Læknablaðið - 01.10.2017, Page 19
LÆKNAblaðið 2017/103 419
að þekkja til þeirra þátta sem stuðla að sjúkdómsmyndun á hverj-
um tíma og beita markvissum inngripum sem skila árangri. 15,55
Samantekt
Í þessari yfirlitsgrein höfum við rakið þróun helstu áhættuþátta
kransæðasjúkdóma á Íslandi síðastliðna hálfa öld. Eftir tímabil
stöðugra framfara sem einkenndist af því að reykingamönnum
fækkaði, meðaltals blóðþrýstingur lækkaði og meðaltal kólesteról-
gilda lækkaði eru nú blikur á lofti. Hér eru birt ný gögn úr smiðju
Hjartaverndar þar sem fram kemur að verulega hefur dregið úr
jákvæðri þróun flestra áhættuþátta en offita og sykursýki eru á
hraðri uppleið. Að óbreyttu munu þessir ógnandi áhættuþættir
leiða til þess að nýgengi kransæðasjúkdóma fer vaxandi á ný á
allra næstu árum, sérstaklega í hópi aldraðra. Áréttað er að hér
er um faraldsfræðileg gögn að ræða sem geta vanmetið nýgengi
kransæðasjúkdóma. Þessu til viðbótar hafa framfarir í lækna-
vísindum leitt til þess að sífellt hærra hlutfall sjúklinga lifir
hjartaáföll af og lifir fram á elliár með langvinnum afleiðingum
kransæðasjúkdómanna, hjartabilun og hjartsláttartruflunum. Um
80% allra tilfella kransæðasjúkdóma eru afleiðingar af vel þekktum
áhættuþáttum sem við getum haft áhrif á með lífsstíl. Þess vegna
er mikilvægt að fylgjast náið með þróun þessara áhættuþátta svo
grípa megi inn í þessa þróun með markvissum aðgerðum. Þar vega
þyngst lýðgrunduð inngrip en skimun heilbrigðra einstaklinga á
miðjum aldri með næmari greiningaraðferðum, svo sem staðlaðri
hálsæðaómun, getur leitt af sér markvissar forvarnaraðgerðir til að
bæta lýðheilsu.
Þakkir
Laufeyju Steingrímsdóttur prófessor í matvæla og næringarfræði
er þökkuð sérfræðiráðgjöf, Ólafi B Einarssyni verkefnisstjóra hjá
Embætti landlæknis er þakkað fyrir greiðar upplýsingar um notk-
un statínlyfja á Íslandi. Ragnheiði Brynjólfsdóttur er þökkuð aðstoð
við ritvinnslu.
ENGLISH SUMMARY
Coronary artery disease has been the leading cause of death and
disability in Iceland during the past decades although in recent years,
malignancy has taken over that position. A steady improvement in the
level of major risk factors has been evident since 1980. This trend expla-
ins 72% of the decrease in premature mortality from coronary artery
disease during the past three decades. However, an opposing trend in
increasing obesity and type 2 diabetes has attenuated this decline in
premature deaths. Unchanged risk factor trends will lead to increasing
cardiovascular mortality in the years to come. This will result from the
above mentioned changes in major risk factors as well as an increa-
sed ageing of the Icelandic population. At the same time case fatality
after myocardial infarction has declined substantially. This will result in
a steadily growing proportion of elderly in the population as well as a
high burden of chronic non-communicable diseases among the elderly
population. The resulting increase in long term disease and disability
will put a major constraint on the health care system and economy alike.
According to vital statistics and secular trends the rate of Icelanders in
working age for each one reaching retirement age will decrease from
the current 5.6 to 2.6 by year 2060. This paper addresses the driving
factors of risk factor change in Iceland with previously unpublished data
extending to 2013.
Five decades of coronary artery disease in Iceland. Data from the Icelandic Heart Association
Karl Andersen,1,2,3 Thor Aspelund,3 Elías Freyr Guðmundsson,1 Kristín Siggeirsdóttir,1, Rósa Björk Þórólfsdóttir,2 Gunnar Sigurðsson,1,2 Vilmundur Guðnason1
1The Icelandic Heart Association. 2Department of Health Sciences, University of Iceland. 3Landspitali University Hospital 4Janus Rehabilitation.
Keywords: coronary artery disease, mortality, risk factors, epidemiology, prevention
Correspondence: Karl Andersen andersen@landspitali.is
Y F I R L I T S G R E I N