Þetta kennir því einkennilegar fyrir sjónir, er reikningarnir upplýsa, að hinum marg- víslegu endurbótum hefir að nokkru leyti verið komið á með söfnun skulda. Þetta ástand er með öllu ófært. Ríki og bæjar- fjelagi ber siðferðileg skylda til að greiða betur fyrir skólanum en gert hefir verið. Með núverandi fyrirkomulagi er stjórn skólans neydd til að krefja nem- endur óeðlilega hárra skólagjalda, sem tvímælalaust reynast mörgum heimilur.i tilfinnanleg byrði, auk þess, að ekki er útilokað, að einhverjum nemendum sje beinlínis bægt frá skólanum, .einungis vegna skólagjaldanna. Hjer skal ekki farið út í samanburð á því, hve aðrir sjer- og framhaldsskólar eru betur styrktir, því að sjálfsagt munu þessir skólar þurfa á öllum sínum styrk að halda, aðeins bent á, að Verslunar- skólinn hefir orðið áberandi afskiftur, er allur sá opinberi styrkur, er hann nýtur, nemur einum 5000 kr. Stjórn skólans sækir nú til Alþingis um

x

Verslunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.