Morgunblaðið - 04.06.2018, Síða 15

Morgunblaðið - 04.06.2018, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2018 Framtíð íslenskrar peningastefnu Forsætisráðuneytið býður til ráðstefnu á Grand hótel miðvikudaginn 6. júní kl.8:30-12:00 um Dagskrá: 8:30-8:45 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra setur fundinn 8:45-9:30 Ásgeir Jónsson, formaður nefndar um endurskoðun á ramma peningastefnu kynnir niðurstöður nefndarinnar Erlendir sérfræðingar gera grein fyrir sinni ráðgjöf til stjórnvalda: 9:30 - 9:50 Kristin J. Forbes, prófessor við MIT-háskóla 9:50-10:15 Kaffihlé 10:15-10:35 Patrick Honohan, fyrrum seðlabankastjóri Írlands 10:35-10:55 Sebastian Edwards, prófessor við UCLA háskóla 10:55-11:15 Fredrik N. G. Andersson og Lars Jonung, prófessorar við Háskólann í Lundi 11:15-12:00 Pallborð með Ásgeiri Jónssyni og erlendum sérfræðingum Fundarstjóri er Lilja Dögg Jónsdóttir, hagfræðingur Aðgangur er ókeypis Skráning á stjornarradid.is/peningastefna Jim Mattis, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði á sunnudag að ekki yrði látið af refsiaðgerðum gegn Norður-Kóreu fyrr en þarlend stjórn- völd hefðu með sannanlegum og óafturkræfum hætti tekið skref í þá átt að binda enda á kjarnorkuvopna- getu sína. Mattis lét þessi orð falla á árlegum ráðherrafundi í Singapúr, en fyrirhugað er að Donald Trump Bandaríkjaforseti og Kim Jong-un leiðtogi Norður-Kóreu, muni eiga sögulegan fund þar í borg 12. júní næstkomandi. „Við getum í besta falli vænst þess að það verði holur á veginum fram að [samningaviðræðunum],“ sagði Matt- is á fundi sem hann hélt með varn- armálaráðherrum Japans og Suður- Kóreu. Itsunore Onodera, varnarmálaráð- herra Japans, sagði við sama tæki- færi að brýnt væri að löndin þrjú héldu áfram að beita Norður-Kóreu þrýstingi samhliða því að leitað yrði að farsælli diplómatískri lausn. Að sögn Reuters hafa sumir íbúar Jap- ans áhyggjur af að Bandaríkin muni gera samning við Norður-Kóreu sem muni tryggja að ekki verði hægt að gera árás á bandarískar borgir, en skilja Japan eftir berskjaldað gagn- vart árás. Onodera hefur varað við því að ekki megi verðlauna Norður- Kóreumenn fyrir það eitt að fallast á að hefja viðræður og ítrekaði hann á ráðstefnu helgarinnar að Japan æskti þess að skotflaugar með bæði löngu og stuttu drægi yrðu fjarlægðar frá Norður-Kóreu. ai@mbl.is Engin eftirgjöf fyrr en eftir skýrar aðgerðir  Ekki verður slakað á þrýstingnum á Norður-Kóreu fyrr en afvopnun er hafin  Japan vill að allar skotflaugar hverfi AFP Samstíga James Mattis með Itsunori Onodera og Song Young-moo, varnar- málaráðherrum Japans og Suður-Kóreu. Styttist óðum í leiðtogafundinn. Hæstiréttur Filippseyja ákvað í maí að víkja Maríu Lourdes Sereno úr starfi sem forseti hæstaréttar, en Rodrigo Duterte, forseti landsins, hafði áður kallað hana „óvin“ fyrir að greiða atkvæði gegn sumum um- deildum stefnumálum ríkisstjórnar- innar sem komu fyrir dóm. Sereno greiddi meðal annars atkvæði gegn því að leyfa Duterte að framlengja herlög í suðurhluta landsins. Diego García-Sayan, sérfræð- ingur hjá Sameinuðu þjóðunum sem vaktar sjálfstæði dómara og lög- fræðinga, gagnrýndi brottvikningu Sereno og sagði aðgerðina senda dómara- og lögfræðingastétt lands- ins slæm skilaboð. García-Sayan, sem var áður utanríkisráðherra og dómari í Perú, telur að vegið sé að sjálfstæði dómstóla Filippseyja og lýðræði landsins stefnt í voða. Duterte, sem er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum, virð- ist ekki hafa kunnað gagnrýninni vel. Á fundi sem hann átti með blaðamönnum á laugardag, í aðdrag- anda opinberrar heimsóknar til Suður-Kóreu, lét Duterte skamm- irnar dynja á García-Sayan. „Segið honum að skipta sér ekki af okkar málum. Hann getur farið til hel- vítis,“ sagði forsetinn. Hæstiréttur kaus með átta at- kvæðum gegn sex að víkja Sereno úr starfi eftir að Jose Calida ríkissak- sóknari lagði fram kvörtun og sakaði Sereno um að hafa ekki greint með réttum hætti frá hagsmunaskrán- ingu sinni þegar hún starfaði sem háskólaprófessor fyrir mörgum árum. Bloomberg hefur eftir tals- manni forsetans að hann telji García-Sayan ekki hafa fengið réttar upplýsingar, og að þó svo Duterte hafi gagnrýnt Sereno þá hafi hann ekki átt neinn þátt í brottvikningu hennar. ai@mbl.is AFP Deilur Duterte kveðst ekki hafa átt þátt í brottvikningu dómarans.  Segir fulltrúa SÞ að „fara til helvítis“ Duterte bregst illa við gagnrýni SÞ Danska þingið þarf nú að taka af- stöðu til þess hvort leggja eigi á bann við umskurði heilbrigðra barna undir 18 ára aldri eftir að til- laga þess efnis hlaut 50.000 undir- skriftir á borgararfrumvarpssíðu þingsins, borgerforslag.dk. Að baki borgarafrumvarpinu standa sam- tökin Intact Denmark sem beita sér gegn umskurði á börnum. Að sögn Danska ríkisútvarpsins eru mjög skiptar skoðanir innan þingflokkanna um frumvarpið. Hafa tveir af þremur flokkum í ríkisstjórn; Frjálslynda bandalagið og Íhaldsflokkurinn, og einnig stjórnarandstöðuflokkurinn Alter- nativet, ákveðið að þingmenn þeirra skuli greiða atkvæði um mál- ið eftir eigin samvisku. Umskurðarbann til um- ræðu á danska þinginu AFP Vandi Áhorfendur fylgjast með umræðum á danska þinginu fyrir skömmu. Umskurðarbann myndi m.a. stangast á við hefðir gyðinga og múslima. Í apríl funduðu heilbrigðis-, dómsmála-, utanríkis-, kirkju- og varnarmálaráðherra Danmerkur um mögulegar afleiðingar þess að leiða umskurðarbann í lög. Var það niðurstaða fundarins að með banni væri veruleg hætta á að fækkað gæti í hópi vinaþjóða Danmerkur. Sagði Anders Samuelsen utanríkis- ráðherra að það þjónaði ekki hags- munum Danmerkur að vera eina þjóð heims sem legði blátt bann við umskurði barna. Lena Nyhus forsvarsmaður In- tact Denmark segir að því fylgi vissulega áhætta af ýmsum toga að ryðja brautina, en það megi ekki veita ofbeldisfólki neitunarvaldið í þessum efnum. ai@mbl.is  Óttast að vinaþjóðum Danmerkur fækki verði frumvarp samþykkt Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.