Morgunblaðið - 04.06.2018, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 4. J Ú N Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 129. tölublað 106. árgangur
LANGAR AÐ
EINFALDA
FLÓKIN FORM
RISAEÐLUR Í
REYKJAVÍK
FÆRA HLUTI ÚR
RAUNHEIMUM
Í TÖLVULEIK
LISTAHÁTÍÐ HAFIN 29 MYRKUR Í LEIKJUM 26GEÓMETRÍSKT SKART 12
Eftir að nýtt námsmatskerfi var
tekið upp, svokölluð hæfniviðmið,
fær hver grunnskólanemandi miklu
fleiri einkunnir en áður. Dæmi eru
um að átta ára gömul börn fái hátt
í 100 einkunnir, þar af 28 í íslensku
og 11 í stærðfræði. Þessu fylgir
mikil vinna fyrir grunnskólakenn-
ara.
Þorgerður Laufey Diðriksdóttir,
formaður Félags grunnskóla-
kennara, segir að til standi að taka
upp viðræður um þetta við yfirvöld
menntamála. Fátt bendi til að það
bæti nám og kennslu. „Þetta náms-
mat átti að gefa betri sýn á stöðu
nemandans, en það virðist ekki ná
að gera það,“ segir Þorgerður. „Svo
virðist sem foreldrar séu litlu betur
settir með að átta sig á stöðu barna
sinna.“
Ályktað var um námsmatið á síð-
asta aðalfundi FG og Þorgerður
segir að til standi að ræða það á
vettvangi menntamálaráðuneytis-
ins. „Það er svo spurning hvort það
verði sátt um að hafa þetta öðruvísi
til framtíðar,“ segir hún. »16
Fá hátt í 100 einkunnir
Morgunblaðið/Hari
Nemandi Grunnskólakennarar
gagnrýna fyrirkomulag námsmats.
Grunnskólakennarar óánægðir með nýtt námsmatskerfi
Sjómannadagurinn í Reykjavík í gær var tileink-
aður hundrað ára fullveldisafmæli Íslands í ár og
haldinn hátíðlegur sem seinni hluti dagskrár Há-
tíðar hafsins. Hátíðarsvæðið náði frá Hörpu að HB
Granda. Aflraunir, andlitsmálning, fiskismakk,
stelpukoddaslagur, bátasmíði, bryggjuveiði
krakka, tónlistaratriði og sjómannadagsball, voru á
meðal skemmtana sem boðið var upp á.
Athöfn var haldin við Minningaröldur sjómanna-
dagsins í Fossvogskirkjugarði og sjómannamessa í
Dómkirkjunni þar sem biskup Íslands minntist
drukknaðra sjómanna.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Duttu í sjóinn eftir koddaslaginn
Sjómannadagurinn í ár var tileinkaður 100 ára fullveldisafmæli Íslands
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Útlit er fyrir að niðurstaða viðræðna í flest-
um stærri sveitarfélögum landsins verði
orðin ljós um miðja viku.
Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Sam-
fylkingar og
Vinstri grænna var
myndaður í
Borgarbyggð í gær
og gengið er út frá
því að Gunnlaugur
Júlíusson, núver-
andi sveitarstjóri,
sitji áfram. Í gær-
kvöldi skrifuðu
Samfylking og
Framsókn-
arflokkur undir
málefnasamning
um meirihluta sinn
á Akranesi. Sævar
Freyr Þráinsson
verður áfram
bæjarstjóri.
Sjálfstæðismenn í Kópavogi funduðu
lengi í gær vegna ólíkra hugmynda um bæj-
arstjórnarsamstarf. Þrír bæjarfulltrúar
flokksins lýstu í gær yfir fullu trausti til Ár-
manns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra Kópa-
vogs og oddvita sjálfstæðismanna, en stað-
festu um leið efasemdir sínar um samstarf
við BF-Viðreisn, sem áður hafði verið
fjallað um í fjölmiðlum.
Ármann sagði í samtali við mbl.is í gær-
kvöldi að erfitt yrði að ná sátt um áfram-
haldandi samstarf við BF-Viðreisn. Spurð-
ur hvort búið væri að lægja öldurnar í
Kópavogi sagði hann að sátt væri að mynd-
ast. „Þegar þú ert með flokk sem er með
þetta marga bæjarfulltrúa er ljóst að sjón-
armiðin geta orðið mörg og ég þarf að taka
tillit til þeirra sem oddviti,“ sagði hann.
Meiri-
hlutar í
mótun
Nýr meirihluti á
Akranesi tekinn við
Viðræður
» Á mörgum
stöðum sér fyrir
endann í meiri-
hlutamyndun.
» Enn er óvíst
með meirihluta í
Kópavogi.
» Tveir nýir
meirihlutar voru
myndaðir í gær.
MLínur í sveitarstjórnum verða ljósar »4
Legurými á bráðamóttökunni í
Fossvogi munu að öllum líkindum
fyllast hratt þegar hjartagátt Land-
spítalans verður lokað 5. júlí. Aukið
álag er á hjartagáttinni yfir sumar-
tímann vegna ferðamannastraums-
ins og þá sérstaklega skemmti-
ferðaskipa sem liggja við bryggju í
Reykjavík. Læknum verður fjölgað
á bráðamóttökunni í Fossvogi og
legurýmum einnig en það mun ef-
laust duga skammt og fyrirséð er
að álag á bráðamóttökunni verði
umtalsvert. Helsta ástæðan fyrir
lokun hjartagáttarinnar er skortur
á sérhæfðum hjúkrunarfræðingum.
Skorturinn er ekki mikill hlutfalls-
lega en þó nægilega mikill til að
loka þurfi hjartagáttinni í einn
mánuð. Aðstoðarmaður forstjóra
Landspítalans segir stöðuna
óheppilega. »6
Bráðamóttakan
mun duga skammt
Landspítali Legurými munu fyllast hratt
á bráðamóttökunni þar í sumar.
Gabríel Nói
Stefánsson, einn
nemendanna úr
Klettaskóla sem
leiddu liðsmenn
íslensku og
norsku karla-
landsliðanna í
fótbolta inn á
Laugardalsvöll á
laugardag, naut
sín að fullu í návist knattspyrnu-
hetjanna og er ánægður með lands-
liðsbúninginn sem hann fékk að
gjöf. Krakkarnir hittu leikmenn ís-
lenska liðsins nokkrum dögum fyrir
leikinn og þau æfðu sig fyrir við-
burðinn í nokkrar vikur. »6
Gabríel fékk að
leiða landsliðsmann
Gabríel Nói
Karl Liljendal
Hólmgeirsson
tekur í dag sæti á
Alþingi fyrir Mið-
flokkinn. Hann er
20 ára og 355
daga gamall og
verður þar með
sá yngsti frá upp-
hafi sem sest á
þing.
„Það er mikil
lífsreynsla fólgin í tækifæri sem
þessu en ég er auðvitað hrikalega
ungur og það kemur í ljós hvernig
fer,“ segir Karl í samtali við Morgun-
blaðið.
Hann stundar nám við Verk-
menntaskólann á Akureyri og leggur
þar stund á viðskipta- og hagfræði.
Karl segist ekki alltaf hafa haft
áhuga á pólitík en að áhuginn hafi
þróast hratt. „Ég byrjaði í pólitík
fyrir um það bil tveimur árum,“ segir
Karl, sem var varaformaður Félags
ungra framsóknarmanna á Akur-
eyri. Hann gekk síðar til liðs við Mið-
flokkinn. »2
Tvítugur mennta-
skólanemi á þing
Karl Liljendal
Hólmgeirsson