Morgunblaðið - 04.06.2018, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Glaumur og gleði eru lykilorð næstu
vikna. Þú hefur ekki fengið neitt á silfurfati í
gegnum lífið en nú virðist lukkan ætla að
leika við þig næstu árin.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er gríðarlega mikilvægt að setja
sér markmið. Stundum sérðu ekki skóginn
fyrir trjánum. Makinn kemur þér á óvart.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert óánægð/ur með að fá ekki
til baka það sem þú hefur lánað. Þér finnst
þú ekki eiga að þurfa að biðja um hlutina
aftur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Vertu á varðbergi gagnvart laumu-
spili af einhverju tagi. Þér finnst þú ung/ur í
annað sinn þegar þú kemst í langþráð frí og
það í útlöndum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einhver kann að meta þig en skiptir svo
skyndilega um skoðun. Með jákvæðni að
vopni eru þér allir vegir færir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vinir leika á hjartastrengi þína. Þú
slærð tvær flugur í einu höggi í vinnunni og
færð hrós fyrir. Ekki segja já og amen við öllu
sem makinn segir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það bjargar miklu að vera í góðu skapi.
Störf sem tengjst fjölmiðlun liggja því vel fyr-
ir þér þessa dagana. Fjármálin bjargast á ell-
eftu stundu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú vilt forðast að hitta vin þinn,
en þú getur ekki endalaust skotið fundi ykkar
á frest. Ekki skrifa undir nein skjöl nema lesa
þau vel yfir áður.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Smámunasemin er alveg að fara
með þig þessa dagana. Allt sem tengist fjöl-
skyldu og vinum er á góðu róli þessar vik-
urnar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vertu bara nógu ákveðin/n í því
sem þú tekur þér fyrir hendur og láttu ekki
slá vopnin úr höndum þínum. Þú leggur allt í
sölurnar fyrir afkvæmin.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sköpunarkraftur þinn er mikill um
þessar mundir þannig að þú átt erfitt með að
velja og hafna. Þú missir sjónar á einhverju
sem þér er mikilvægt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú verður að hafa augun opin fyrir
þeim möguleikum sem felast í lífinu. Ef þú
þarft að láta í minni pokann skaltu gera það
með reisn.
Við MA-stúdentar 1959 brugðumokkur austur í Rangárvalla-
sýslu á fimmtudaginn. Auðvitað
getur maður undirbúið sig með
margvíslegum hætti fyrir slíka
ferð. Ég tók „Njálu í íslenskum
skáldskap“ eftir Matthías Johann-
essen út úr skápnum – sem er
skemmtileg lesning og fróðleg og
einkar lifandi. Þar er að finna göm-
ul rímnabrot, sem margir þekkja:
Þegnar riðu á Þríhyrningsháls,
þaktir brynju og skjöldum;
allir komu þar óvinir Njáls
nema Ingjaldur frá Kjöldum.
Og þar er þessi vísuhelmingur,
sem sumir segir að Sæunn gamla
hafi mælt orðrétt fram:
Uggir mig það, arfasáta!
úr þér muni rjúka – .
Sú saga er sögð af Þorvaldi á
Sauðanesi að hann hafi verið að
kveða rímur af Gunnari á Hlíðar-
enda en ekki þótt sagan útskýra
nægilega vel skapnað hans og yfir-
litu. Gunnar vitraðist honum milli
svefns og vöku. Þá kvað Þorvaldur:
Andlitsfagur, augnablár,
ásjón fegurðin vafði
réttnefjaður með rauðgult hár,
rósir í kinnum hafði.
Sagt er frá því að Brynjólfur
Halldórsson prófastur á Kirkjubæ
(1676-1737) orti kvæði Hallgerði til
varnar og lýkur svo:
Á lesti þótti Langbrók gjörn,
er lífs varð margra skaði,
flestu má þó finna vörn
að fráteknum þjófnaði.
Árni Böðvarsson, mesta rímna-
skáld 18. aldar, orti um Hallgerði:
Enginn hafi það eftir mér,
allir heldur lofi víf.
Máske hún hafi séð að sér
og síðan hlotið eilíft líf.
Bólu-Hjálmar yrkir um lesti
Lyga-Marðar og fláræði:
Einráður var í æsku hann,
illráður þegar stálpast vann,
skjótráður til að skemma dyggð,
skaðráður allri mannabyggð,
fláráður þénti fjandanum,
fáráður varð í dauðanum.
Vestur-íslenska skáldið Kristinn
Stefánsson (1856-1916) yrkir um
Hildigunni og lætur þá skoðun í ljós
í síðasta erindi að hæðni Skarphéð-
ins á þingi hafi tendrað brennu-
bálið:
En Héðins hæðni á þingi,
svo hvöss sem eggjar stáls,
varð eldsins upphafs-neistinn
en endir brenna Njáls.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísur um persónur í Njálu
„EÐA ÞIÐ GÆTUÐ PANTAÐ KORTIN Á
NETINU OG SPARAÐ 60%, STIMPLIÐ BARA
INN AFSLÁTTARKÓÐANN: „HJÁLP, ÉG ER AÐ
GIFTAST NIRFLI.““
„HALLI, KOMDU HINGAÐ FLJÓTT.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... örlítill vinarvottur.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
MENN, ÓVINURINN
HEFUR SAMÞYKKT AÐ
SEMJA VIÐ OKKUR!
ÞVÍ MIÐUR EIGUM VIÐ
ENGAN SEM ER VANUR
ÞVÍ AÐ RÖKRÆÐA VIÐ
BITRA ANDSTÆÐINGA!
EKKI SATT, ANDERS
HÉRNA VAR EITT SINN
SKILNAÐARLÖGFRÆÐINGUR!
JÁ, ÉG VEIT AÐ HÚN ER NÓGU
STÓR FYRIR TUTTUGU MANNS
ÉG ÆTLAÐI AÐ
PANTA PÍTSU
EÐA EINN
GRETTI!
EKKERT MÁL…
HVAÐA STÆRÐ?
GEFÐU MÉR
GRETTINN
VÁ!
GRETTINN?! Söngleikurinn Slá í gegn sem síðaní vetur hefur verið sýndur í Þjóð-
leikhúsinu er skemmtilegur. Leik-
stjóranum Góa hefur tekist að spinna
ágætan söguþráð í kringum lög Stuð-
manna sem þorri Íslendinga kann.
Það er nefnilega ekki að ófyrirsynju
að talað sé um hljómsveit allra lands-
manna; Stuðmannalögin eru yfirleitt
auðlærð og hægt að raula með.
Snilldin liggur auðvitað í textunum
sem með lævíslegum hætti endur-
spegla sögu og líf lítillar undarlegrar
þjóðar á norðurhjaranum. Harpa
Sjöfn, Stína stuð, Sigurjón digri og
Dúddi rótari og fleiri af sama sauða-
húsi eiga sér marga meðbræður í lif-
andi mönnum og nú í karakterum
sem ganga ljósum logum á leiksviði.
x x x
Margar skemmtilegar myndirkoma upp í huga Víkverja þeg-
ar hann rifjar upp langa samfylgd
sína með Stuðmönnum. Árið 1982
fóru allir í bíó að sjá Með allt á hreinu
og myndin svínvirkar enn þegar hún
er látin rúlla í gegn í barnaafmælum.
Og mikið frábærlega var gaman að
vera með hljómsveitinni í tívolíinu í
Hveragerði árið 1987 þegar Látúns-
barkinn Bjarni Arason sté á svið sem
fullskapaður stórsöngvari. Sveitaball
í Ýdölum í Aðaldal vorið 1999; salur-
inn lærði lagið Ég er bara eins og ég
er á fimm mínútuum og söng með.
Sama gerðist í kristalsalnum í Tívolí í
Kaupmannahöfn í september 2003
þegar lagið Íslensk fönn var frum-
flutt.
x x x
Margir þekktir leikarar taka þátt íuppfærslunni á Slá í gegn; Örn
Árnason, Sigurður Sigurjónsson, Jón
Gnarr, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og
Edda Björgvinsdóttir, Oddur Júlíus-
son og Birgitta Birgisdóttir svo nokk-
ur séu nefnd. Og persónugalleríið er
litríkt; Baddi hnífakastari, skeggjaða
konan, Frímann flugkappi og fleiri.
Leikhúsgestir síðastliðið laugardags-
kvöld voru á öllum aldri og kynslóða-
bil var ekki til. Sautján ára ungling-
ur, förunautur Víkverja, kunni öll
lögin gömul sem ný og skemmti sér
vel. Frábær skemmtun og söguefnið
íslenskt mannlíf í spéspegli leiks, laga
og ljóða slær algjörlega í gegn.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég
gangi í sannleika þínum, gef mér heilt
hjarta, að ég tigni nafn þitt.
(Sálmarnir 86.11)
--- ALLT A EINUM STAD �
HÓT E L R E K S T U R
Komdu og skoðaðu úrvalið í
glæsilegri verslun að Hátúni 6a
Hágæða rúmföt,
handklæði
og fallegar
hönnunarvörur
fyrir heimilið
Eigum úrval
af
sængurvera
settum
Percale ofin
– Micro bóm
ull,
egypskri og
indverskri bó
mull
Hátúni 6a, 105 Reykjavík | Sími 822 1574 | hotelrekstur.is