Læknablaðið - 01.10.2017, Síða 26
R A N N S Ó K N
426 LÆKNAblaðið 2017/103
Seinni beinbrot
Tafla IV sýnir fjölda þeirra sem hlutu fleiri en eitt brot á tímabil-
inu. Athyglisvert er að nær þriðjungur kvenna en tæplega fimmt-
ungur karla hlutu þrjú brot eða fleiri.
Tafla V sýnir á svipaðan hátt hlutfall brotinna einstaklinga sem
fengu eitthvert meiriháttar beinþynningarbrot og síðar eitthvert
annað brot úr sama hópi brota.
Íhugunarvert er með tilliti til forvarna að tæp 40% allra slíkra
brota eru seinni brot. Þetta eru svipaðar tölur og í rannsókn
frá Kanada.23 Fyrri erlendar rannsóknir hafa sýnt að áhætta á
hryggsúlubroti og/eða mjaðmarbroti eftir eitt lágorkubrot er tvö-
föld í þeim hópi samanborið við þá sem ekkert brot hafa hlotið
eftir tvítugt.24 Hjartaverndarrannsóknin hefur staðfest að sú aukna
áhætta er einnig hérlendis eftir 35 ára aldur. Sýnt hefur verið fram
á í erlendum rannsóknum25,26 að áhætta þeirra sem hlotið hafa
samfallsbrot í hrygg á að fá annað slíkt brot er sérstaklega mik-
il fyrsta árið eftir brot. Í Hjartaverndarrannsókninni hlutu 30%
þeirra annað slíkt brot innan árs. Áhætta þeirra sem hlotið hafa
eitthvert meiriháttar beinþynningarbrotanna á að fá eitthvert
slíkt brot í framtíðinni hefur verið minna athuguð. Hjartavernd-
arhópurinn gaf gott tækifæri til að athuga slíkt og jafnframt til
að kanna hvort áhættan færi minnkandi eftir tímalengd frá broti,
aldri og kyni. Mynd 4 sýnir að áhættan á öðru meiriháttar bein-
þynningarbroti við 75 ára aldur er mest á fyrsta árinu eftir fyrsta
brot eða 2,7 (2,4-3,0) samanborið við að áhættan eftir 10 ár var 1,4
en hélst hærri en einn næstu 15 árin. Þessi tímabundna áhættu-
aukning var meiri meðal aldurshópa eftir sjötugt og svipuð með-
al beggja kynja.3 Meðal sextugra hélst áhættan hinsvegar óbreytt
næstu fimm árin.
Lyfjarannsóknir hafa sýnt að lyfjameðferð gagnast vel ef hún er
gefin fljótlega eftir hryggsúlubrot.27 Slíkt hefur ekki verið jafnvel
staðfest fyrir önnur meiriháttar beinþynningarbrot en ef það reyn-
ist svo, benda niðurstöður okkar til að slík meðferð skyldi hafin
fljótt eftir öll meiriháttar beinþynningarbrot. Þetta virðist eiga sér-
staklega við í eldri aldurshópum. Í þessum hópi gæti einnig verið
vert að horfa til annarra þátta en lyfjameðferðar, eins og hreyfigetu
og fallhættu, auk D-vítamínbúskapar.
Þessar niðurstöður styðja því mjög hugmyndafræðina að baki
„Fracture Liaison Service“ sem víða hefur verið tekin upp og snýst
meðal annars um alhliða annars stigs forvarnir eftir beinbrot.28
Þetta þjónustuferli hefur nú verið tekið upp á Landspítala undir
heitinu "Grípum brotin" eða "Brotakeðjuþjónusta".
Líkur á beinbrotum og FRAX Ísland
Tafla VI sýnir ævilíkur íslenskra karla og kvenna við 50 ára aldur
á því að hljóta eitt eða fleiri beinbrot síðar á ævinni.
Þar sem þessum hópi var fylgt eftir með tilliti til dauðsfalla var
unnt að leiðrétta fyrir samhliða atburðum, svo sem dauða, sem
sjaldnast er unnt að gera í erlendum rannsóknum. Taflan sýnir
að helmingur kvenna og fjórðungur karla við fimmtugt á eftir að
hljóta eitthver beinbrot síðar. Meiriháttar beinþynningarbrot hljóta
rúmlega þriðjungur kvenna og 10% karla. Mjaðmarbrot hljóta ein
af hverjum 10 konum eftir fimmtugt.
Tafla VII sýnir meðaláhættu í Hjartaverndarhópnum á ein-
hverju meiriháttar beinþynningarbroti á næstu 10 árum eftir
aldri og kyni og sýnir hversu verulega áhættan eykst eftir sjötugt.
FRAX, alþjóðlegur áhættureiknir beinbrota, var þróaður fyrir
um áratug, áhættureiknir fyrir meiriháttar beinþynningarbrot
og mjaðmarbrot næstu 10 árin.6,7 Áhættureiknirinn byggist á því
að fyrir hendi séu nýgengistölur um þessi beinbrot á viðkomandi
landsvæði. Til viðbótar voru settir í reiknivélina átta áhættuþættir
Mynd 4. Áhættan/100.000 á öðru meiriháttar beinþynningarbroti eftir það fyrsta við
75 ára aldur. Neðsta línan er áhættan á fyrsta broti fyrir konur við 75 ára aldur.3
Tímalengd frá fyrsta meiriháttar beinþynningarbroti (ár).
Áhætta á öðru meiriháttar beinþynningarbroti/100.000Tafla IV. Fjöldi einstaklinga og hlutfall sem hlotið hafa eitt eða fleiri beinbrot.
Konur Karlar Allir
Eitt brot 2054 (45,4%) 1439 (59,9%) 3493 (50,4%)
Tvö brot 1072 (23,7%) 536 (22,3%) 1608 (23,2%
Þrjú brot eða fleiri 1400 (30,9%) 428 (17,8%) 1828(26,4%)
Tafla V. Hlutfall meiriháttar beinþynningarbrota af öllum brotum ásamt hlutfalli
seinni brota af öllum meiriháttar beinþynningarbrotum.
Tegund brots Konur Karlar Samtals
Meiriháttar beinþynningarbrot sem % af
öllum brotum
58,9 38,9 53,1
Seinni meiriháttar beinþynningar brot sem
% af öllum meiriháttar beinþynningar-
brotum
40,4 26,7 37,7
Tafla VI. Ævilíkur á beinbrotum eftir fimmtugt, áætlaðar ævilíkur karla 82 ár og
kvenna 85 ár.
Konur Karlar
Tegund beinbrots % %
Öll beinbrot 49,1 25,3
Öll lágorkubrot 44,9 19,7
Meiriháttar beinþynningar brot 36,5 10,6
Meiriháttar lágorkubrot 34,2 8,6
Mjaðmarbrot 11,4 3,7
Lágorku mjaðmarbrot 10,7 3,3