Morgunblaðið - 04.06.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2018
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2016 Suburban LTZ
Glæsilegur 7 manna bíll, 4 kapteinsstólar.
Með sóllúgu, hiti í stýri, loftkæld og hituð sæti.
22” felgur. 5,3L V8, 355 hö. Keyrður 2400km.
Öll standsetning innifalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu.
VERÐ
12.990.000 m.vsk
2018GMCSierraSLT35”breyttur
Litur: Dark slate, svartur að innan.
Einnig til í lager: blár, silver og vínrauður
6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ,
vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi,
upphituð og loftkæld sæti og heithúðaður pallur.
35” breyttur með kanta, 35” dekk og VISION felgur
Standsetning innifalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu.
VERÐ
10.290.000 m.vsk
2018 GMC Sierra SLT
Q6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, vel útbúinn bíll t.d.
upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi, upphituð og
loftkæld sæti og heithúðaður pallur. Öll standsetning
innifalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu.
Litur: Stone blue, svartur að innan.
Einnig til Dark Slate, Silver og Red Quartz
VERÐ
9.590.000 m.vsk
Gullfiskur
Kæliþurrkaður harðfiskur
semhámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur 84%prótein.
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Tilvalinn með
á völlinn í
sumar
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Skartgripirnir sem Edda Berg-steinsdóttir gullsmiður fram-leiðir undir merkinu SEB jewellery (www.seb.is) hafa
vakið töluverða athygli bæði á Íslandi
og erlendis. Hún hefur hannað þrjár
skartgripalínur sem allar eiga það
sameiginlegt að vera byggðar upp af
geómetrískum formum.
Við hönnunina notar Edda meðal
annars þrívíddarforrit, en eftir að hug-
myndin verður til hefst hönnunar-
ferlið í tölvunni.
„Fyrst teikna ég skartgripina
upp í tölvu og læt svo prenta þá út í
þrívíddarprentara. Þannig verður til
þrívíddarmódel, sem síðan er tekin af-
steypa af og hún notuð til að fjölda-
framleiða skartið,“ útskýrir Edda, en
hún hlaut nýlega markaðsstyrk frá
Nýsköpunarmiðstöð Íslands úr Átaki
til atvinnusköpunar til að taka þátt í
vörusýningu í Þýskalandi.
„Það er frekar nýtilkomið að gull-
smiðir noti þrívíddarprentun við hönn-
un skartgripa en þetta er verkfæri
sem er greinilega komið til að vera. Að
sjálfsögðu er mikil vinna eftir þegar
mótið hefur verið gert og skartgrip-
urinn steyptur, og tekur þá við hefð-
bundin gullsmíðavinna við að hreinsa,
húða og fullvinna hvert stykki. Það
nýja helst því í hendur við það gamla.“
Langar að einfalda flókin form
En hvers vegna leiddist Edda út
á þá braut að hanna geómetríska
skartgripi?
„Kannski er skýringuna, að
hluta, að finna í því að mig langaði
lengi að verða arkitekt og hef mjög
gaman af formum og uppbyggingu
hluta. Ég virðist líka hafa ríka þörf
fyrir að einfalda flókin form og setja
þau upp í litlum skúlptúr.“
Fyrsta skartgripalína SEB jew-
ellery og sú vinsælasta er dýra-línan.
„Þetta upphófst með því að börnin
mín elska kisur og hafa oft beðið mig
um að teikna fyrir sig kisu, og úr einni
af þessum teikningum varð til háls-
men sem síðar þróaðist yfir í geómetr-
ískan kisa. Ég þreifaði fyrir mér á
markaðinum með kisumeninu árið
2015 og fann það strax að fólk tengdi
mjög sterkt við dýr og að hönnunin
höfðaði mikið til ákveðinna hópa. Síð-
an bættust við fleiri dýr: hundurinn,
hesturinn, nautið og hrúturinn.“
Hönnunina útfærir Edda á
marga vegu. Í nýjustu línunni, sem
byggist á þremur fuglum, svani,
hrafni og kríu má t.d. finna armbönd,
hálsmen og eyrnalokka. Skartgrip-
irnir eru framleiddir úr silfri en hægt
er að velja á milli þess að hafa skart-
gripina gyllta, silfraða eða oxaða
svarta.
Meiri áhugi á skartgripum
Velgengni SEB jewellery er eitt
dæmið af mörgum um þá grósku sem
verið hefur í íslenskri hönnun undan-
farin ár. Edda segir spennandi hluti að
gerast í skartgripum um þessar
mundir og menningin í kringum tísku
og hönnun ýti undir söluna.
„Mér finnst ég t.d. verða vör við
það hjá stelpum í kringum tvítugt að
þær hafa mun meiri áhuga á skart-
gripum en mín kynslóð hafði á þessum
aldri. Tískan er líka þannig í dag að
fleira er leyfilegt en áður og hægt að
blanda saman ólíku skarti úr mismun-
andi áttum,“ útskýrir hún. „Í seinni tíð
greini ég það líka að fólk kaupir meira
af skarti úr eðalmálmum; það vill að
skartgripurinn sé ekta og hikar ekki
við að láta eftir sér fallegan skartgrip
ef hann er á réttu verðbili.“
Gengið hefur vel að koma SEB
jewellery á framfæri erlendis og segir
Edda að í löndum eins og Hollandi og
Þýskalandi njóti norræn hönnun mik-
ils meðbyrs.
„Um allan heim er gríðarlegur
áhugi á norrænni menningu og það
skemmir ekki fyrir að vera frá Íslandi.
Að því sögðu er slagurinn á þessum
markaði harður og hönnuðir þurfa að
hafa sig alla við,“ segir hún. „Þar
hjálpar líka hvað Ísland nýtur mikilla
vinsælda hjá ferðamönnum, því með
því að koma íslenskum skartgripum á
framfæri við ferðamennina erum við í
raun að ná að kynna íslenska gullsmíði
og skartgripagerð fyrir öllum um-
heiminum, og það gerist reglulega að
erlent innkaupafólk finnur eitthvað
áhugavert á leið sinni um landið.“
Lengi verið hrifin af
uppbyggingu hluta
Skartgripirnir frá SEB
jewellery verða fyrst til í
þrívíddarprentara sem
vaxmódel sem tekin er af-
steypa af. Í dag framleiðir
fyrirtækið þrjár mismun-
andi línur skartgripa.
Morgunblaðið/Valli
Sköpun „Það er nýtilkomið að gullsmiðir noti þrívíddarprentun við hönnun
skartgripa en þetta er verkfæri sem er komið til að vera,“ segir Edda.
Línur Geómetríska skartið
hefur vakið mikla hrifningu.