Morgunblaðið - 06.06.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.06.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Umhverfis- og skipulagssvið Reykja- víkur hefur til meðferðar nýtt deili- skipulag fyrir Vesturlandsveg á Kjal- arnesi. Nýtt skipulag er forsenda þess að hægt verði að breikka veginn eins og þrýst hefur verið á í kjölfar al- varlegra slysa á veginum á þessu ári. Deiliskipulagið var auglýst fyrr á þessu ári og frestur til að gera at- hugasemdir og ábendingar rann út 9. maí sl. Bárust fjölmargar slíkar frá stofnunum, félagasamtökum og ein- staklingum, sem teknar voru til skoð- unar. Þær upplýsingar fengust hjá Reykjavíkurborg að málið yrði tekið fyrir á fundi umhverfis- og skipulags- ráðs í dag og það fer síðan í borgarráð til lokaafgreiðslu borgarinnar. Að því loknu verður málið sent til Skipulags- stofnunar, sem afgreiðir það væntan- lega eftir nokkrar vikur, og að lokum verður skipulagið birt í B-deild Stjórnartíðinda. Ný samgönguáætlun er í vinnslu og þegar hún verður lögð fyrir Al- þingi í haust skýrist hvort fjárveiting fæst til verksins. Breikkun Vestur- landsvegar gæti hafist í haust og af fullum krafti vorið 2019, að því er Vegagerðin hefur upplýst. Deiliskipulagssvæðið nær yfir nú- verandi vegstæði Vesturlandsvegar á 14 kílómetra kafla, frá sveitarfé- lagsmörkum Reykjavíkur og Mos- fellsbæjar að gatnamótunum við Hvalfjarðarveg. Eftir breikkun verður Vestur- landsvegur 2+1 vegur en 2+2 vegur síðar. Til að byrja með verður kaflinn frá Esjubergi að Hvalfjarðarvegi breikkaður, en hann er um 9 kíló- metrar. Kostnaður við breikkun þess kafla er áætlaður 3.000-3.500 milljón- ir króna. Fram hefur komið að fram- kvæmdatími geti orðið 3-4 ár og verk- inu yrði líklega skipt í tvennt. Á síðasta fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur var lögð fram umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmda- leyfi sem felst í að gera hringtorg á Vesturlandsvegi við Esjumela auk vega- og stígagerðar. Til fram- kvæmdanna teljast einnig undirgöng undir Vesturlandsveg, strætóbið- stöðvar við Vesturlandsveg, gerð Víð- inesvegar á um 600 metra kafla og gerð Norðurgrafarvegar að Lækjar- mel/Esjumel o.fl. Fjárveiting til að vinna þetta verk er fyrir hendi. Undirbýr breikkun vegarins Morgunblaðið/Ómar Umferð Fyrst verður kafli frá Esjubergi að Hvalfjarðarvegi breikkaður.  Fjallað verður um nýtt deiliskipulag fyrir Vesturlandsveg á fundi umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar í dag  Aukinn þrýstingur í kjölfar alvarlegra slysa Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Alls voru greiddir rúmlega tveir milljarðar króna í skilagjald af um- búðum drykkja á síðasta ári. Þá voru 158.120.461 eining í íslenska skilakerfinu og var varan ýmist framleidd hér eða flutt inn. Umbúð- um, hvort sem þær eru úr plasti, áli eða gleri, hefur fjölgað hratt síð- ustu ár, en þær voru 142 milljónir árið 2016 og tæplega 134 milljónir 2015. Helgi Lárusson, framkvæmda- stjóri Endurvinnslunnar, segir að tæpast fari á milli mála að aukin velmegun og stríður straumur ferðamanna eigi þátt í þessum breytingum. Þessir þættir eigi ef- laust einnig þátt í því að skil á um- búðum hafi minnkað. Reynt sé að bregðast við minni skilum með hönnun á söfnunarkössum í sam- vinnu við skáta og björgunarsveitir sem til stendur að setja upp á al- gengum ferðamannastöðum. Einnig er unnið að stækkun og fjölgun móttökustöðva til að mæta aukn- ingunni. Costco-áhrif í neyslunni? Helgi segir að hérlendis hafi skil- in í kerfinu yfirleitt verið á bilinu 85-88%, en fóru í fyrra niður í 82,8%, þau eru minnst í gleri, en mest í áli. Á öðrum Norðurlöndum eru heildarskil nokkru meiri en hér, en þar er því bætt við sem endur- unnið er með öðrum söfnunar- aðferðum eins og grenndargámum og því sem veitt er úr heimilissorpi eins og hjá SORPU. Helgi segir að þar gætu bæst við allt að 5% og til standi að gera slíkt hið sama hér varðandi skilatölur á þessu ári. Helgi segir athyglisvert hversu mjög einingum hefur fjölgað síð- ustu ár. Ein skýring á því geti verið að neysluvenjur séu að breytast og viðskiptavinir færi sig úr tveggja lítra umbúðum í minni einingar. Í þessu tilviki gæti Costco hafa haft áhrif, en Íslendingar séu ekki endi- lega að drekka meira en áður. Vel gengur að flytja plastið út Síðustu mánuði hafa verið nokkr- ir erfiðleikar á að flytja út plast til endurvinnslu þar sem Kína- markaður hefur nánast verið lok- aður. Helgi segir að slíkt sé ekki vandamál hjá Endurvinnslunni, þvert á móti hafi ekki gengið betur en nú í útflutningi á plasti síðan metárið 2011. Endurvinnsla á plasti frá fyrirtækinu sé boðin út á hálfs árs fresti og þannig fáist bestu verðin, en verksmiðjur í Hollandi og Þýskalandi hafi yfirleitt full- unnið plastið. Helgi segir lykilatriði að umbúðirnar séu algerlega hrein- ar, vel flokkaðar og í þeim sé PET- plast, sem sé meðal verðmætustu plasttegunda. »18 Hröð fjölgun en lakari skil drykkjarumbúða  Aukin velmegun og fjöldi ferðamanna hefur áhrif Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í Knarrarvogi Milljónir drykkjarumbúða berast í móttökustöðvar um allt land í hverri viku þar sem þær eru flokk- aðar eftir kúnstarinnar reglum. Plastið fer síðan til endurvinnslu erlendis og fæst gott verð fyrir gæðaplast. Búið er að útskrifa sex af þeim níu sem fluttir voru á Landspítalann í kjölfar alvarlegs umferðarslyss á Vesturlandsvegi í fyrrakvöld. Þrír dvelja enn á Landspítalanum, einn á almennri legudeild og tveir á gjör- gæsludeild. Þetta kom fram í frétta- tilkynningu sem Landspítalinn sendi frá sér í gær. Einn lést, erlendur karlmaður á fertugsaldri, þegar bifreiðirnar, sendibíll og fólksbíll, skullu saman. Maðurinn var ökumaður síðar- nefndu bifreiðarinnar. Í hinum bíln- um voru kona og átta börn. Lögreglan leitar enn vitna að slys- inu, en þeir sem kunna að hafa orðið vitni að árekstrinum eða aðdrag- anda hans eru vinsamlegast beðnir að hafa samband í síma 444-1000. Tveir eru á gjörgæslu eftir slysið  Lögreglan leitar enn vitna að slysinu Stefán E. Stefánsson Höskuldur Daði Magnússon Embætti héraðssaksóknara hefur til skoðunar kaup hjónanna Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur og Guðmundar Arnar Þórðarsonar á olíufélaginu Skeljungi árið 2008 og eins kaup þeirra á færeyska félaginu P/F Magni með fleiri fjárfestum árið 2009. Þetta staðfestir Svanhildur Nanna í samtali við Morgunblaðið. Hún staðfestir einnig að rannsóknin sé ástæða þess að hún hafi á föstudaginn síðasta ákveðið að stíga tímabundið til hliðar sem stjórnarformaður trygginga- félagsins VÍS. Í tilkynningu sem send var vegna ákvörðunar Svanhildar Nönnu kom fram að ákvörðun hennar væri tekin af „persónulegum ástæð- um“. Hún situr áfram í stjórninni. Í skriflegri yfirlýsingu til Morgun- blaðsins segir Svanhildur Nanna að héraðssaksóknari skoði nú málefni Skeljungs í kjölfar kæru frá Íslands- banka. Bankinn var seljandi hlutarins í Skeljungi á sínum tíma. Eftir það var bankinn minnihlutaeigandi í fyrir- tækinu og sló í brýnu milli hans og Svanhildar Nönnu og Guðmundar á þeim tíma. Svanhildur og Guðmundur segja kaupin hafa borið að með eðli- legum hætti og að opinber rannsókn muni eyða öllum vafa þar um. Umfangsmiklar aðgerðir fóru fram vegna málsins á fimmtudaginn var. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins voru framkvæmdar húsleitir og handtökur auk þess sem fólk var kallað til skýrslutöku. Aðgerðirnar stóðu frá morgni og fram á kvöld. Nokkrir hafa stöðu sakbornings í málinu og enn er verið að kalla fólk inn til skýrslugerðar. Ólafur Þór Hauksson héraðssak- sóknari staðfesti við Morgunblaðið í gær að embættið hafi umrædda kæru til meðferðar og að ráðist hafi verið í aðgerðir í tengslum við hana síðastlið- inn fimmtudag. Hann varðist að öðru leyti frétta af málinu. Hafa aðstoðað við rannsóknina „Við höfum veitt fulltrúum héraðs- saksóknara allar þær upplýsingar sem þeir hafa óskað eftir og munum áfram aðstoða þá við rannsóknina. Við höfum að eigin frumkvæði greint Fjármálaeftirlitinu frá henni, stjórn- endum og regluvörðum þeirra skráðu félaga sem við tökum þátt í að stýra. Rétt er að árétta, að þau félög tengj- ast rannsókninni ekki á nokkurn hátt. Við munum áfram sitja í stjórnum fé- laganna, en Svanhildur Nanna ákvað að láta öðrum eftir stjórnarfor- mennsku í VÍS hf. á meðan rannsókn- in stendur yfir,“ segir í yfirlýsingu. Víkur til hliðar vegna skoðunar  Saksóknari rannsakar kaup á Skeljungi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.