Morgunblaðið - 04.06.2018, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 04.06.2018, Qupperneq 13
DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2018 Fólk virðist gjarnan byrjasumarleyfið á því að takatil í fataskápnum. Aðminnsta kosti er áberandi að magnið af fötum sem til okkar berst eykst jafnan mikið á sumrin. Þetta fer af stað á vorin þegar söfnunarátakið hefst og fram eftir öllu sumri erum við að fá hingað mun meira magn af fatnaði en ger- ist á öðrum árstímum,“ segir Örn Ragnarsson, sviðsstjóri fatasöfn- unar hjá Rauða krossi Íslands. Á morgun, mánudaginn 4. júní, hefst árlegt fatasöfnunarátak Rauða krossins í samstarfi við Eim- skip, Sorpu og Póstinn. Inn á öll heimili landsins sem eru um 120 þúsund talsins verður dreift fata- söfnunarpokum sem fólk er hvatt til að nota og setja í gömul föt, skó, handklæði, rúmföt og annað slíkt sem svo er selt áfram. Einnig má setja textíl í pokana, götótta sokka og slitin rúmfötin og svo framvegis en efnið úr þessu öllu nýtist til endurvinnslu. Vinna umhverfi og samfélagi gagn Á næstu dögum þegar fólk er bú- ið að taka til í skápum sínum og tína föt í poka sem hnýta á vel fyrir má koma með þá á söfnunarstöðvar víðs vegar um landið s.s. afgreiðslu- stöðvar Eimskips Flytjanda, endur- vinnslustöðvar Sorpu og í söfnunar- gáma Rauða krossins, meðal annars á grenndarstöðvum á höfuð- borgarsvæðinu. „Verðmætin leynast víða og söfn- un og sala á notuðum fatnaði er af- ar mikilvæg fjáröflun í starfsemi Rauða kross Íslands. Því miður er enn mikið af fötum, textíl og klæð- um urðað og því viljum við breyta og er að takast smátt og smátt. Fólk verður æ betur meðvitað um að fötum á að skila í gámana okkar og vinna bæði umhverfi og sam- félaginu gagn þannig,“ segir Örn. Sérvalið til Hvíta-Rússlands „Í fyrra skilaði fatasöfnunin Rauða krossinum um 80 milljónum króna, peningum sem fara allir í hjálparstarf. Söfnunargámar okkar eru víða um land og þangað og í starfsstöðvar okkar kemur fólk með föt. Í fyrra bárust í móttöku- stöð okkar hér við Skútuvog í Reykjavík alls um 3.200 tonn. Hér eru fötin flokkuð; sumt fer í versl- anir Rauða krossins sem eru alls þrettán á landinu. Mest seljum við til Þýskalands og Hollands en einn- ig semdum við 3 gáma á ári til Hvíta Rússlands af sérvöldum föt- um sem dreift er til bágstaddra þar.“ Örn Ragnarsson hefur haft yfir- umsjón með fatasöfnuninni síðast- liðin þrettán ár og segir að með hverju ári aukist magnið. Á árinu 2017 jókst það milli ára um 350 tonn. Heildarmagn útflutnings árið 2017 var rétt tæplega 3.100 tonn. Merkimiðinn á flíkunum „Samhliða því að vera mikilvæg fjáröflun er augljóst að verkefnið áorkar miklu í endurvinnslu og um- hverfisvernd. Og magnið og árang- urinn í þessu starfi helst mjög í hendur við hver efnahagur fólks er. Fyrst eftir efnahagshrunið dróst það fatamagn sem okkur barst saman mjög hratt en nú hefur þetta náð fyrri hæðum og vel það. Nú er okkur jafnvel farinn að ber- ast fatnaður sem er lítið notaður eða jafnvel ekkert enda er merki- miðinn enn á flíkunum,“ segir Örn og bætir við að fatasöfnunin hafi marga snertifleti við starf og gildi Rauða krossins. Þannig sé flokk- unin að mestu unnin í sjálfboða- starfi, þá gjarnan af fólki sem þarf að komast úr félagslegri einangrun og vera annarra á meðal. Má þarna nefna fólk sem hefur glímt við veik- indi, hælisleitendur og fleiri, sem þarna finna kröftum sínum viðám og vinna gott og þarft starf í þágu fjöldans. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sjálfboðaliði Katrín Jónsdóttir er í þeim góða hópi sem mætir reglulega í flokkunarstöðina þar sem fötunum sem berast er pakkað og þau send áfram. Verðmætin leynast víða Fatasöfnunarátak Rauða kross Íslands hefst í vik- unni. Margir hefja sumarleyfið á að taka til í skápum þar sem margar flíkur má finna. Í söfnunargáma ber- ast 3.200 tonn af fötum sem svo er breytt í peninga. Hlýtt Fallegar handprjónaðar barnapeysur á fatamarkaðnum. Klæði Örn Ragnarsson við söfn- unargám, en þá má finna víða. Undirritaðir voru á dögunum samningar milli Ferðafélags Ís- lands og Arion banka þess efnis að bankinn verði aðalsam- starfsaðili og bakhjarl FÍ næstu þrjú árin. Samningnum sam- kvæmt mun Arion leggja FÍ lið til góðra verka á fjöllum í þágu almennings og ferðamanna í landinu, meðal annars til upp- byggingar göngustíga og fjallaskála. Einnig til að efla öryggis- mál á fjöllum, náttúruvernd og fleiri samfélagsleg verkefni sem um leið falla undir markmið og tilgang Ferðafélags Íslands. „Okkur er mikið ánægjuefni að fá þennan góða bakhjarl. Við höfum á síðustu árum staðið fyrir uppbyggingu víða, svo sem á Laugaveginum þar sem framkvæmt hefur verið fyrir háar upp- hæðir. Þá er félagið öflugt í ýmsum lýðheilsuverkefnum; það er að fá fólk til að hreyfa sig sem gerir öllum gott. Liðsinni Arion banka í þessu er kærkomið og mikilvægt,“ sagði Páll Eysteinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands, í sam- tali við Morgunblaðið. Öflugt starf í þágu lýðheilsu Arion bakhjarl FÍ Stuðningur Páll Eysteinn Guðmundsson frá Ferða- félagi Íslands og Halldór Harðarson frá Arion banka. Aftar eru frá vinstri talið: Ólöf Sívertssen, Hjalti Björns- son og Steingerður Sigtryggsdóttir sem öll eru frá FÍ. DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is DUX PASCAL SYSTEM Sérsniðna gormakaerfið Líkamar allra eru einstakir. Þess vegna býður Pascal de Luxe yfirdýnan upp á sérsniðin þægindasvæði sem gerir tveimur einstaklingum kleift að velja fullkomnu stillinguna fyrir axlirnar, neðra bakið og fótleggina þeirra. Pascal kerfið er í boði fyrir öll DUX rúm, annað hvort sem fellt inn í rúmið eða sem sérstök yfirdýna. Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.