Morgunblaðið - 06.06.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2018
Björn Bjarnason víkur að lýð-skrumi Viðreisnar og Sam-
fylkingar í pistli í gær: „Samfylk-
ing í leit að ágreiningsefni hengir
nú hatt sinn á veiðigjöld og sama
gildir um Viðreisn.
Furðulegt er að
Þorsteinn Víglunds-
son, varaformaður
Viðreisnar, skuli
hafa tekið þannig
til orða í þingræðu
að landinu sé
stjórnað af þremur
Framsóknar-
flokkum.
Aulabrandararhæfa lélegum
málstað og þeir
setja vaxandi svip á
málflutning tals-
manna Viðreisnar.
Þessi á einstaklega
illa við í munni for-
varsmanns flokksins því að hann
hagar sér nú eins og dæmigerður
miðjuflokkur, situr á girðingunni
og hallar sér til vinstri eða hægri
eftir því hvernig vindurinn blæs.
Nú þegar vinstrisinnuð viðhorferu á undanhaldi meðal kjós-
enda, megi marka úrslit sveitar-
stjórnarkosninganna, snýr Við-
reisn sér til vinstri. Verður popúl-
isti í veiðigjaldamálinu til að
þóknast Samfylkingunni og geng-
ur í björg með vinstriflokkunum
við myndun nýs meirihluta í
borgarstjórn Reykjavíkur.
Veiðigjaldaumræðan er dæmi-gerð fyrir samhengisleysið
sem stefnulausir flokkar vilja að
einkenni stjórnmálalífið. Í gildi
eru ákveðnar leikreglur varðandi
veiðigjöldin og þegar þingnefnd
leggur til að þeim sé fylgt um-
turnast Samfylkingin og fyrrver-
andi formaður hennar, Oddný
Harðardóttir, sem hafði næstum
gengið af flokknum dauðum, ger-
ist popúlisti og Viðreisn eltir
hana.“
Þorsteinn
Víglundsson
Lýðskrumsflokkar
STAKSTEINAR
Oddný
Harðardóttir
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
GOTT ÚRVAL
AF UMGJÖRÐUM
Verið velkomin til
okkar í sjónmælingu
Pósturinn hyggst fjölga póstboxum
sem hægt er að nálgast pakkasend-
ingar í á þessu ári.
Póstboxin eru sjálfsafgreiðslu-
kassar sem eru á víð og dreif á
höfuðborgarsvæðinu og eru að-
gengilegir allan sólarhringinn. Í
fyrradag fór fjöldi skráðra notenda
þessarar þjónustu hjá Póstinum yfir
20.000 í fyrsta sinn. Pósturinn
hyggst fjölga hólfum í núverandi
póstboxum á höfuðborgarsvæðinu á
yfirstandandi ári til að bregðast við
mikilli fjölgun pakkasendinga sem
fara þessa leið. Þá stefnir fyrirtækið
á að stækka dreifikerfi póstboxa enn
frekar á næstu árum, segir í tilkynn-
ingu frá Póstinum. Öll samskipti í
tengslum við móttöku pakkasend-
inga í póstbox eru rafræn. Viðtak-
endur greiða gjöld af sendingunni á
netinu. Því næst fá þeir sendan QR
kóða sem er skannaður inn við við-
komandi póstbox og hólfið opnast.
Einnig er hægt að fá sent PIN-
númer í síma til að opna hólfið.
Hyggjast fjölga
póstboxum
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Skráningar í Vinnuskóla Reykja-
víkur ganga vel. Skráning er ennþá
opin ungmennum á unglingastigi en
skólinn hefst næsta mánudag.
Magnús Arnar Sveinbjörnsson,
skólastjóri Vinnuskólans í Reykja-
vík, segir að 1.700 ungmenni hafi
skráð sig nú þegar og ljóst að sum-
arið verði líflegt hjá þeim.
Í ár gefst 8. bekkingum aftur
kostur á vinnu við skólann en sá ár-
gangur hefur ekki verið með frá
2010. Umsóknir 8. bekkinga hafa
alltaf verið fjölmennastar að sögn
Magnúsar. „Þetta eru yngstu
krakkarnir og hafa minnsta mögu-
leika á vinnu annars staðar. Við
fögnum því að fá þau til baka til
starfa.“
Um 60 leiðbeinendur eru ráðnir
til að taka á móti hópunum og eru
þeir settir í fræðslu og annan undir-
búning.
Vinnuskólinn er útiskóli og flest-
öll verkefni skólans snúast um um-
hirðu gróðurs og beða víðs vegar í
borgarlandinu og á stofnanalóðum.
Í ár var ákveðið að brjóta upp fyrir-
komulag 10. bekkinga og þeim boð-
in óhefðbundnari störf. Nú býðst
þeim að starfa víðsvegar um bæinn,
m.a. á leikskólum, bókasöfnum, frí-
stundaheimilum, í félagsstarfi aldr-
aðra og víðar. Það hefur mælst vel
fyrir að sögn Magnúsar og aðsókn
verið góð.
Borgarráð samþykkti í fyrra að
hækka laun 9. og 10. bekkinga um
30% þar sem Reykjavíkurborg hafði
dregist nokkuð aftur úr í saman-
burði við önnur sveitafélög er þetta
varðar. Laun 8. bekkinga voru nú
einnig hækkuð í samræmi við þær
hækkanir á öðrum árgöngum sem
áttu sér stað í fyrra.
Líflegt sumar framundan í vinnuskólanum
8. bekkingar aftur með í Vinnuskóla Reykjavíkur í sumar 1.700 sótt um
Veður víða um heim 5.6., kl. 18.00
Reykjavík 10 skýjað
Bolungarvík 11 léttskýjað
Akureyri 12 heiðskírt
Nuuk 9 skýjað
Þórshöfn 10 léttskýjað
Ósló 20 heiðskírt
Kaupmannahöfn 20 heiðskírt
Stokkhólmur 12 heiðskírt
Helsinki 11 skúrir
Lúxemborg 25 léttskýjað
Brussel 19 skýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 18 heiðskírt
London 15 skýjað
París 21 skýjað
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 23 heiðskírt
Berlín 22 léttskýjað
Vín 26 léttskýjað
Moskva 12 léttskýjað
Algarve 19 léttskýjað
Madríd 19 léttskýjað
Barcelona 21 þrumuveður
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Aþena 30 léttskýjað
Winnipeg 19 léttskýjað
Montreal 13 skúrir
New York 22 skýjað
Chicago 19 þrumuveður
Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:11 23:43
ÍSAFJÖRÐUR 2:16 24:48
SIGLUFJÖRÐUR 1:55 24:35
DJÚPIVOGUR 2:29 23:24
Í Morgunblaðinu í gær birtist frétt
um háskerpu í upptökum RÚV. Hér
með er leiðrétt að það er aðeins Sím-
inn sem hefur fengið lágskerpuupp-
tökur frá RÚV en ekki Vodafone.
Höfð er eftir Braga Reynissyni,
deildarstjóra dreifikerfa og útsend-
ingar hjá RÚV, setningin „Þetta er
kortér í klárt“ en ekki Gunnari Erni
Guðmundssyni, forstöðumanni tækni
hjá RÚV, og er það einnig leiðrétt.
LEIÐRÉTTING